Morgunblaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er erfitt að mæta aukinni eft- irspurn sem kemur með nánast eng- um fyrirvara á þessum árstíma. Við erum með takmarkanir á bókanir í ákveðnum flokkum bíla til 11. ágúst,“ sagði Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar. Tak- markanirnar ná til minnstu fólksbíl- anna, húsbíla og minnstu jeppling- anna. Ferðaskrifstofur geta ekki bókað bíla í þessum flokkum án þess að leita fyrst upplýsinga hjá bílaleig- unni um hvort þeir liggi á lausu. „Það er ekkert að því að bíla- leigubílar séu nánast fullbókaðir næstu tvær vikurnar á háannatím- anum. Auðvitað vildum við hafa ver- ið komin með alla bíla sem við pönt- uðum, en það er ekkert við því að gera,“ sagði Steingrímur. Hann sagði að ástæðan fyrir bílaskortinum væri tvíþætt. „Annars vegar eru tafir á afhend- ingu nýrra bíla vegna faraldursins. Við eigum eftir að fá afhenta 200-250 bíla sem við eigum pantaða. Þeir voru um 400 fyrir um viku. Þessar tafir eru vegna framleiðslutafa hjá flestum bílaframleiðendum. Það vantar ýmsa íhluti en helst eru það tölvukubbar sem vantar,“ sagði Steingrímur. Afhendingar hafa því tafist fram úr hófi. Hann sagði að þeir bókuðu ekki bíla í leigu fyrr en þeir hefðu verið afhentir. Höldur, sem á Bílaleigu Akureyr- ar, rekur bílasölur í Reykjavík og á Akureyri. Einnig er fyrirtækið í samvinnu við fleiri bílasölur á höf- uðborgarsvæðinu. Bílaleigan keypti eitthvað af lítið eknum notuðum bíl- um í vor til að bæta úr bílaskort- inum. Steingrímur sagði að ekki hefði verið mikið til af bílum sem uppfylltu þeirra kröfur. Þeir vilja ekki leigja út of mikið ekna bíla eða of gamla. Hann sagði að skortur væri á lítið eknum notuðum bílum, meðal ann- ars vegna þess að ferðaþjónustan fór hraðar af stað en reiknað hafði verið með. Bílaleigur, sem hafa verið stór- ar á markaði með notaða bíla, hafa ekki selt neitt frá sér. Almenningur hélt líka að sér höndum og sala á notuðum bílum var því fremur lítil í vetur. Skortur á nýjum bílum kemur einnig niður á almenningi svo það er almenn vöntun á bílum. Notaðir bílar standa stutt við „Það er hörgull á nýjum bílum. Afgreiðslufrestur á nýjum bílum hefur lengst og umboðin fá ekki allar þær pantanir sem þau vilja,“ sagði Jóhannes Jóhannesson, staðgengill framkvæmdastjóra Bílgreina- sambandsins. „Sumir fengu bíla í síðustu viku en ég held að umboðin séu almennt að fá færri bíla en þau gætu selt og afhent á þessum tíma ársins.“ Jóhannes sagði að bílaleigurnar fyndu mest fyrir þessu. Þær væru að reyna að stækka flotana og mæta þörfinni fyrir bílaleigubíla með vax- andi ferðamannastraumi. Ein- staklingar væru margir búnir að panta sér bíla en þyrftu að bíða leng- ur eftir að fá þá afhenta en áður tíðk- aðist. „Íslendingar sem hafa keypt sér bíl hafa verið vanir að fá hann af- hentan eftir 1-2 daga. Það hefur breyst. Biðin getur verið miklu lengri eftir því hvaðan bíllinn kemur. Bílaumboðin vildu gjarnan eiga meiri birgðir og geta afgreitt bílana hraðar því það er eftirspurn,“ sagði Jóhannes. Notaðir bílar standa stutt við á bílasölum og er minna framboð af þeim en verið hefur. Þannig stoppa uppítökubílar umboðanna varla við. Verð á notuðum bílum hefur hækkað og taldi Jóhannes óhætt að segja að það hefði hækkað um 10% að undanförnu. „Ég var að tala við kunningja minn í Þýskalandi sem sagði að þar hefði verð notaðra bíla hækkað um 12-15%. Þeir búa við svipaðar aðstæður og við, þetta ástand er ekki bundið við Ísland. Faraldurinn hefur búið til þetta ves- en víða um heim,“ sagði Jóhannes. Hörgull á nýjum og notuðum bílum - Bílaleiga takmarkar bókanir - Hærra verð notaðra bíla Morgunblaðið/Árni Sæberg Bílasala Minna framboð er af bílum vegna faraldursins. Það kemur sér