Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021 ✝ Sigrún Árna- dóttir fæddist á Vopnafirði 6. sept- ember 1927. Hún lést á Landspítala 9. júlí 2021. Foreldrar henn- ar voru Aagot Fougner Vilhjálms- son húsmóðir, f. 1900, d. 1995, og Árni Vilhjálmsson héraðslæknir, f. 1894, d. 1977. Sigrún var fimmta í röð ellefu systkina, þau eru: Snorri, f. 1921, d. 1972, Kjartan, f. 1922, d. 1978, Árni, f. 1924, d. 2002, Kristín Sigríður, f. 1926, d. 2017, Valborg, f. 1930, d. 2018, Vilhjálmur, f. 1933, d. 2017, Aagot, f. 1935, Rolf Fougner, f. 1937, d. 2014, Aðal- björg, f. 1939, d. 2015, og Þór- ólfur, f. 1941. Sigrún giftist 1952 Óskari Halldórssyni kennara, f. 1921, d. 1983. Hann var sonur Halldórs Einarssonar bónda, f. 1891, d. 1969, og Jónu Jónsdóttur ljós- móður, f. 1888, d. 1973. Börn Sigrúnar og Óskars eru: 1) Árni, f. 1954. Hann var kvæntur Önnu Láru Lárusdóttur og eru synir þeirra a) Tumi, f. 1991, í sambúð með Brynju Hjálmsdóttur, og b) Bergur, f. 1994. 2) Jóna Dóra, f. fjarðar 1944-46, Húsmæðra- skóla Suðurlands 1949-50 og Laugarnesskóla 1950-51, var ritstjóri Alþingistíðinda á skrif- stofu Alþingis 1974-91 og sjálf- stætt starfandi þýðandi frá 1980. Hún sat í útgáfustjórn Húsfreyjunnar 1953-57, var rit- stjóri Efri áranna 1995-96 og í blaðstjórn ritsins Listin að lifa 1997-99. Þá annaðist hún próf- arkalestur fyrir ýmis bóka- forlög alla starfsævi. Eftir Sigrúnu liggja fjölmarg- ar þýðingar, ekki síst á barna- bókum. Má þar nefna bókaflokk- inn um Einar Áskel eftir Gunillu Bergström, ýmsar sögur eftir Astrid Lindgren, fjölda bóka í flokknum Ævintýraheimurinn og bækurnar Kapalgátan og Appelsínustúlkan eftir Jostein Gaarder, en fyrir þær síðast- nefndu hlaut hún verðlaun menntaráðs (áður fræðsluráðs) Reykjavíkurborgar. Hún hlaut einnig viðurkenningu Barna- bókaráðsins, Íslandsdeildar IBBY 1996 og var tilnefnd á heiðurslista sömu samtaka 1998. Árið 2020 hlaut hún norræn þýðingarverðlaun Letter- stedtska sjóðsins og hún var sæmd riddarakrossi hinnar ís- lensku fálkaorðu fyrir þýðing- arstörf og framlag til íslenskrar barnamenningar. Útför Sigrúnar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 20. júlí 2021, klukkan 15. 1956, gift Ferenc Bokány. Dóttir þeirra er Theresa, f. 1984, gift Jo- hannesi von Bülow og eiga þau Fried- rich Wilhelm, f. 2014, og Juliu Sig- nýju, f. 2021. 3) Völ- undur, f. 1956, kvæntur Sigrúnu Kristjánsdóttur. Börn þeirra eru a) Sunnefa, f. 1985, hún á Sölku, f. 2013, með Birni Reynissyni; b) Óskar, f. 1990. 4) Aagot Vigdís, f. 1957, gift Garðari Guðmunds- syni. Börn þeirra eru a) Sigrún Inga, f. 1990, gift Thomasi Birch og eiga þau Brynjúlf Garðar, f. 2017, og Þoku Kym, f. 2019; b) Gunnlaugur, f. 1993. 5) Svan- hildur, f. 1964. 