Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021 VIÐ LEITUM AÐ LISTAVERKUM Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is Konur eru mun líklegri til þess að styðja flokka á vinstri væng stjórn- málanna, en karlar eru líklegri til þess að halla sér til hægri. Eða, svo það sé orðað með öðrum hætti, þá sækja sumir flokkar sér fylgi með mjög misjöfnum hætti þegar litið er til kynferðis svarenda. Mun meira jafnvægi er í því hvernig fylgi ann- arra flokka skiptist milli kynjanna. Þetta má lesa úr niðurbroti á nið- urstöðum könnunar, sem MMR gerði í samstarfi við Morgunblaðið og mbl.is í liðinni viku. Vinstri-græn í sérflokki Langmest er ójafnvægið í fylgis- mannahópi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Samkvæmt könn- uninni studdu 10,7% svarenda flokk forsætisráðherra. Það gerðu hins vegar 18,6% kvenna, sem afstöðu tóku, en aðeins 5,1% karla. Það má orða með þeim hætti að ef kosið yrði nú myndu tæplega fjórir af hverjum fimm kjósendum Vinstri-grænna vera konur en aðeins einn þeirra karl. Kynjahallinn er ekki svo geigvæn- legur hjá Samfylkingu en mikill samt. Þar lætur nærri að á móti hverjum karli, sem kýs flokkinn, kjósi tvær konur hann. Einnig ójafnvægi hægra megin Slíkt ójafnvægi – nema á hinn veg- inn – má einnig finna á miðju stjórn- málanna og hægra megin við miðju, ekki án undantekninga þó. Þar er stjórnarandstöðuflokkurinn Viðreisn eins konar spegilmynd Samfylkingar. Fyrir hverja tvo karla, sem kváðust ætla að styðja Viðreisn, er aðeins ein kona sama sinnis. Sjálfstæðisflokkurinn, langstærsti flokkur á þingi, hlaut 24,6% fylgi í könnuninni. Hann á við sama vanda að etja og Viðreisn, þótt ekki sé það í sama mæli. Fyrir hverja þrjá karla, sem hyggjast kjósa flokkinn, eru tvær konur, sem það myndu gera ef kosið væri nú. Meira jafnvægi hjá öðrum Hjá öðrum flokkum, sem eiga möguleika á að ná kjöri á Alþingi, er jafnvægið meira. Hjá Pírötum er það nánast hnífjafnt, en hjá Miðflokki og Sósíalistum er það vafalaust innan skekkjumarka. Hinir síðarnefndu, líkt og Flokkur fólksins, mældust með rétt rúmlega 5% fylgi og óvar- legt að draga miklar ályktanir af því. Munur er hjá Framsókn en ekki verulegur. Misljósar ástæður Það er ekki auðvelt að greina ástæðurnar fyrir þessum mun á stuðningi flokka. Það er að vísu ekki nýmæli, hér frekar en annars staðar á Vesturlöndum, að konur halli sér frekar til vinstri en karlar í kjörklef- anum. Að einhverju leyti má vafa- laust rekja það til stefnumála, en svo er ekki ósennilegt að forystufólk og frambjóðendur höfði mismikið til kynjanna. Þessi feikilegi munur hjá Vinstri- grænum á e.t.v. ekki að koma alger- lega á óvart hjá yfirlýstum femín- ískum flokki þar sem konur fá tals- verða forgjöf í vali á lista. En það hlýtur að há þeim í kosningabaráttu og vera mikið umhugsunarefni. Hugsanlega mætti segja svipað um Samfylkingu og jafnvel bæta við að hún höfði frekar til opinberra starfsmanna en í einkageira, en kon- ur eru hlutfallslega líklegri til að starfa hjá hinu opinbera. Sem kynni þá að skýra muninn á hinn veginn hjá Sjálfstæðisflokknum, merkisbera