Morgunblaðið - 27.07.2021, Page 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021
Gluggaþvottur Þegar kemur að þvotti á gluggum getur verið betra að vera laus við alla lofthræðslu. Hér er unnið við þvott á glerhýsinu utan á Egilshöll í Grafarvogi.
Unnur Karen
Af einhverjum
ástæðum hafa mál-
svarar Viðreisnar
ítrekað beint spjótum
sínum að mér í 5.
sæti framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í
SV-kjördæmi. Líkar
mér það á margan
hátt vel – en hef eins
og margir velt vöng-
um yfir þessum áhuga
sem Viðreisnarfólk hefur sýnt
mér. Getur verið að það stafi af
áhyggjum af því að málflutningur
minn muni opinbera hversu inn-
antóm stefnumál Viðreisnar eru?
Hafa má skilning á því að innan
Viðreisnar óttist menn að atkvæði
þeirra, sem láta sér annt um rétt
okkar Íslendinga til að stjórna eig-
in málum og aðhyllast raunveru-
legt frjálslyndi, kunni fram til
kosninga að flytjast um set, frá
gervifrjálslyndi Viðreisnar yfir til
Sjálfstæðisflokksins og þar með
þeirra sem vilja verja m.a. raun-
verulegt, sígilt frjálslyndi.
Í Morgunblaðinu nú 26. júlí stíg-
ur fram maður að nafni Guðjón
Jensson sem, líkt og fyrirsvars-
menn Viðreisnar, kýs að hagræða
hlutunum, ræða um persónu mína
og gera mér upp skoðanir. Grein
hans, eins og áðurnefndur mál-
flutningur, einkennist því miður af
falsrökum, rangfærslum og bygg-
ist á fordómum fremur en stað-
reyndum og skynsemi.
Rangfærslur í grein
Guðjóns get ég leið-
rétt með fáum orðum:
1. Nái ég kjöri mun
ég að sjálfsögðu láta
af dómstörfum meðan
ég gegni þing-
mennsku, sbr. m.a. yf-
irlýsingu mína í
Morgunblaðinu 22.
júlí sl.
2. Gagnrýni mín á
málflutning Þorsteins
Pálssonar er 100%
málefnaleg. Hvet ég
alla til að kynna sér rökleiðslur
okkar og meta hvor byggir á
traustari grunni.
3. Ég hef ekki haldið því fram
„að Ísland hafi jafnvel glutrað nið-
ur fullveldi sínu fyrir aldarfjórð-
ungi með samningunum um EES“,
eins og Guðjón leggur mér í rang-
lega í munn, gerir að þungamiðju
skrifs síns – og ræðst síðan á af
ekki minni þrótti en Don Kíkóti
vindmyllurnar forðum. Það sem ég
hef hins vegar varað við er að
EES-samstarfið hafi í seinni tíð
þróast á óheillavænlegan veg fyrir
okkur Íslendinga. Ég hef lagt
megináherslu á að Íslendingar
beiti ákvæðum EES-samningsins
til eðlilegrar hagsmunagæslu, láti
ekki mótbárulaust yfir sig ganga
lög og reglur sem hérlendis eiga
ekki við eða eru beinlínis til vansa,
en viðurkennt er m.a. af þeim sem
nýlega hafa gert opinbera úttekt á
samstarfinu að þessari gæslu hefði
þurft að sinna af meiri festu. Geri
menn það ekki er fullveldinu teflt í
voða. Íslendingar hafa aldrei sam-
þykkt að ganga í pólitískt sam-
band við ESB og ég andmæli því
að Íslendingar – sem kannanir
hafa ítrekað sýnt að eru að meiri-
hluta til andsnúnir aðild og telja
sér hana ekki hagfellda –- séu án
umræðu, möglunarlaust og and-
varalaust, leiddir í smáum skref-
um bakdyramegin inn í ESB þar
sem stóru meginlandsríkin og
ókjör ókjörinna embættismanna í
höfuðstöðvunum ráða lögum og
lofum. Varúð í þeim efnum er sér-
lega brýn nú þegar við blasir að
ESB seilist til sífellt meiri áhrifa
gagnvart aðildarríkjunum, bæði í
utanríkis- og innanríkismálum.
