Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 24

Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021 HÁDEGISMATUR alla daga ársins Bakkamatur fyrir fyrirtæki og mötuneyti Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum, sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt, einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum. Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is SKÚTAN Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú gleðst yfir því að öldurnar hef- ur lægt og allir eru á eitt sáttir. Oft er það svo að hlutir fara úrskeiðis af því að einhver smáatriði eru óljós eða hafa ekki verið könnuð. 20. apríl - 20. maí + Naut Það er til þín horft um forystu í ákveðnu máli. Nú er komið að þér að leita eftir greiða hjá vini, sem þú hefur oft hjálpað. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú þarft að sýna lipurð og sam- starfsvilja til þess að fá aðra á þitt band. Reyndu að deila völdunum. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Áður en þú samþykkir einhverja ákvörðun, skaltu komast að kostnaðinum. Gefðu þér kost á að njóta lífsins og vera líkt og barn. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Sjálfstraust þitt er í miklum blóma því starf þitt skilar þeim árangri sem þú ætlaðir. Að skiptast á einhverju við systk- in getur verið sérstaklega umbunandi. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er eitt og annað sem þú hefur látið sitja á hakanum að undanförnu. Hvort heldur það er á þínu áhugasviði eða annars staðar. 23. sept. - 22. okt. k Vog Stundum liggja réttu svörin í augum uppi, en stundum þarf að leita vandlega til þess að finna réttu rökin til áfram- halds. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú stendur á tímamótum og ættir ekki að líta um öxl. Sýndu skoð- unum annarra virðingu. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Ást er greinilega mikilvægur þáttur í því að halda samböndum saman. Nýttu þér meðbyrinn en mundu að skjótt skipast veður í lofti. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú ert í rómantískum hug- leiðum og ættir að gera þér glaðan dag með ástvini þínum. En þótt ævintýra- mennskan sé freistandi er rétt að sýna fyrirhyggju. Haltu þínu striki varðandi önnur mál. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú hefur mikla þörf fyrir að flýja á vit dagdraumanna í dag. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Gerðu eitthvað til að gleðja vini þína í dag. Reyndu að fara þér hægar og klára þau verkefni, sem þú byrjar á. þangað sækjum við í orkuna, kraftinn og kyrrðina.“ Sigrún Edda hefur alla tíð haft gaman að alls kyns félagsstörfum en síðustu ár hefur hún lagt vinnu og metnað í foreldrastarf og gegnt trún- aðarstörfum á þeim vettvangi. „Það má kannski segja að ég komi úr gras- rót foreldrasamfélagsins.“ Hún hefur verið bekkjarfulltrúi og gegnt for- mennsku í foreldrafélagi Álftanes- skóla samhliða því að vera formaður og varaformaður Grunnstoða, sem eru svæðasamtök og samráðsvett- vangur foreldrafélaga í Garðabæ. „Undanfarin ár hef ég setið í stjórn Heimilis og skóla og er í dag formað- Æskuheimili mitt á Suðureyri var mjög gestkvæmt og ósjaldan var þar fólk bæði í mat og gistingu, ráð- herrar, þingmenn, frænkur og frænd- ur sem og fjölmargir aðrir. Ég get ekki annað en dáðst að móður minni og hvernig hún náði að galdra fram hverja veisluna á fætur annarri en það er ekki eins og það hafi verið hægt að hlaupa út í búð í hvert sinn er óvænta gesti bar að garði.“ Sigrún Edda og Eyþór eiga lítið hús fyrir vestan og hafa verið mjög dugleg að fara vestur. „Þetta er okk- ar Costa del Súgandi enda fimm tíma akstur líkt og að fljúga til Spánar. Vestfirðirnir hafa mikinn sjarma og S igrún Edda Eðvarðsdóttir fæddist á Ísafirði 20. júlí 1971. Hún ólst upp á Suð- ureyri við Súgandafjörð og gekk í Grunnskóla Suð- ureyrar. Fimmtán ára gömul fór hún í Hérðaðsskólann í Reykholti í Borgar- firði þar sem hún tók 9. bekkinn svo- kallaða. „Mér er sérstaklega minnis- stæð breytingin að koma úr litlu sjávarþorpi þar sem undirlendi er lít- ið yfir í stórt landbúnaðarhérað eins og Borgarfjörð. Ég hafði alist upp við að fá fisk flesta daga vikunnar en fékk þar fisk einu sinni í viku og kjötmeti alla aðra daga.“ Fyrstu tvö árin í framhaldsskóla fór hún í Héraðsskól- ann á Núpi í Dýrafirði 1987-1989 og þaðan lá leiðin í Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki þar sem hún útskrifaðist árið 1992. „Þá tók ég mér smá frí frá námi, fór aftur vestur, kynntist mann- inum mínum og síðan þegar ég ákvað að halda áfram að mennta mig þá fluttum við suður eins og oft vill verða og höfum verið hér síðan.