einkaframtaksins, og Viðreisn sömuleiðis. Þar er hins veg- ar merkilegt að forystan er að mestu skipuð konum, sem virðast þó höfða hóflega til kynsystra sinna. Og hvað má þá segja um Miðflokk- inn, sem sætt hefur verulegri gagn- rýni yfirlýstra femínista en sækja sér samt fylgi jafnt til karla og kvenna? B Framsókn C Viðreisn D Sjálfstæðisflokkur M Miðflokkur P Píratar S Samfylking V Vinstrigræn F Flokkur fólksins J Sósíalistar Fylgi flokka skipt eftir kynferði úr spurningavagni MMR 8. - 14. júlí 0% 25% 50% 75% 100% KonurKarlar 0% 25% 50% 75% 100% KonurKarlar 0% 25% 50% 75% 100% KonurKarlar 0% 25% 50% 75% 100% KonurKarlar 0% 25% 50% 75% 100% KonurKarlar 0% 25% 50% 75% 100% KonurKarlar 0% 25% 50% 75% 100% KonurKarlar 0% 25% 50% 75% 100% KonurKarlar 0% 25% 50% 75% 100% KonurKarlar Mikill munur á afstöðu kynjanna - Aðeins einn karl styður Vinstri-græn fyrir hverjar fjórar konur - Skeikar einnig verulegu hjá bæði Viðreisn og Samfylkingu - Nokkur munur á stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn eftir kynferði Morgunblaðið/Eggert Kosningar Alþingiskosningar eru boðaðar 25. september. Samkvæmt nýrri könnun MMR eiga níu stjórnmálaflokkar möguleika á að ná inn þingmanni. 2021 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Vísindamenn Íslenskrar erfðagrein- ingar (ÍE) hafa kortlagt 243 erfða- breytileika sem tengjast fæðingar- þyngd, annars vegar í erfðamengi móður og hins vegar í erfðamengi fósturs. Rannsóknin varpar ljósi á flókið samspil erfðamengja móður og fóst- urs og tengsl háþrýstings og sykur- sýki við vöxt fósturs, að því er kemur fram í tilkynningu. Í grein sem birtist í vefútgáfu vís- indaritsins Nature Genetics í gær sýna vísindamenn ÍE hvernig 243 erfðabreytileikar, þar af 64 áður óþekktir, hafa áhrif á stærð barna við fæðingu, annars vegar í erfða- mengi móður og hins vegar í gegnum erfðamengi fósturs. Tengsl fæðingarþyngdar við sjúk- dóma hafa lengi verið þekkt en deilt hefur verið um hversu mikið þau tengjast erfðaþáttum einstaklings- ins og að hversu miklu leyti þau tengjast aðstæðum fósturs á með- göngu og þar með erfðaþáttum móð- ur. 400 þúsund gögn skoðuð Í rannsókninni voru gögn um arf- gerð rúmlega 400.000 barna, 270.000 mæðra og 60.000 feðra rannsökuð. Auk þess að rannsaka áhrif erfða- mengis barns, móður og föður á fæð- ingarþyngd voru áhrif á fæðingar- lengd og líkamsþyngdarstuðul barns við fæðingu einnig skoðuð. Alls fundust 243 erfðabreytileikar sem hafa áhrif á stærð barns við fæð- ingu og tókst að greina á milli áhrifa 141 þeirra úr erfðamengi móður ann- ars vegar og hins vegar úr erfða- mengi fósturs. Flestir hafa einungis áhrif úr erfðamengi fósturs og fyrir um fjórðung þeirra skiptir máli hvort þeir erfast frá föður eða móður en sumir hafa einungis áhrif á fæð- ingarþyngd ef þeir erfast frá föður og aðrir aðeins ef þeir erfast frá móður. Nánar á mbl.is. Flókin tengsl erfða og fæðingarþyngdar - Rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar AFP Erfðir Vísindamenn ÍE með nýja og athyglisverða rannsókn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.