6) Hrafnkell, f. 1969, kvæntur Elínu Vignis- dóttur. Synir þeirra eru a) Kjartan, f. 2004, og b) Þorbjörn, f. 2006. Sigrún gekk í barnaskóla á Vopnafirði og stundaði nám í 2. og 3. bekk MA 1942-44. Hún lauk prófi frá Húsmæðrakenn- araskóla Íslands 1948, stúdents- prófi utanskóla frá MR 1952 og fyrri hluta prófi í íslenskum fræðum frá HÍ 1956. Sigrún kenndi við Barnaskóla Vopna- Hún Sigrún, tengdamóðir mín og nafna, var einstök mannkosta- manneskja. Hún var hæglát og hógvær en líka víðsýn og vitur og afar skemmtileg í samræðum. Engri manneskju hef ég kynnst sem las jafn mikið enda valdi hún sér búsetu á efri árum á Vest- urgötunni, aðallega vegna ná- lægðar við bókasafnið. Okkar fyrstu kynni voru ánægjuleg, ekki síst fyrir þær sakir að móðir mín og hún höfðu þekkst vel í barnæsku, ólust upp í barna- skara á Vopnafirði, og endurnýj- uðu nú þau góðu kynni. Sigrúnu fylgdi ætíð mikið af börnum, bæði gætti hún yngri systkina sinna á æskuheimilinu og síðar eignaðist hún sjálf sex börn. Barnabörnin hafa átt góðan vin í ömmu sinni sem hefur gætt margra þeirra og menntað með samræðum, bóklestri og löngum setum við orðaleikinn skrafl. Einar Áskell, Disneybækurnar, Ólátagarðurinn og allar hinar voru mikið lesnar og börnunum þótti ekki leiðinlegt að þeirra eig- in amma hefði þýtt bækurnar úr ókunnu tungumáli. Sigrún var sérlega natin og umhyggjusöm við börnin og næm á þarfir þeirra enda sóttu þau í að heim- sækja hana alla tíð. Ekki er hægt að tala um tengdamömmu án þess að nefna handavinnuna en hún var einstaklega flink í hönd- unum. Lopapeysurnar sem hún prjónaði á alla fjölskylduna eru dásamlegar og ekki má gleyma öllum sokkunum og vettlingun- um sem voru hluti af svokallaðri gjörnýtingarstefnu en Sigrún var afar nýtin og prjónaði úr hverjum spotta sem til féll. Sig- rún sinnti hverju verki af alúð og jafnvel viðgerðir á hnjám á bux- um barnanna voru eiginlega listaverk út af fyrir sig. Ég kveð kæra tengdamóður mína með þakklæti fyrir allar góðu sam- verustundirnar og ástúðina sem hún sýndi mér og minni fjöl- skyldu alla tíð. Sigrún vaknaði upplyft og glöð eftir síðustu nótt- ina sem hún lifði því hana dreymdi að hún væri komin á yndislegan sólríkan stað sem ég vona og trúi að hún sé nú komin til. Sigrún. Ég er ein af mörgum sem dottið hafa í þann makalausa lukkupott að fá að kynnast Sig- rúnu Árnadóttur. Ég kynntist henni þegar ég fór að slá mér upp með Tuma mínum, barna- barni Sigrúnar. Sjálf kvaddi ég báðar mínar ömmur og hefði aldrei dottið í hug að ég yrði svo lánsöm að eignast glænýja ömmu. Sigrún var stórkostleg kona sem aldrei hætti að koma á óvart með stanslausri visku og hæfi- leikum. Geislandi af hreysti, gáf- um og þokka sagði hún mikil- vægar og merkilegar sögur, snerist í kringum gesti, prjónaði, þýddi og matreiddi dæmalaus listaverk, fór með heilu kvæða- bálkana eins og ekkert væri eðli- legra. Hún kunni einhvern veg- inn allt, hægt væri að halda langa tölu um öll hennar afrek, en það sem mér þótti umfram allt ein- kenna Sigrúnu var hvað hún var skelfilega skemmtileg mann- eskja! Það er verðmætt og auðmýkj- andi að hafa fengið að njóta góðra stunda með öðrum eins ljósgeisla. Efst í huga er þakk- læti fyrir minningarnar, þær lifa í hverri jómfrúarferð, hverjum púrtvínsdreitli. Ó, gætu þeir séð sem að syrgja og missa þá sannleikans gleði sem óhult er vissa, að bönd þau sem tengja’ okkur eilífð ná yfir, að allt sem við fengum og misstum það lifir. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum) Brynja Hjálmsdóttir. Með virðingu minnist ég Sig- rúnar Árnadóttur, vinkonu minn- ar, og þakka góð kynni og eft- irminnilegar samverustundir í rúm sextíu ár. Leiðir okkar lágu saman vegna þess að eiginmenn okkar voru æskuvinir að austan og hér á mölinni myndaðist sam- heldinn vinahópur. Sigrún var bráðgreind kona, svo eftir var tekið, heilsteypt og göfuglynd. Og eftir því sem meira á reyndi kom æ betur í ljós hvert gull af manni hún var. Al- veg fram til hins síðasta. Eftir að fólk úr okkar innsta hring var horfið af sviðinu og eft- ir að störfum okkar Sigrúnar og Jónu Kristjánsdóttur á vinnu- markaðnum lauk fékk samvera okkar og vinátta aukið vægi. Stundum bauð Sigrún okkur Jónu að gista. Þáðum við það með þökkum og fengum höfðing- legar móttökur. Lausar undan skyldum og ábyrgð urðum við ungar í annað sinn. Nutum þess að spjalla og spá í lífið og til- veruna í ró og næði. Ræddum málin og glöddumst saman. Þetta voru góðar samverustund- ir. Þótt Sigrún væri alltaf svo hófsöm og laus við öfgar, þá kunni hún vel að njóta lífsins og skapa góðar samverustundir. Hún kunni listina að lifa. Eitt sinn vorum við Sigrún báðar svo lánsamar að komast í ferð með starfsliði Árnastofnun- ar á söguslóðir á skosku eyjunum og víðar. Þess var gaman að minnast. Eftir útför Jónu Kristjáns- dóttur í janúar síðastliðnum, í samkomubanni og einangrun, héldum við Sigrún heim til henn- ar á Vesturgötuna, þar sem við tvær héldum erfi að okkar hætti og minntumst vinkonu okkar. Úti var kuldi og myrkur og þá var notalegt að sitja inni í hlýjunni við kertaljós og minnast þess liðna og þess sem skiptir máli. Aldrei bar skugga á samband okkar Sigrúnar og vinátta okkar þróaðist fallega fram á síðasta dag. Þakklát er ég fyrir kveðju- stund okkar Sigrúnar, en tveim- ur dögum áður en hún kvaddi þennan heim náðum við að tengj- ast og kveðjast og þakka hvor annarri fyrir dýrmæta vináttu. Það var ljúf og tregablandin stund. Skammt hefur verið stórra högga á milli í gamla tryggða- vinahópnum okkar, en á níu mán- aða tímabili hafa þau Hörður Bergmann, Jóna Kristjánsdóttir og Sigrún Árnadóttir öll horfið yfir móðuna miklu á þessum und- arlegu tímum heimsfaraldurs og náttúruhamfara. Maður reynir að telja í sig kjark og þakkar fyr- ir allt og allt. Gráttu ekki yfir góðum liðnum tíma. Njóttu þess heldur að ylja þér við minningarnar, gleðjast yfir þeim og þakka fyrir þær með tár í augum, en hlýju í hjarta og brosi á vör. Því brosið færir birtu bjarta, og minningarnar geyma fegurð og yl þakklætis í hjarta. (Sigurbjörn Þorkelsson) Börnum og ástvinum Sigrúnar sendi ég og fólkið mitt hugheilar samúðarkveðjur. Minning Sigrúnar Árnadóttur lifir. Rannveig Jónsdóttir. Sigrún Árnadóttir ✝ Guðmundur Ágúst Brynj- ólfsson fæddist í Hafnarfirði 18. júlí 1935. Hann lést á heimili sínu, Aðal- götu 5 í Keflavík, 6. september 2020. Foreldrar hans voru Jóhanna Guð- mundsdóttir hús- móðir, f. 14.2. 1914, d. 18.12. 1993, og Brynjólfur Brynj- ólfsson frá Brekku á Ingjalds- sandi, f. 22.2. 1909, d. 1.7. 1996. Bræður hans eru Einar, f. 18.12. 1937, Birgir, f. 1.7. 1940, Árni, f. 11.1. 1945, og Sigurður, f. 19.3. 