Morgunblaðið - 20.07.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.07.2021, Qupperneq 14
BAKSVIÐ Hólmfríður María Ragnhildard. hmr@mbl.is A lls leituðu 827 ein- staklingar til Bjark- arhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, í fyrsta viðtal á árinu 2020 sem gerir 47,3% aukningu frá 2019. Heim- sóknum hefur því fjölgað töluvert í kjölfar heimsfaraldursins en í Bjarkarhlíð geta þolendur ofbeldis, af öllum kynjum, 18 ára og eldri, sótt áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýsingar. Úrræðið stóð fyrst til boða árið 2017 og hefur heim- sóknum fjölgað jafnt og þétt síðan þá. Ragna Björg Guðbrandsdóttir, félagsráðgjafi og teymisstjóri Bjarkarhlíðar, segir jákvætt að fleiri séu að leita sér aðstoðar en á sama tíma ömurlegt hve margir séu í þeirra stöðu að þurfa á þessu úrræði að halda. Segir hún erfitt að meta hvort aukninguna megi rekja með beinum hætti til fleiri ofbeldistilvika eða hvort fleiri séu nú tilbúnir að leita sér aðstoðar. Ragna bendir þó á að aðstæðurnar sem sköpuðust í heimsfaraldrinum séu til þess fallnar að auka ofbeldi, til að mynda vegna aukins atvinnu- leysis. Mikil vitundarvakning Ragna kveðst standa í þeirri trú að aukin vitundarvakning í samfélaginu gagnvart ofbeldi hafi einnig haft áhrif á fjölgun heim- sókna. Telur hún aukna umræðu valdefla fólk til þess að leita sér hjálpar. Bendir hún á að fjöldi fyrstu heimsókna hafi farið vaxandi í kjölfar seinni metoo-bylgjunnar í vor. Komu yfir 120 einstaklingar í fyrstu heimsókn í maí á þessu ári sem gerir hann stærsta mánuð frá opnun Bjarkarhlíðar. „Það hefur verið gríðarleg vit- undarvakning síðustu ár, ég held að það hjálpi til að fólk treysti sér að leita sér aðstoðar fyrr. Svo koma þessar metoo-byltingar og það koma alltaf nýir vinklar inn í umræðuna. Maður finnur það að fólk sem ætlaði að taka þetta á hnefanum gefur eftir og leitar að- stoðar.“ Heimilisofbeldi helsta ástæða Samkvæmt ársskýrslu Bjarkar- hlíðar komu að meðaltali 69 ein- staklingar í fyrsta viðtal í hverjum mánuði. Var júní annasamasti mán- uðurinn í fyrra, en þá komu 107 einstaklingar í fyrsta viðtal. Flestir sem leituðu sér aðstoðar voru á aldrinum 18-29 ára eða 234 ein- staklingar. Aðalástæða komu þjónustuþega var í miklum meirihluta heimilis- ofbeldi, en alls leituðu 456 ein- staklingar til Bjarkarhlíðar vegna þess, eða 61% af heildarfjölda þjónustuþeganna. 132 einstaklingar leituðu þangað vegna andlegs of- beldis og 107 vegna kynferðis- ofbeldis. Einungis 3% af þjónustuþegum flokkuðu gerandann sem „ókunn- ur“ en langflestir virðast þekkja þann sem beitti þá ofbeldi, voru gerendur ýmist flokkaðir sem mak- ar, skyldmenni, vinir eða vinnu- félagar, svo eitthvað sé nefnt. Þess má geta að flestir þjónustuþegar skilgreindu geranda sem fyrrver- andi maka, eða tæplega 46%. Hvað varðar kynjahlutfall þjónustuþega er fjöldi kvenna töluvert meiri en fjöldi karla, 686 konur leituðu til miðstöðvarinnar í fyrra, eða 83%, en einungis 140 karlar, eða 17%. Hlut- fallið er að sögn Rögnu svipað og í fyrra, en eitthvað hefur rétt úr kynjahallanum frá því að miðstöðin var opnuð árið 2017. Fleiri leita sér að- stoðar vegna ofbeldis 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Rödd skatt- greiðenda heyrist ekki mjög oft í um- ræðum um opinber fjármál, opinberan rekstur og opin- berar framkvæmdir. Þó er það svo að skattgreiðendur greiða fyrir öll opinber útgjöld á einn eða annan hátt, ef ekki með skattgreiðslum í dag, þá á morgun hafi skattgreiðslunum verið frestað með lántökum hins opinbera. Vissulega er það svo að stjórnmálamenn eru fulltrúar skattgreiðenda, því að skatt- greiðendur eru líka kjósendur, en stjórnmálamenn eru mjög misjafnlega meðvitaðir um það hlutverk sitt, enda skattgreið- endur dreifður og óskipulagður