“ Sigrún Edda lauk síðan námi í uppeldis- og menntunarfræðum með félagsráðgjöf sem aukagrein frá Háskóla Íslands árið 1998 og MS-námi í mannauðs- stjórnun árið 2009. „Við Eyþór byrjuðum að búa á Suð- ureyri fyrir tíma jarðganganna undir Botns- og Breiðadalsheiði en Eyþór stundaði sína vinnu á Ísafirði. Ég held að hann hafi á þeim tíma prófað flesta mögulega samgöngumáta hvort sem það voru snjósleða- eða snjóbílaferðir frá Botni, eða að bakka upp Botns- heiðina á framhjóladrifsbíl eða fá far með Fagranesinu eða Djúpbátnum til Ísafjarðar. Yfir snjóþyngstu mánuð- ina held ég að hann hafi sjaldnast náð að mæta til vinnu á mánudegi en komst þó nægilega tímanlega til að ná að prenta Bæjarins bestu sem kom þá út um miðja viku.“ Sigrún Edda segir það ómetanlegt að hafa alist upp í litlu sjávarþorpi eins og Suðureyri þó því hafi fylgt í þá daga að þurfa að fara snemma að heiman í nám og þá gjarnan í heima- vistarskóla fjarri heimahögunum. „Maður kom heim um jól og páska og nýtti iðulega þann tíma sem og sumr- in til að vinna sér inn pening fyrir næsta skólaár. ur samtakanna og hef verið frá árinu 2018. Samhliða þessu gegni ég einnig formennsku í NOKO, sem eru sam- tök foreldrafélaga á Norðurlöndum. Skólamál eru mér mjög hugleikin sem og samskipti og samstarf heimila og skóla sömuleiðis.“ Þau hjónin settu í byrjun þessa árs á laggirnar verksmiðju í Hafnarfirði sem ber heitið Umbúðagerðin og þar framleiða þau pappakassa eða um- búðir úr bylgjupappa. „Engin slík verksmiðja hefur verið starfandi hér- lendis eftir að Kassagerð Reykjavík- ur var og hét og bindum við vonir við að geta þjónustað minni og meðalstór fyrirtæki. Allir sem eru í framleiðslu þurfa einhvers konar umbúðir eða kassa, bæði til að verja sína vöru og eins til að koma sínum vörum til og frá. Við byrjuðum í janúar í þessum rekstri sem ég stýri en samhliða eig- um við og rekum annað fyrirtæki sem heitir Prentmiðlun sem maðurinn minn stofnaði og hefur rekið frá árinu 2008. Það fyrirtæki sér m.a. um að þjónusta bóka- og tímaritaútgef- endur um prentun en segja má að við séum einn stærsti innflytjandi bóka- og tímarita á landinu í dag.“ Sigrún Edda hefur starfað við fræðslu, ráðningar og mannauðs- tengd verkefni að stórum hluta á sín- um starfsferli og starfaði m.a. hjá Delta og síðar Actavis og hjá Sam- Sigrún Edda Eðvarðsdóttir framkvæmdastjóri Umbúðagerðarinnar – 50 ára Fjölskyldan Útskrift Eðvarðs Þórs sem byggingarfræðings 2020. Fv.: Val- gerður Eyja, Eyþór Páll, Sigrún Edda, Eðvarð Þór, Aníta Hlín og Bjarni Geir. Okkar Costa del Súgandi Foreldraverðlaun Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra og Sigrún Edda, formaður Heimilis og Skóla ásamt Eydísi Heiðu Njarðardóttur, Oddnýju Sturludóttur og Kristínu Jónsdóttur, að afhenda verðlaunin 2020. Hjónin Sigrún Edda og Eyþór Páll að gera upp Costa del Súganda. Til hamingju með daginn 50 ÁRA Árdís Hulda fæddist á Egilsstöðum og ólst upp á Brimnesi í Fáskrúðsfirði. „Ég elst upp á sveitabæ og á þar sex systkini og ég átti ynd- islega æsku í sveitinni. Þegar systkinin urðu sextán ára fóru þau suður til að mennta sig. Ég er yngst af okkur systkinunum svo ég þekkti ekkert annað. En ég átti mjög góðan stuðn- ing í mínum foreldrum og systkinum og þegar ég hugsa til baka sé ég að ég varð bara miklu sjálfstæðari fyrir vikið.“ Árdís fór í Flensborgarskól- ann í Hafnarfirði og síðan í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 1998. Þá var haft samband við hana frá heimahögunum, en það var verið að opna nýtt hjúkrunarheimili á Fáskrúðsfirði og þar bráð- vantaði hjúkrunarfræðing. „Ég fer þá austur, nýútskrifuð, og opna þetta hjúkrunarheimili 1999 og er svo þar í níu ár.“ Þá var kominn tími til að breyta til og hún fór í diplómanám í opinberri stjórnsýslu í heilbrigðisgeiranum og er þá ráðin til Hrafnistu sem fræðslu- og gæðastjóri og árið 2013 varð hún forstöðumaður Hrafnistu og hefur verið þar síðan. „Þetta var heilmikil áskorun, en ég hafði góðan grunn úr fræðslu- og gæðastjórnuninni og svo hafði ég gott bakland, enda samstarfsfólkið einstakt.“ Helstu áhugamál Árdísar Huldu eru útivist og síðan allt sem viðkemur matreiðslu. „Við erum öll svona systkinin og ótrúlegt hvað hún mamma leyfði okkur að stússa í eldhúsinu.“ FJÖLSKYLDA Eiginmaður Árdísar Huldu er Birkir Benediktsson, sjó- maður, f. 1974. Börn þeirra eru Jóhanna Sigríður, nemi í lögfræði, f. 1993; Laufey Birna háskólanemi, f. 1998, og Guðmundur Örn, nemi í Mennta- skólanum í Kópavogi, f. 2004. Síðan á hún tvö barnabörn, Matthildi Söru og Mikael Mána. Á myndinni er Árdís í Þórsmörk núna í júlí. Árdís Hulda Eiríksdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.