Morgunblaðið - 27.07.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.07.2021, Blaðsíða 17
Elsku elsku mamma. Ég er enn að meðtaka þá stað- reynd að þú sért far- in og tilhugsunin er ótrúlega sár. Lífið getur svo sann- arlega kippt undan manni fótun- um; ég var ekki bara að missa mömmu mína, heldur mína bestu vinkonu. Alveg síðan ég var unglingur hefur það stundum hvarflað að mér að við fengjum ekki að hafa þig hjá okkur þar til þú yrðir göm- ul. Nú óska ég þess að ég hefði hlustað betur á innsæið, eins og þú varst alltaf að hvetja mig til að gera. Kannski hefði ég nýtt tím- ann betur, nýtt meira af honum með þér og verið þakklátari, tekið betur eftir og lært meira. Ég er strax farin að sakna gönguferðanna, samtalanna og fíflalátanna. Ég sakna þess að þú munir hitta börnin mín og að þú verðir á kantinum í svo mörgu öðru sem ég á eftir að upplifa. Ég sakna þess að geta tekið upp sím- ann og heyrt í þér, bara til þess að spjalla um ekki neitt. Við vorum sérfræðingar í því. Mest sakna ég þó samverunnar og hlátursins. Þú kenndir mér að hláturinn er mik- ilvægur því við fæðumst ekki á þessa jörð til þess að hafa leið- inlegt. Og við vorum góðar í því að hafa gaman. En elsku mamma, þú hefðir ekki viljað að ég velti mér upp úr því sem getur ekki orðið. Í staðinn hefðir þú viljað að ég væri þakklát fyrir góðar minningar og þann tíma sem við fengum. Því það var vissulega góður tími og það er auðvelt að finna fyrir þakklæti í þinn garð. Þú varst minn dyggasti stuðningsmaður og ég mun sakna þín gífurlega. Það er þakklát og stolt dóttir sem kveður þig í dag. Takk fyrir allt. Ástarkveðja, Kristjana Louise. Það var í september 1980 að ég gekk upp stigann á Grundarstíg 10 í Reykjavík til að hefja nám í 3. bekk D í Versló. Ég sá laust borð hjá Þórunni og spurði ég hvort ég mætti setjast við hliðina á henni. Þórunn var sessunautur minn í tvö ár. Við áttum það sameigin- legt að hlæja mikið og gera grín að okkur sjálfum. Í 4. bekk var kennslustofan okkar í „Nýja skólanum“, við Þingholtsstræti 37 með útsýni yf- ir Tjörnina. Við sessunautarnir vorum við gluggann. Skólinn var tvísetinn og vorum við eftir há- degi í skólanum bæði í 3. og 4. bekk. Þórunn var kosin í nefnd Málfundafélagsins í 4. bekk og var hún formaður þess í 6. bekk. Hún hvatti mig til að koma á mál- fundanámskeið en aldrei lét ég verða af því. Í 4. bekk vorum við í leikfimi í Ármannsheimilinu við Sigtún. Ég er rúmlega mánuði yngri en Þór- unn og þegar Þórunn fékk bílpróf fékk hún lánaðan hjá mömmu sinni Trabant og fékk ég alltaf að vera í framsætinu. Það var mikið líf og fjör um borð og mikið hlegið. Með okkur í leikfimi voru stelpur úr 3. bekk. Það átti að vera körfu- boltamót í Versló og var einn bekkjarfélagi okkar sem sá um skráninguna. Einn daginn koma tvær stelpur inn í kennslustofuna og segjast þær vera að skrá sinn bekk á mótið. Ég lít á Þórunni og segi: „Ef þær taka þátt í mótinu þá tökum við líka þátt.“ Þetta var einróma samþykkt af stelpunum í ✝ Þórunn Egils- dóttir fæddist 23. nóvember 1964. Hún lést 9. júlí 2021. Útförin fór fram 24. júlí 2021. bekknum. Engin okkar æfði körfu- bolta og kunnum við ekki reglurnar vel. En við mættum í Íþróttahús Haga- skóla. Ein okkar notaði þá aðferð til að stöðva andstæð- ingana að halda í bol þeirra. Leikurinn var stöðvaður og andstæðingum okk- ar dæmdur sigur. Við vorum allar ánægðar með að hafa tekið þátt í þessu móti og héldum við upp á þetta með því að fá okkur ís í Ís- búð Vesturbæjar. Þegar við mættum í skólann hafði frést hvernig við höfðum komið fram en toppurinn á þessu var