Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021 Vináttulandsleikur karla Barein – Argentína ............................. 32:27 - Aron Kristjánsson þjálfar Barein. Vináttulandsleikur kvenna Japan – Frakkland ............................... 20:41 $'-39,/*" Vináttulandsleikur karla Bandaríkin – Spánn.............................. 83:76 086&(9,/*" KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Kópavogsvöllur: Breiðablik – ÍBV........... 18 Sauðárkrókur: Tindastóll – Fylkir .......... 18 Jáverkvöllur: Selfoss – Þór/KA ............... 18 Origo-völlur: Valur – Þróttur R ............... 20 HS Orkuvöllur: Keflavík – Stjarnan........ 20 2. deild kvenna: Sindravellir: Sindri – Einherji ................. 18 Í KVÖLD! Ljósmynd/Víkurfréttir/Jóhann Mikilvægur Kwame Quee átti glæsilega innkomu fyrir Víkinga í Keflavík í gærkvöldi og lagði upp jöfnunarmarkið skömmu eftir að hann kom inn á. FÓTBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Víkingur úr Reykjavík er aðeins einu stigi frá toppliði Vals í Pepsi Max-deild karla í fótbolta eftir sterkan 2:1-sigur á Keflavík á úti- velli í gærkvöldi. Keflavík var með 1:0-forystu eftir fyrri hálfleikinn en Víkingar voru miklu sterkari í seinni hálfleik og unnu verðskuldað. Vara- menn Víkings áttu risastóran þátt í sigrinum. Kwame Quee lagði upp jöfnunarmarkið og Helgi Guð- jónsson skoraði sigurmarkið. Vík- ingur er nú með 26 stig, einu minna en topplið Vals. „Innkoma varamanna Víkinga breytti öllu fyrir leik þeirra. Spilið var fremur hægt framan af en með innkomu Quees á hægri kantinn og Adams Ægis Pálssonar á vinstri kantinn færðist miklu meiri hraði í leik gestanna. Keflvíkingar höfðu varist fimlega þar til vængmennirnir tveir komu inn á,“ skrifaði Gunnar Egill Daníelsson m.a. um leikinn á mbl.is. _ Nikolaj Hansen skoraði sitt ell- efta mark í deildinni í sumar og er Morgunblaðið/Árni Sæberg Mark Sævar Atli Magnússon fagnar tíunda marki sínu í deildinni á leiktíð- inni fyrir framan súra Stjörnumenn í Breiðholtinu í gærkvöldi. markahæstur. Hann hafði áður mest skorað sex mörk á einu tímabili. _ Halldór Smári Sigurðsson lék sinn 150. leik í efstu deild með Vík- ingi. Hann er leikjahæsti leikmað- urinn í sögu félagsins. Verðskuldað í Breiðholti Leiknir úr Reykjavík vann verð- skuldaðan 2:0-sigur á Stjörnunni á heimavelli. Nýliðar Leiknis eru komnir upp í sjötta sæti með 17 stig og eru í ljómandi fínum málum. Stjarnan er hins vegar aðeins þrem- ur stigum fyrir ofan fallsæti og áfram í basli. „Það er erfitt að gera upp á milli manna í Leiknisliðinu, þar sem sterk liðsheild og baráttuandi skópu frem- ur þægilegan heimasigur. Stjörnu- menn þurfa hins vegar að leggjast vel yfir það sem fór úrskeiðis í þess- um leik og gera betur, ef ekki á illa að fara í haust,“ skrifaði Stefán Gunnar Sveinsson m.a. um leikinn á mbl.is. _ Sævar Atli Magnússon skoraði sitt tíunda mark í sumar. Hann er næstmarkahæstur á eftir áður- nefndum Hansen. _ Hjalti Sigurðsson skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild. Einu stigi frá toppsætinu - Endurkoma Víkinga í Keflavík - Leiknismenn sannfærandi gegn Stjörnunni Rakel Sara Elvarsdóttir, hand- knattleikskona hjá KA/Þór, var valin í úrvalslið B-deildar Evr- ópumóts U19 ára sem lauk um helgina í Skopje. Íslenska liðið hafnaði í fimmta sæti mótsins eftir sigur á Norður-Makedóníu á sunnu- dag. Í leikjunum fimm sem Ísland lék var Rakel í tvígang valin besti leikmaður íslenska liðsins. Rakel skoraði 30 mörk á mótinu en Jó- hanna Margrét Sigurðardóttir varð markahæst með 31 mark. Ísland vann þrjá leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði einum á mótinu. Rakel valin í lið mótsins Ljósmynd/Þórir Tryggvason Akureyri Rakel Sara Elvarsdóttir var valin í lið mótsins í Skopje. Knattspyrnumaðurinn Hallur Flosa- son, leikmaður ÍA, meiddist á hendi þegar hann og Orri Sigurður Óm- arsson, leikmaður Vals, lentu í árekstri í leik liðanna á Akranesi í Pepsi Max-deildinni í fótbolta á laug- ardaginn var. Hallur staðfesti í sam- tali við Fótbolta.net í gær að tvö bein hafi farið úr lið í handarbakinu og annað hafi brotnað. Þurfti hann að fara í aðgerð vegna meiðslanna og er óvíst hve lengi Skagamaðurinn verður frá. Hallur hefur alla tíð leik- ið með ÍA. Hann á 90 leiki að baki í efstu deild og 29 í 1. deild. Tvö bein úr lið og eitt brotið Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Hall Meiddur Hallur Flosason lenti í hörðum árekstri gegn Val. LEIKNIR R. – STJARNAN 2:0 1:0 Sævar Atli Magnússon 6. 