hópur en þeir sem krefjast auk- ins opinbers fjár eru afar vel skipulagðir. Þeir ná þess vegna iðulega mun meiri árangri en skattgreiðendurnir, sem sést best af því að opinber útgjöld og skattbyrði hafa almennt far- ið mjög vaxandi á síðustu ára- tugum, þó að undantekningar séu á. Vissulega eru flest verkefni hins opinbera til gagns, en það breytir því ekki að um þau þarf að vera stöðug umræða, ekki aðeins hvort að hið opinbera á að hafa þau með höndum held- ur einnig hvernig. Mjög oft eru tækifæri til að spara í opinber- um rekstri, til dæmis með því að hleypa einkaaðilum að rekstrinum þó að hið opinbera, þ.e. skattgreiðendur, borgi brúsann. Þá má spara með auknu aðhaldi. Framkvæmdir fara gjarnan tugum prósenta fram úr áætlunum og þó að slík óráðsía sé ef til vill mest sláandi hjá Reykjavíkurborg um þess- ar mundir eru einnig dæmi um þetta hjá ríkinu og öðrum sveit- arfélögum. Í Morgunblaðinu í gær var greint frá afkomu sveitarfélag- anna og sýnir hún mikið tap af rekstri sveitarsjóðanna og er þá ekki horft til margra stærstu fyrirtækja þeirra. For- maður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Aldís Hafsteins- dóttir, segir þetta mikið áhyggjuefni og er það ekki of- mælt. Hún bendir á að útsvars- tekjur dugi ekki fyrir heildar- launakostnaði, sem er grafalvarlegt mál. Þá segir hún styttingu vinnuvikunnar eiga eftir að reynast sveitarfélög- unum þungur baggi, nokkuð sem ekki hafi verið samið um þegar ákveðið var að breyta vinnutímanum. Þetta er auðvit- að stórundarlegt og hlýtur að kalla á endurskoðun við næstu kjarasamningagerð, en þangað til að minnsta kosti sitja sveit- arfélögin uppi með þessar „óvæntu“ hækkanir. Laun og launatengd gjöld hækkuðu á milli ára um 11,5% og að viðbættum lífeyr- isskuldbindingum nam hækkunin 13%. Augljóst er að skattgreiðendur geta ekki stað- ið undir slíkum hækkunum og verða sveitarfélögin, hvert fyr- ir sig og í sameiningu, að taka rekstur sinn til gagngerrar endurskoðunar, ekki aðeins með samtölum við verkalýðs- hreyfinguna vegna samninga sem fóru á annan veg en ætlað var, samkvæmt formanni sveit- arfélaganna, heldur einnig með endurskoðun á verkefnum og rekstrarformi. Sveitarfélögin hafa bersýnilega færst of mikið í fang og verða að finna leiðir til að draga úr útgjöldunum. Þeim má ekki standa til boða að fara dýpra í vasa íbúanna, skatt- greiðendanna. Í Morgunblaðinu í gær var einnig rætt við Skafta Harð- arson, formann Samtaka skatt- greiðenda, og var það um margt athyglisvert. Skafti bendir á þær auknu byrðar sem lagðar hafi verið á fyrirtækin í landinu með því að hengja stöð- ugt aukinn kostnað á launa- greiðslur, bæði með sífellt hækkandi mótframlagi í lífeyr- issjóði og með launatengdum gjöldum á borð við trygginga- gjald. Hann bendir á að þegar tryggingagjaldið hafi verið hækkað á sínum tíma hafi það átt að vera tímabundið til að bregðast við auknu atvinnu- leysi, en þegar atvinnuástandið hafi batnað hafi trygginga- gjaldið aðeins lækkað lítillega. „Það sannast hér einu sinni enn að fátt er jafn varanlegt og tímabundnir skattar,“ segir Skafti. Hann bendir einnig á tölur frá Hagstofunni frá því í fyrra um meðallaunþega, en þær sýni að launin séu aðeins um 74% af kostnaði vinnuveitandans við starfsmanninn og að starfs- maðurinn fær í sinn vasa ein- ungis 56% af heildarkostnaði launagreiðandans. Augljóst er að eitthvað hefur farið úr skorðum þegar laun- þegi með meðallaun fær aðeins rúmlega helming launakostn- aðarins í eigin vasa. Um leið sýna þessir útreikningar að það er eftir miklu að slægjast fyrir skattgreiðendur, sem einnig eru launþegar, að unnið sé að því að spara í opinberum rekstri og að lækka skatta og aðrar álögur. Almenningur gleymir því allt of oft að hann er, ekki aðeins um mánaðamót heldur alla daga og