að það var skrifuð grein um okkur í skólablaðið Viljann og skrifað að við hefðum tekið ólympíuandann okkur til fyrirmyndar. Við Þórunn fórum hvor í sinn máladeildarbekkinn. Eftir stúd- entspróf hafði ég ákveðið að fara til Flórens á Ítalíu í 6 mánuði til að læra ítölsku. Ég frétti svo að Þór- unn væri orðin kennari á Vopna- firði. Við báðar ílengdumst, ég á Ítalíu og hún fyrir austan. Með tilkomu samfélagsmiðl- anna varð mikil breyting og þá auðveldara að vera í sambandi og fylgjast með gömlum skólafélög- um. Síðast sátum við saman í apríl 2015 þegar við níu skólasystur fór- um saman út að borða í Reykjavík. Yndisleg kvöldstund og mun ég ylja mér við þær minningar. Þegar við vorum í 4. bekk segir Þórunn við mig: „Begga, þegar ég dey þá áttu að skrifa minningar- grein um mig, þú átt ekki bara að skrifa það jákvæða um mig heldur líka það neikvæða.“ Mér fannst þetta vera eitthvað sem væri svo fjarlægt en því miður er þessi stund runnin upp. Ég get ekki orðið við ósk hennar um að skrifa eitthvað neikvætt um hana. Mig dreymdi Þórunni aðfara- nótt 11. júlí sl. Hún var í fallegu, hvítu, nýju eldhúsi með fullt af skápum. Fjölskyldu hennar, foreldrum og bróður sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning þín Bergljót Leifsdóttir Mensuali. Eðalvinkona er fallin frá. Það fyrsta sem ég heyrði um konuna var að fjögurra ára frændi minn sem þá bjó á Vopnafirði bað hana að giftast sér fljótlega eftir að hún flutti þangað tvítug að aldri, hann sá kosti hennar þótt ungur væri. Ekki varð af þeim ráðahag enda hafði hún þá þegar fundið Haukinn sinn. Síðan liðu hátt í 30 ár, þangað til ég varð svo heppin að kynnast Þórunni Egilsdóttur, verða sam- starfskona hennar og fá fljótt að kalla hana vinkonu mína. Við kynntumst fyrst þegar við tókum báðar sæti á framboðslista fyrir þingkosningarnar árið 2013 og áttum upp frá því einstakt samstarf, hlið við hlið, í þeim verkefnum sem urðu á vegi okkar. Við urðum líka alvöru vinkonur og gátum treyst á hvor aðra. Það var alltaf gaman á okkar ferðum, hvort sem við ferðuðumst í skaf- renningi á öræfunum, í logni og blíðu við ysta haf eða spjölluðum við fólk á þéttbýlli svæðum. Sím- tölin voru að jafnaði nokkur á viku, ef við vorum ekki við störf á sama stað, og í þeim var fátt und- anskilið. Þórunn var baráttukona, ósér- hlífin, æðrulaus og alltaf tilbúin til að takast á við þau verkefni sem á vegi hennar urðu hvort sem hún valdi þau sjálf eða fékk þau í hendurnar óumbeðið. Hún var útivistarmanneskja frá blautu barnsbeini, keppti á skíðum og var í sveit sem unglingur. Hún nýtti sína hæfileika og reynslu vel í öllum sínum verkefnum hvort sem þau tengdust bústörfum, kennslu eða stjórnmálum. Að kunna að búa til skyr eða hlúa að lömbum og trjáplöntum má yfir- færa á margt annað. Í gegnum Þórunni kynntist ég hennar fólki, fjölskyldunni og þeim sem hún kaus að hafa í kringum sig. Það hefur gert mig ríkari. Hún var svo innilega þakklát foreldrum sínum fyrir veganestið, fróðleikinn um landið, útivistina, skíðafærnina og lífsviðhorfið, því eins og margir vita voru þau feðg- in alltaf „heppin með veður“, hvað svo sem ferðafélögunum fannst. Þá var ekki síður gott að kynnast því gagnkvæma trausti sem þau Haukur báru hvort til annars og hversu samhent þau voru í að vaka yfir fjölskyldunni, börnun- um þremur og barnabörnum, án óþarfa afskipta af þeirra högum. Eins var samheldni allrar fjöl- skyldunnar í verkefnum síðustu mánaða eftirtektarverð. Þórunni var eðlislægt að miðla og hvetja þá sem hún umgekkst hverju sinni og hún fylgdist stolt með fólkinu sínu hvort sem