1948. Eiginkona Guðmundar var Ósk Sólrún Kristinsdóttir, f. 19.7. 1935, d. 18.8. 2016. For- eldrar hennar voru Sæunn Jóns- dóttir, f. 9.4. 1917, d. 31.5. 2009, og Kristinn Stefánsson, f. 14.8. 1916, d. 6.8. 1967. Systkini henn- ar eru Heiðar, f. 5.8. 1942, Þór- unn, f. 11.4. 1947, Auður, f. 23.7. 1951, Guðbjörg, f. 1.9. 1953, d. 22.8. 1997, og Guðrún, f. 6.6. 1956. Guðmundur og Ósk eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Hildur, f. 1.10. 1958, d. 10.10. 2020, dóttir hennar Sonja, f. 1982, dóttir Sonju er Cassandra, f. 2000, bú- settar í Bandaríkjunum. 2) Sig- urjón, f. 31.12. 1959, maki hans Þórdís. 3) Jóhanna, f. 25.10. 1962, búsett í Bandaríkjunum, maki hennar er Bill Sells, börn hennar eru Lilja Dögg, f. 1981, Dagbjört Eva, f. 1990, og Alex- inkonu hans fór að hraka fluttu þau úr Höfnunum í íbúð á Aðal- götu í Keflavík og bjó hann þar þangað til hann lést. Hildur Guðmundsdóttir fædd- ist í Reykjavík 1. október 1958. Hún lést á heimili sínu í Flórída 10. október 2020. Foreldrar hennar voru Ósk Sólrún Kristinsdóttir, f. 19.7. 1940, d. 18.8. 2016, og Guð- mundur Ágúst Brynjólfsson, f. 18.7. 1935, d. 6.9. 2020. Hildur var elst þriggja systkina, hin eru Sigurjón, f. 31.12. 1959, og Jó- hanna, f. 25.10. 1962. Hildur eignaðist eina dóttur, Sonju Ósk, f. 22.12. 1982, og dóttir hennar er Cassandra, f. 13.12. 2000. Báðar búsettar í Bandaríkjunum. Hildur útskrifaðist með við- skiptapróf frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og var á tímabili verktaki hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Hún var líka lærð saumakona og saumaði margt fallegt um ævina. Hún fluttist til Bandaríkjanna 1994 og ferðaðist þar mikið um og bjó meðal annars í Tennessee, Monterey í Kaliforníu, Road Isl- and, Washington DC og Flórída, sem var hennar uppáhaldsstaður og bjó hún þar þangað til hún lést. Hún átti stóran þátt í uppeldi dótturdóttur sinnar Cassöndru, sem var augasteinninn hennar. Útför Guðmundar og Hildar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafn- arfirði í dag, 20. júlí 2021, klukk- an 15. ander Thor, f. 1998. Maki Lilju er Ólafur Ingólfsson og eiga þau þrjú börn; Elísabetu Dagmar, f. 2001, Hildi Ósk, f. 2006, og Vil- helmínu Ágústu, f. 2011. Guðmundur og Ósk kynntust 1956 og hófu búskap í Kópavogi og Hafnarfirði. Þau fluttu síðan að Bræðraborg í Höfnum, nú Reykjanesbæ, sem var heimili þeirra um árabil. Guðmundur var lærður vélvirki og vann lengi við það. Hann hóf vinnu hjá Ís- lenskum aðalverktökum á Kefla- víkurflugvelli fljótlega eftir flutning út í Hafnir, og um tíma vann hann fyrir ferðaþjónustu Úlfars Jacobsen sem bílstjóri á eldhúsbílnum og Ósk kona hans var kokkur. Eftir það vann hann við skrifstofustörf hjá varnar- liðinu þar til hann fór á eftirlaun. Guðmundur var virkur í sveitarstjórnarmálum í Hafna- hreppi og var í hreppsnefnd frá 1974 til 1994 og oddviti frá 1982 til 1986. Eins var hann í björg- unarsveitinni Eldey og var for- maður hennar í nokkur ár. Eftir að heilsu Óskar eig- Mig langar til að minnast mágs míns Guðmundar og Hild- ar dóttur hans og frænku minn- ar í nokkrum