2:0 Hjalti Sigurðsson 27. M Sævar Atli Magnússon (Leikni) Hjalti Sigurðsson (Leikni) Máni Austmann Hilmarsson (Leikni) Ósvald Jarl Traustason (Leikni) Brynjar Hlöðversson (Leikni) Emil Berger (Leikni) Andrés Manga Escobar (Leikni) Árni Elvar Árnason (Leikni) Daníel Laxdal (Stjörnunni) Eggert Aron Guðmundsson (Stjörn.) Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 9. Áhorfendur: 483. KEFLAVÍK – VÍKINGUR R. 1:2 1:0 Sindri Þór Guðmundsson 23. 1:1 Nikolaj Hansen 58. 2:1 Helgi Guðjónsson 78. M Adam Árni Róbertsson (Keflavík) Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík) Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík) Atli Barkarson (Víkingi) Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingi) Kristall Máni Ingason (Víkingi) Kwame Quee (Víkingi) Nikolaj Hansen (Víkingi) Pablo Punyed (Víkingi) Dómari: Elías Ingi Árnason – 6. Áhorfendur: Um 400. _ Kanadíski íshokkímaðurinn Luke Prokop verður fyrsti leikmaður NHL- deildarinnar í íshokkíi sem hefur gefið það út að hann sé samkynhneigður. Prokop, sem er aðeins 18 ára gamall, var valinn af Nashville Predators í ný- liðavali deildarinnar fyrir komandi tímabil. _ Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur staðfest kaup sín á belgíska miðjumanninum Albert Sambi Lo- konga. Hann kemur frá Anderlecht og skrifar undir langtímasamning. Arsen- al hefur ekki gefið upp kaupverðið en það er sagt vera um 15 milljónir punda. _ Fjögur íslensk ungmenni eru á leið til Finnlands til þátttöku í alþjóðlegu móti í golfi, European Young Masters, sem fer fram frá fimmtudegi til laug- ardags. Það eru Helga Signý Páls- dóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr SR og Skúli Gunnar Ágústsson og Veigar Heiðarsson úr GA. Keppt er á Vierumäki-golfvellinum sem er í um tveggja tíma akstursfjarlægð frá flug- vellinum í Helsinki. _ Spænski knattspyrnumaðurinn Brahim Díaz verður hjá AC Milan næstu tvö árin að láni frá Real Madrid á Spáni. Díaz gekk ungur að árum til liðs við Manchester City á Englandi en Real keypti hann frá enska félaginu fyrir tveimur árum og lánaði hann til Milan fyrir síðustu leiktíð. Nú hefur lánssamningurinn verið framlengdur um tvö ár. _ Enska B-deildarliðið Blackpool, sem Grindvíkingurinn Daníel Leó Grét- arsson leikur með, ákvað að blása tilvonandi vin- áttuleik gegn Skot- landsmeisturum Rangers af eftir að fjöldi kórónuveiru- smita kom upp innan herbúða liðsins. Blackpool vann sér sæti í B- deildinni á síðustu leik- tíð eftir sig- ur á Lin- coln í umspili á Wembley. Eitt ogannað Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eftir að dregið var til 3. umferðar Sambandsdeildar karla í fótbolta í gær er útlit fyrir að Valsmenn eigi mesta möguleika á að ná langt í keppninni af íslensku liðunum þremur, svo framarlega sem þeir komast í gegnum aðra umferð keppninnar. Valsmanna bíður afar erfitt verk- efni næstu tvo fimmtudagana þegar þeir mæta öflugu liði Noregsmeist- ara Bodö/Glimt, fyrst á Hlíðarenda og síðan í Bodö. En takist þeim að koma á óvart og slá út Norðmennina bíður þeirra viðráðanlegur andstæðingur í 3. umferðinni fimmtudagana 5. og 12. ágúst. Sigurliðið úr viðureign Vals og Bodö/Glimt dróst í gær gegn sigurvegaranum úr einvígi Pris- htina frá Kósóvó og Connah’s Quay Nomads frá Wales. Komi sú staða upp ættu Valsmenn ágætismögu- leika á að komast í umspilsleikina um sæti í riðlakeppninni. Leiðin er heldur erfiðari fyrir hin tvö íslensku liðin en samt væri þar um að ræða andstæðinga sem eru svipaðir að styrkleika og mótherj- arnir í 2. umferð. FH mætir Rosenborg frá Noregi í 2. umferðinni en sigurliðið þar dróst gegn Domzale frá Slóveníu eða Honka Espoo frá Finnlandi. Domzale vann Val 5:3 samanlagt í Evrópudeildinni fyrir fjórum árum og Honka vann ÍA 4:2 samanlagt árið 2008. Breiðablik leikur við Austria Vín í 2. umferðinni en sigurliðið þar dróst gegn Aberdeen frá Skotlandi eða Häcken frá Svíþjóð. Með Häc- ken leika tveir Íslendingar, Valgeir Lunddal Friðriksson og Óskar Tór Sverrisson. Valur ætti góða möguleika í þriðju umferð 26 ÍÞRÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.