Morgunblaðið - 20.07.2021, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021
Fransk-belgíska kvikmyndin Titane
í leikstjórn Juliu Ducournau hlaut
Gullpálmann um helgina, aðal-
verðlaun kvikmyndahátíðarinnar í
Cannes. Um er að ræða aðra kvik-
mynd Ducournau. Hún er áttundi
Frakkinn sem hlýtur aðalverðlaun
hátíðarinnar og aðeins önnur konan,
en Jane Campion var fyrsta konan
til að vinna Gullpálmann fyrir leik-
stjórn sína á The Piano árið 1993.
Bandaríski leikstjórinn Spike Lee
var formaður dómnefndar í ár. Hefð
er fyrir því að tilkynna aðalverð-
launin ekki fyrr en undir lok hátíðar-
kvöldsins, en Lee misskildi frönsk
fyrirmæli kynnis og tilkynnti aðal-
verðlaunin í upphafi kvölds, sem olli
ákveðinni ringulreið í salnum. Í
þakkarræðu sinni sagði Ducournau
að hana grunaði að Lee ætti stóran
þátt í niðurstöðu dómnefndar.
„Kvöldið hefur verið fullkomið
vegna ófullkomleika síns,“ sagði
Ducournau í ræðu sinni.
Titane er um margt óvenjuleg
mynd og hefur hreint ekki fallið öll-
um gagnrýnendum í geð þar sem
hún þykir innihalda fágæta blöndu
af kynlífi, ofbeldi og húmor. Myndin
fjallar um stúlkuna Alexiu sem fær
grædda í sig títanplötu eftir bílslys
sem leiðir til þess að hún heillast í
framhaldinu kynferðislega af bílum
og verður á fullorðinsárum meðal
annars ólétt eftir Cadillac-bifreið.
Alexia, sem Agathe Rousselle leikur
á fullorðinsárum, býr yfir ómældri
drápsfýsn með tilheyrandi ofbeldi.
Af öðrum verðlaunum kvöldsins
má nefna að norska leikkonan
Renate Reinsve var verðlaunuð sem
besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir
hlutverk sitt í myndinni Verdens
verste menneske í leikstjórn Joac-
hims Triers og bandaríski leikarinn
Caleb Landry Jones þótti besti leik-
arinn í aðalhlutverki í kvikmyndinni
Nitram í leikstjórn Justins Kurzels.
Leikstjórinn Tang Yi frá Hong
Kong var verðlaunuð fyrir stutt-
mynd sína Tian xia wu ya. Brasilísk-
-íslenska stuttmyndin Céu de
Agosto (Ágústhiminn) hlaut sér-
staka viðurkenningu dómnefndar,
sem aðeins er veitt þegar mjótt er á
munum milli tveggja mynda. Höf-
undur og leikstjóri er Jasmin
Tenucci, Kári Úlfsson framleiðir og
Brúsi Ólason klippti. Íslenska kvik-
myndin Dýrið í leikstjórn Valdimars
Jóhannssonar var verðlaunuð fyrir
frumleika, en hún keppti í Un Cert-
ain Regard-flokki hátíðarinnar. Dýr-
ið verður frumsýnt hérlendis í sept-
ember.
Titane hlaut Gullpálmann í ár
- Kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar og stuttmyndin Ágústhiminn sem Kári
Úlfsson framleiðir voru báðar verðlaunaðar - Spike Lee tilkynnti of snemma um aðalverðlaunin
Dýrið Sara Nassim framleiðandi, Valdimar Jóhannsson leik-
stjóri, Hrönn Kristinsdóttir framleiðandi og Elo Arenson kvik-
myndatökumaður voru að vonum ánægð með viðurkenninguna.
Best/Verst Norska leikkonan Renate Reinsve var verðlaunuð
fyrir bestan leik í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í kvikmynd-
inni Verdens verste menneske í leikstjórn Joachims Triers.
Næturævintýri Leikstjórinn Tang Yi frá Hong Kong var
verðlaunuð fyrir stuttmynd sína Tian xia wu ya sem fjallar
um næturævintýri 18 ára stúlku í heimi hinna fullorðnu.
AFP
Gleði Franski leikstjórinn Julia Ducournau sem leikstýrði verðlaunamyndinni Titane á sviðinu á lokakvöldi 74.
kvikmyndahátíðarinnar í Cannes. Með henni eru bandaríska leikkonan Sharon Stone, frönsku leikararnir Vincent
Lindon og Agathe Rousselle og bandaríski leikstjórinn Spike Lee, sem var formaður dómnefndarinnar í ár.