oft á dag, einnig skattgreiðandi. Þessu hlutverki ætti hann að huga mun betur að. Geri hann það ekki er mjög óvíst að aðrir verði til þess. Vöxtur og halla- rekstur hins opin- bera er verulegt áhyggjuefni} Rödd skattgreiðenda F rá upphafi var ljóst að viðbrögð við Covid-19-faraldrinum myndu fela í sér bæði efna- hagslegan og samfélagslegan kostnað. Þrátt fyrir það tók þjóðin þátt og fólk gerði sitt besta. Fólk áttaði sig á því að hér var vágestur á ferð og utanaðkomandi aðstæður gerðu það að verkum að eðlilegt líf fór úr skorðum. Veiran virðir ekki landamæri og allra síst ákvarðanir stjórnvalda. Með öðrum orðum: ríkisvaldið hefur ekki burði til að útrýma henni. Aftur á móti urðu markmið ríkisvaldsins að vera ljós fyrst hefta þurfti frelsi einstaklinga og skerða starfsemi fyr- irtækja. Og markmiðin voru skýr. Komið skyldi í veg fyrir að hættuástand skapaðist og heilbrigðiskerfið verndað þannig að það réði við það hlutverk sitt að sinna þeim sem veiktust. Það væri – og er enn – óraunhæft markmið að útrýma veirunni. Snemma í vor kynnti ríkisstjórnin áætlun um af- léttingu takmarkana samhliða bólusetningu lands- manna. Sóttvarnayfirvöld út um allan heim lögðu áherslu á bólusetningar og það gerðum við einnig hér á landi. Þar sem markmiðin voru skýr og vel kynnt hélst samstaðan í landinu. Fólk sýndi aðgerðum stjórnvalda skilning og tók vel í hvatningu um að mæta í bólusetningu. Nú hefur okkur tekist að bólu- setja tæplega 90% fullorðinna landsmanna. Vegna þess árangurs var öllum takmörk- unum innanlands aflétt í lok júní. Nýtt afbrigði veirunnar hefur nú gert vart við sig. Við vissum að sú staða gæti komið upp og líklegt má teljast að veiran sé komin til að vera í einhverri mynd. Lönd sem lengst hafa gengið í lokun landamæra eru að glíma við smit og við verðum að horfast í augu við að við mun- um ekki koma í veg fyrir að hún berist hingað. Staðan er aftur á móti allt önnur en hún var fyrir rúmu ári, bæði hér og erlendis. Stærstur hluti fólks á Íslandi og í ná- grannalöndum er bólusettur og hættan á að alvarleg fjöldaveikindi verði heilbrigð- iskerfinu ofviða er ekki lengur fyrir hendi miðað við þær upplýsingar sem okkur voru kynntar af sóttvarnayfirvöldum víða um heim. Al- menningur hefur tekið á sig margvíslegar byrðar síð- astliðið ár sem hefur skilað okkur þeim góða árangri sem að var stefnt. Staðan nú kallar því ekki á íþyngj- andi aðgerðir, heldur að við treystum fólki til að meta hvernig það hagar sínum eigin sóttvörnum, byggt á þeirri reynslu sem við höfum öll aflað okkur undanfarin misseri. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Breytt staða í heimsfaraldri Höfundur er dómsmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen 827 einstaklingar komu í fyrsta viðtal í Bjarkarhlíð árið 2020. Algengast var að þjón- ustuþegar væru á aldrinum 18- 29 ára en alls voru 234 í þeim aldurshópi. Næst á eftir var 30-39 ára aldurshópurinn en í honum voru 228 þjónustu- þegar. Fjöldinn fór lækkandi eftir aldri en einungis 10 ein- staklingar eldri en 70 ára leit- uðu til Bjarkarhlíðar. Aldur ger- enda var almennt hærri en þolenda, þar var stærsti ald- urshópurinn 40-49 ára, í hon- um voru 224. Þar á eftir var aldurshópurinn 30-39 ára en í honum voru 209 ger- endur. Gerendur á aldr- inum 18-29 ára voru 125. Þess má geta að yfir 600 einstaklingar hafa leitað til mið- stöðvarinnar í ár og því má áætla að árið 2021 sýni enn hærri töl- ur. Gerendur eldri þolendur FLESTIR ÞJÓNUSTUÞEGAR Á ALDRINUM 18-29 ÁRA Ragna Björg Guðbrandsdóttir Aðalástæðakomuþjónustuþega til Bjarkarhlíðar Árið 2020 Heimild: Bjarkarhlíð Heimilisofbeldi 61% Andlegt ofbeldi 18% Kynferðislegt ofbeldi 14% Líkamlegt ofbeldi 2% Fjárhagslegt ofbeldi 1% Annað 4%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.