Morgunblaðið - 20.07.2021, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021
Á vefnum fullveldi.is er sagt frá
sjómönnum á Írlandi sem hafi
gagnrýnt harðlega fríverslunar-
samninginn sem Evrópusambandið
samdi um við Bretland í kjölfar
Brexit. Hluti samningsins fjalli um
skiptingu aflaheimilda í deilistofn-
um næstu
fimm árin og
írskir sjómenn
telji að mjög
halli á Írland
umfram önnur
ríki sambands-
ins.
- - -
Írland missir við þetta 15% af
aflaheimildum sínum, sem er
nærri tvöfalt það sem Frakkland
missir. Fullveldi.is hefur eftir Irish
Examiner að forsvarsmenn írskra
sjómanna segi að þetta muni kosta
mörg þúsund störf og valda gríð-
arlegu fjárhagslegu tapi fyrir írsk-
an sjávarútveg.
- - -
Forsætisráðherra Írlands lýsir
einnig óánægju með málið og
segir að Írar þurfi „að endurskoða
tengsl okkar við Evrópusambandið
í sjávarútvegsmálum.“
- - -
Þessi orð hafa vitaskuld ekki
mikið að segja og eru aðeins til
heimabrúks, enda, eins og full-
veldi.is bendir á, þá er stjórn sjáv-
arútvegsmála innan Evrópusam-
bandsins alfarið í höndum þess
samkvæmt sáttmálum sambands-
ins.
- - -
Þessi reynsla Íra mætti verða Ís-
lendingum til umhugsunar,
ekki síst þeim íslensku stjórn-
málamönnum systurflokkanna
tveggja sem reyna nú að sannfæra
landsmenn um að evran og ESB séu
einmitt það sem þjóðin þarfnast.
Eða trúir því einhver að meira tillit
yrði tekið til hagsmuna Íslands en
Írlands þegar á reyndi?
ESB sætir harðri
gagnrýni á Írlandi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sky Lagoon mun ekki gera grein-
armun á kynjum þegar kemur að
reglum um klæðaburð í lóninu. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá fram-
kvæmdastjóra Sky Lagoon í gær.
Mikil umræða fór af stað í
tengslum við þetta þegar ung íslensk
kona deildi upplifun sinni af því að
vera vísað upp úr Sky Lagoon fyrir
það eitt að vera berbrjósta.
Dagný Hrönn Pétursdóttir fram-
kvæmdastjóri sagði svo í samtali við
mbl.is að starfsmenn lónsins hefðu
reynt að fara hinn „gullna meðalveg“
með því að vísa konunni úr lóninu.
Af tilkynningu framkvæmdastjór-
ans að dæma hefur afstaða stjórn-
enda fyrirtækisins í þessu máli
breyst en nú verður ekki gerður
greinarmunum á kynjum um hvað
séu fullnægjandi sundföt hjá Sky
Lagoon.
Í tilkynningunni segir m.a. að
margir hafi tjáð sig í samtölum við
starfsmenn lónsins og viðrað mis-
munandi skoðanir. Ljóst sé að skoð-
anir séu skiptar um málið. Eftir að
hafa skoðað málið betur hafi verið
komist að þeirri niðurstöðu að túlk-
un umræddrar konu á skilmálum
Sky Lagoon hafi átt rétt á sér.
„Við viljum því þakka henni fyrir
að vekja athygli okkar á þessu,“ seg-
ir enn fremur í tilkynningunni.
Gera ekki greinarmun á kynjum
- Sky Lagoon bregst við gagnrýni fyrir
að hafa vísað berbrjósta konu frá lóninu
Morgunblaðið/Eggert
Lón Gestir Sky Lagoon á barnum.
Pálmi Stefánsson, tón-
listarmaður og stofn-
andi Tónabúðarinnar á
Akureyri, lést á
Sjúkrahúsinu á Akur-
eyri 15. júlí, 84 ára að
aldri.
Hann fæddist 3.
september 1936 á
Litlu-Hámundar-
stöðum á Árskógs-
strönd. Foreldrar hans
voru Anna Þorsteins-
dóttir húsfreyja og
Stefán Einarsson,
bóndi, sjómaður og
smiður.
Pálmi var á barnsaldri þegar hann
hóf að leika á harmóníku fyrir dansi
heima á Árskógsströnd. Eftir að
Pálmi flutti til Akureyrar stofnaði
hann eigin hljómsveit. Hann var síð-
ar hljómsveitarstjóri Póló sem starf-
aði 1964-1969 og naut mikilla vin-
sælda. Póló gaf út 14 lög.
Pálmi stofnaði Tónabúðina 1966
og seldi þar hljómplötur, hljóðfæri,
sjónvörp og fleira. Tónabúðin flutti
sjálf inn hljómplöturnar vegna þess
að flestir plötuinnflytjendur og ís-
lenskir útgefendur voru samnings-
bundnir annarri verslun á Akureyri.
Tónabúðin stofnaði eigin hljóm-
plötuútgáfu, Tónaútgáfuna, 1967.
Fyrstu plötur hennar
voru með Póló og
Bjarka og Póló og
Erlu. Alls gaf Tóna-
útgáfan út um 60
hljómplötur. Sumar
þeirra voru hljóðrit-
aðar erlendis eins og
Lifun, hljómplata Trú-
brots, og Þótt líði ár og
öld, með Björgvini
Halldórssyni, sem báð-
ar komu út 1971. Einn-
ig voru gefnar út plöt-
ur með vinsælum
flytjendum eins og
Flowers, Ævintýri og
Ragnari Bjarnasyni. Þá gaf Tóna-
útgáfan út fyrstu íslensku safnplöt-
una, Pop Festival ’70. Tónaútgáfan
setti upp hljóðver á Akureyri 1974.
Pálmi rak Tónabúðina í yfir 40 ár
þar til hún var seld 2007.
Pálmi var virkur í tónlistarlífinu í
um sjö áratugi og á seinni árum lék
hann reglulega fyrir eldri borgara á
Akureyri ásamt félögum sínum.
Eftirlifandi eiginkona Pálma er
Soffía Kristín Jónsdóttir. Börn
þeirra eru Haukur, Björk og Anna
Berglind. Barnabörnin eru níu.
Útför Pálma verður gerð frá Gler-
árkirkju þriðjudaginn 27. júlí kl.
11.00.
Andlát
Pálmi Stefánsson
í Tónabúðinni
Um leið og gosmistrið hvarf upp úr hádegi í gær,
og sást til sólar, fjölgaði gestum í Grasagarð-
inum í Laugardal, jafnt ungum sem öldnum.
Veðurspá næstu daga á höfuðborgarsvæðinu er
heldur þungbúin, en á morgun gæti aftur sést til
sólar, ef gosmóðan heldur sig fjarri.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Spókuðu
sig í grænum
Grasagarðinum