orðum. Útför þeirra fer fram í dag. Guðmundi kynntist ég sem barn þegar hann og Ósk Sólrún, elsta systir mín, urðu kærustu- par. Við áttum heima í húsinu Skeifu í Blesugróf og Guðmund- ur kom reglulega að sækja Ósk sína, á nýbónuðum glæsilegum bíl sem vakti athygli krakkanna í nágrenninu því bílar voru þá á fæstum heimilum. Ýmislegt var þó að breytast, nýir tímar í tón- list og tísku. Tónlistin var rokk og tískan var gallabuxur, hring- skorin pils og pinnahælar. Gummi var mikill töffari með dökkt liðað hár og Presley- greiðslu og þau Ósk glæsilegt par. Svo fæddist fyrsta barn þeirra, dóttirin Hildur, 1958. Það er mér ógleymanleg stund þegar þau komu heim í Skeifu beint af spítalanum, ég stóð við vögguna, sjö ára gömul og horfði á litla barnið með mikla svarta hárið. Fljótlega eignuð- ust Ósk og Gummi soninn Sig- urjón 1959 og síðan Jóhönnu 1962. Þegar börnin voru orðin tvö var talið að ég gæti aðstoðað Ósk systur með börnin eða snú- ist smávegis á heimili þeirra í Hafnarfirði sem mér fannst að sjálfsögðu spennandi. Gummi var við vinnu sína sem vélvirki allan daginn og ekkert fæðing- ar- eða feðraorlof komið í um- ræðuna. Þegar fjölskyldan flutti í Hafnir á Reykjanesi sá ég mik- ið eftir þessari samveru með börnunum sem ég hafði tengst nánum vináttuböndum. Það voru líka alltaf gleðistundir þegar Ósk og Gummi komu í heimsókn með barnahópinn til okkar í Skeifu, Gummi oft með Jóhönnu litlu á handlegg og hin skoppuðu með. Hann tók fallegar myndir og framkallaði sjálfur, bæði af sínum börnum og fleirum í fjöl- skyldunni. Þegar systkinin þrjú voru komin vel á legg skipulagði ég leikhúsferðir á barnaleikrit með þeim og Gummi taldi ekki eftir sér að skutlast með okkur eftir þörfum. Árin liðu, við tók nám og störf, ég fylgdist nú meira úr fjarlægð með systkinunum enda búsett í öðrum landsfjórðungi. Þegar farið var til Reykjavíkur var gjarnan skroppið í Hafnir. Sameiginlegt áhugamál manns- ins míns, Svavars, og Gumma voru bílar enda höfðu báðir ekið rútubílum um landið. Hildur útskrifaðist með við- skiptapróf frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún vann á tímabili á Keflavíkurflugvelli og skrif- stofustörf urðu hennar starfs- vettvangur alla tíð. Hún var líka lærð saumakona og saumaði margt fallegt um ævi sína. Hún var kraftmikil og vinnusöm við hvaðeina sem hún tók sér fyrir hendur. Hildur eignaðist eina dóttur, Sonju Ósk, dóttir hennar er Cassandra. Hildur fluttist til Bandaríkj- anna 1994, þá 36 ára. Hún ferð- aðist víða um Bandaríkin og bjó í Tennessee, Monterey í Kali- forníu, Rhode Island, Wash- ington DC og Flórída sem var hennar uppáhaldsstaður. Hún bjó alltaf í nágrenni við barna- barnið sitt Cassöndru sem var hennar augasteinn og tók virkan þátt í uppeldi hennar. Mér er minnisstætt síðasta símtal mitt við Hildi frænku mína, hún var stödd á Íslandi um hávetur, næst ætlaði hún að koma að sumri til og við ákveðnar í að hittast. Það símtal er góð minn- ing um góða frænku. Guð blessi minningu þeirra. Auður B. Kristinsdóttir. Guðmundur Brynjólfsson og Hildur Guðmundsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.