illa fyrir bílaleigur. Góðir notaðir bílar seljast hratt og verð hefur hækkað. Verð á eldsneyti hefur haldist nokk- uð stöðugt í júlímánuði á bensín- stöðvum landsins en það hækkaði um allt að átta krónum í lok júní. Heims- markaðsverð olíu rauk upp í kjölfar tilslakana margra þjóða í júní auk þess sem sumarleyfistími Banda- ríkjamanna spil- aði inn í. Mesta hækkun sem orðið hefur á bensíni eru tvær krónur og mesta hækkun á dísil er ein króna það sem af er júlímánuði. „Þetta eru í raun engar svipt- ingar á markaðn- um,“ segir Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Ódýrum stöðvum fjölgar Hækkunin er ekki mikil að hans mati en athyglisvert hve ódýru bens- ínstöðvunum fjölgar. Þær stöðvar séu hvað viðkvæmastar fyrir verð- breytingum. Gott dæmi séu stöðvar Atlantsolíu í Kaplakrika og á Sprengisandi. „Þegar maður keyrir framhjá þessum stöðvum, til dæmis bara á föstudagseftirmiðdegi, þá er þar biðröð á meðan aðrar stöðvar fé- laganna eru nánast tómar,“ segir Runólfur. „Neytendur eru í auknum mæli farnir að leitast við að eiga í viðskipt- um þar sem lægra verð er í boði enda munar töluverðu í verði,“ segir Run- ólfur og bætir við að til að fylla á 40 lítra tank af bensíni muni um 1.700 krónum á dýrustu og ódýrustu stöðvum N1. „Hjá sama félaginu með kannski eins kílómetra vega- lengd á milli ferðu úr 215,9 í 256,9 krónur lítrinn.“ ari@mbl.is Eldsneytisverð haldist stöðugt - Litlar verðbreytingar til þessa í júlímánuði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bensín Mikill munur er á dýrustu og ódýrustu stöðvum N1. Runólfur Ólafsson Ari Páll Karlsson ari@mbl.is „Það er bara allt fullt hjá okkur,“ segir Katrín Ósk Sveinsdóttir en hún tók við tjaldsvæðinu á Flúðum í mars síðastliðnum. Fyrstu helgarnar í júlí hafi verið stappfullar og veður gott. Þá megi búast við svipaðri stöðu út sumarið. Katrín er Akureyringur að uppruna, bjó á Eyrarbakka þar til þau í fjölskyld- unni ákváðu að kaupa hús á Flúðum. „Það var alveg stórt verkefni,“ segir hún. „Að undirbúa tjaldsvæðið og vera ný yfir,“ segir hún um hvern- ig undirbúningsvinnan hefur gengið. Spurð hvað fólk geri mest um helgar á Flúðum segir hún allan gang á því. „Fólk hangir yfirleitt bara á svæðinu hérna. Er mest að hittast í hópum.“ Þá eru vinsælar gönguleiðir allt í kringum tjald- svæðið. „Það er til dæmis Miðfellið hérna.“ – Og það er 25 ára aldurstakmark? „Já. Það var einu sinni 23 ára ald- urstakmark en það gekk ekki þannig að nú er það 25. Þetta er fjöl- skyldusvæði,“ segir Katrín en aldurstakmark var sett á fyrir henn- ar tíð. Spurð hvort einhverjum undir 25 ára hafi tekist að laumast inn á svæð- ið í leit að gleðskap segir hún það ekki hafa gerst hingað til í sumar. „Nei, við höfum ekki fengið það ennþá en nú á föstudaginn voru menn með hávaða og læti alveg fram eftir morgni.“ Aðspurð hvort þessir gestir hafi verið undir aldri svarar Katrín: „Nei, þetta voru nú bara fullorðnir menn.“ Gerðu mennirnir varðeld í grasinu og létu sér ekki segjast fyrr en lög- regla var kölluð til. „Þeir fengu séns og voru til friðs eftir að löggan talaði við þá. Það hlusta auðvitað allir miklu meira á lögguna en okkur,“ segir Katrín glettin. Verslunarmannahelgin er á næsta leiti og segist Katrín búast við að fá til sín krakka í leit að gleðskap. Spurð hvort hún búist við að skiltið hjálpi til við að halda þeim úti svarar hún neitandi. „Nei, ég stórefa það. Við verðum með hlið,“ segir hún en engum sem ekki hefur náð tilsettum aldri verður hleypt í gegn. Morgunblaðið/Eggert Tjaldsvæði 25 ára aldurstakmark enda er um að ræða fjölskyldusvæði. Yngri en 25 ára mega ekki tjalda Katrín Ósk Sveinsdóttir - Árangursríkt sumar og gott veður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.