4. Samanburður við aðild Ís-
lands að NATO er með öllu óvið-
eigandi í þessu samhengi, því sam-
starf á vettvangi
varnarbandalagsins hefur alla tíð
miðað að því að forða erlendum af-
skiptum af innanríkismálum
bandalagsríkjanna og tryggja rétt
þeirra til að stýra innri málum sín-
um sjálf. NATO er ekki samtök
með yfirþjóðlegu valdi eins og
ESB – og getur því ekki skuld-
bundið aðildarríki sín til neins sem
þau ekki samþykkja sjálf hverju
sinni.
Í öllum frjálsum ríkjum er sér-
hverjum manni boðið að leita ham-
ingjunnar á sínum forsendum og
finna hæfileikum sínum farveg.
Þótt ég hafi menntað mig og þjálf-
að til að verða dómari og ætlað að
gera dómstörf að ævistarfi, þá finn
ég mig nú knúinn til að bjóða fram
krafta mína á stjórnmálasviðinu.
Það sem helst drífur mig áfram á
þeirri vegferð er sú óheillaþróun
sem speglast í málflutningi áð-
urnefndra andmælenda minna, þ.e.
að beitt sé orðskrúði og útúrsnún-
ingum í vaxandi mæli í því skyni
að höfða til tilfinninga fremur en
rökhugsunar. Ég legg ekki út á
þessa braut til að koma persónu
minni á framfæri, enda hef ég
aldrei alið með mér neinn pólitísk-
an metnað.
Sem almennur borgari vil ég
sporna gegn því að spilað sé með
tilfinningar kjósenda. Þegar alið
er á ótta og öfund á kostnað yf-
irvegunar og hlutlægra röksemda
er hinu raunverulega markmiði
rökræðna kastað fyrir borð. Ég vil
að stjórnmálaumræðan einkennist
af eiginlegri sannleiksleit og miði
að því að leita svara við því hvaða
skoðanir geta talist réttmætar, en
ekki um það, lítt hugsað, sem telst
falla fjöldanum best í geð þá
stundina. Ég aðhyllist hvorki öfgar
né þröngsýni.
Málflutningur minn sameinar sí-
gilt íhald og frjálslyndi, grunngildi
Sjálfstæðisflokksins þegar við
stofnun hans 1929, en báðar þess-
ar stefnur miða að því að verja
samfélag frjálsra einstaklinga og
rétt þeirra til að búa við stjórn
valdhafa sem þeir sjálfir hafa kos-
ið. Sjálfsábyrgð og sjálfsforræði
eru gildi sem reynst hafa vel og
ber að verja til framtíðar. Það
verður ekki gert nema með því að
færa fram heilbrigðan efa og
hvetja til gagnrýninnar hugsunar.
Ég vil standa vörð um rétt okkar
til að fá að hugsa. Þetta er frum-
skilyrði þess að við getum verið
heilsteyptar manneskjur, þ.e. að
okkur leyfist að vera heil og sönn í
einkalífi, faglega og opinberlega.
Hvorki ríki, fjölmiðlar, stórfyrir-
tæki, sérfræðingar né siðapostular
eiga að fá að fyrirskipa hvað öllum
á að finnast siðferðilega, sið-
fræðilega, faglega, fræðilega eða
persónulega. Tryggja þarf jafnt
vinsælum sem óvinsælum skoð-
unum vernd og standa vörð um
rétt manna til að vera ósammála,
enda er það forsenda allrar
framþróunar og í þessu kristallast
munurinn á lýðræði og alræði. Ef
menn vilja engu að síður kalla
framangreind sjónarmið mín
„stórhættuleg“ fyrir atvinnulíf og
samkeppnishæfni, eins og Þor-
gerður K. Gunnarsdóttir í Morg-
unblaðinu 16. júlí sl., þá hef ég
ekkert að óttast í þeim rökræðum
og mun hvergi víkja af þeirri götu
sem ég hef markað í skrifum mín-
um. Vonandi gefast mér sem flest
tækifæri til þess í aðdraganda
kosninganna 25. september nk.
Eftir Arnar Þór
Jónsson » Sem almennur
borgari vil ég sporna
gegn því að rökbrellum
sé beitt til að spila með
kjósendur
Arnar Þór Jónsson
Höfundur skipar 5. sætið á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
í Suðvesturkjördæmi.
Rangfærslum svarað