það voru „heimalningarnir“ sem höfðu dvalist á heimili þeirra Hauks, fyrrum nemendur, ættingjar eða vinir, svo ekki sé nú talað um bróðurinn sem haslaði sér völl í annarri heimsálfu. Ég sendi fjöl- skyldu Þórunnar og öllu hennar fólki innilegar samúðarkveðjur og blessunaróskir á þessum erfiðu tímum. Takk Þórunn, fyrir jákvæðn- ina, stuðninginn og gleðina. Líneik Anna Sævarsdóttir. Það er með miklum söknuði og eftirsjá sem við þingmenn og starfsfólk Alþingis nú kveðjum fé- laga og vin úr hópnum, Þórunni Egilsdóttur. Það er ekki ofmælt að Þórunn var sérlega vinsæl og vel liðin enda glaðleg í viðmóti og vönduð samstarfsmanneskja. Meirihluta yfirstandandi kjör- tímabils og meðan heilsan leyfði gegndi Þórunn bæði formennsku í þingflokki Framsóknarflokksins og var fulltrúi hans í forsætis- nefnd. Sem slík sat hún því alla fundi bæði forsætisnefndar og fundi forseta með formönnum þingflokka. Hún var því við borðið jafnt þar sem stjórnsýsla Alþingis sem og öll skipulagning þingstarf- anna og pólitískt samráð fer fram. Við allt þetta nutu kostir hennar sín vel. Þórunn var orðvör og vönduð manneskja með hlýlegt viðmót og góða nærveru. Fyrir hönd okkar sem unnum náið með henni í þessum verkefn- um þakka ég hennar góða framlag og veit að ég mæli það fyrir okkar allra hönd að leitun var að betri félaga. Sama get ég sagt um samstarf við hana í hópi okkar þingmanna Norðausturkjördæmis. Það naut hún reynslu sinnar úr sveitar- stjórnarmálum og öðrum fyrri störfum og landbúnaðurinn og dreifbýlið átti í henni öflugan liðs- mann. En fyrst og fremst er söknuður manns bundin við manneskjuna sjálfa, þessa öflugu og sjálfstæðu konu sem gaman var að kynnast, vinna og ferðast með. Það er þungbært til þess að hugsa að hún hafi nú verið hrifsuð frá okkur á besta aldri. Mestur er að sjálfsögðu missir eiginmanns, barna og annarra ná- kominna. Ég votta þeim innilega samúð mína og fjölskyldu minnar og kveð Þórunni Egilsdóttur með allt í senn í huga, söknuð og eft- irsjá en einnig þakklæti fyrir góð kynni. Steingrímur J. Sigfússon. Það var okkur í þingflokki Samfylkingarinnar harmafregn þegar við fengum að vita af and- láti Þórunnar Egilsdóttur. Hún var hjartahlýr mannvinur. Það lýsir henni ágætlega að þegar hún var í veikindaleyfi, farin í stríðið við krabbameinið eins og hún orðaði það sjálf, gaf hún sér tíma til að hafa samband við þing- flokksformann Samfylkingarinn- ar til að kanna líðan okkar í þing- flokknum í hinum pólitíska ólgusjó. Þórunn var þeim eiginleikum gædd að geta með hæglætislegri glettni og orðheppni létt spennu- þrungið andrúmsloft. Það kom sér oft vel á fundum þingflokks- formanna með forseta Alþingis þar sem meðal annars er samið um dagskrá þingsins og lyktir mála. Og jafnvel þó að oft væri tekist á og Þórunni fyndist stund- um augljóslega að fulltrúar stjórnarandstöðu væru óbilgjarn- ir þá gætti hún þess ávallt að halda talsambandinu við okkur opnu. Á það lagði hún áherslu sem þingflokksformaður enda sann- færð um að aðeins með þeim hætti væri hægt að ná ásættan- legri niðurstöðu á milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Fyrir okkar persónulega sam- band vil ég þakka. Aldrei sló í brýnu okkar á milli en gagnkvæm virðing ríkti fyrir mismunandi sjónarmiðum. Þórunn var afbragðs þingmað- ur og gat verið hrókur alls fagn- aðar á góðri stund, ekki síst með fljúgandi hagmælsku sinni eins og vel kom í ljós í þingveislum. Við í þingflokki Samfylkingar- innar og starfsfólk þingflokksins minnumst Þórunnar Egilsdóttur með þakklæti og virðingu og send- um fjölskyldu og ástvinum hennar innilegar samúðarkveðjur. Minningin um góða konu lifir. Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Mér finnst sem ég hafi alltaf þekkt Þórunni. Það lætur í sjálfu sér nærri, ég var bara fjögurra ára þegar ég kynntist henni fyrst. Eftir að hún flutti fyrst til Vopna- fjarðar varð hún heimilisvinur hjá okkur fjölskyldunni á Lónabraut 21 og við urðum sérstaklega góðir vinir. Svo góðir vinir raunar að ég ákvað að henni skyldi ég giftast og fannst sextán ára aldursmunur þar engin fyrirstaða. Þórunn tók þessari málaleitan minni vel og var þetta frágengið okkar á milli uns henni snerist hugur eftir að hafa kynnst Hauki sínum. Ég erfi það ekkert við hann, þau voru heppin að finna hvort annað. Þó að langt sé síðan á ég minn- ingar frá því að hafa farið með Þórunni í pössun að Refstað þar sem hún bjó þá. Þangað fórum við á forláta Trabant, miklu öndveg- isfarartæki sem bar nafnið Júlíus Túrbó, og þótti okkur malarveg- irnir ráðast illilega að undirvagni Júlíusar. Þegar komið var að heimreiðinni var ég sendur út til að opna hliðið en mér reyndist um megn að loka því og lokaði sjálfan mig alltaf úti þar til ég fór að gráta. Þá kom Þórunn hlaupandi til bjargar, eins og svo oft var hennar hlutskipti. Þórunn var góð kona út í gegn, heil og sönn. Það skildi ég fjög- urra ára og þess átti ég eftir að njóta þegar leiðir okkar lágu sam- an á stjórnmálasviðinu, í sveitar- stjórnarstörfum á Austurlandi og sem samherjar í Framsóknar- flokknum. Þórunn var fremst meðal jafningja í því starfi. Hug- rökk, sönn og heiðarleg. Hún hafði lag á að gera baráttuna og erfiðleikana þess virði, sannur leiðtogi sem ég hefði viljað fylgja svo mikið lengur en örlögin leyfðu. Ég sakna vinkonu, félaga og foringja. Án hennar verður ekkert eins, en hún skóp sér arf- leifð sem lifir áfram í góðum verk- um og dugandi afkomendum. Þá er á bænum auður sess, er átti höndin virk, sem heimilisins gætti gulls og gaf því yl og styrk. Nú er þar yfir blæja breidd, sem er bæði þung og myrk. (Stefán J. Benediktsson) Sárastur harmur er kveðinn að fjölskyldunni á Hauksstöðum og ég votta henni innilega samúð mína. Stefán Bogi Sveinsson. Þórunn Egilsdóttir var einstök kona sem gleymist engum sem kynntust henni. Hún hafði hríf- andi nærveru og mannkostir hennar voru miklir. Rík réttlæt- iskennd einkenndi hana og Þór- unn var ávallt hún sjálf. Hún um- gekkst fólk af virðingu og kom fram við alla sem jafningja. Samt stóð hún einhvern veginn upp úr. Persónuleikinn var sterkur, vitsmunir miklir, umhyggja og kærleikur voru alltumlykjandi. Og ekki síst húmorinn. Gat verið beittur en létti ávallt stundina. Við kynntumst þegar hún var þingmaður en best kynntumst við þegar hún varð formaður sam- gönguráðs. Þar, sem annars stað- ar, markaði hún djúp spor og náði góðum árangri. Það munaði um hana. Hún skynjaði mikilvægi samgangna fyrir stórt og strjál- býlt land og fannst brýnt að hlusta á þjóðina og hennar þarfir. Við starfsmenn samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins minnumst hennar með þakklæti, hlýhug og virðingu. Hún var í stjórnmálum af því hún hafði brennandi áhuga á að auka lífsgæði þjóðarinnar og jafna búsetuskilyrði fyrir alla landsmenn. Jöfnun og samkennd voru henni sérstaklega hugleikin. Henni var ekki sama um örlög fólks og þoldi ekki óréttlæti. Og hún lét verkin tala. Borgarstúlkan sem flutti langt frá borginni, borgarbarn og sveitakona. Hún var í senn náttúrubarn, hugsjóna- rkona og höfðingi. Mannvinur. Hún var kona sem sannarlega breytti lífi samferðamanna sinna. Það er sorglegt að henni hafi ekki auðnast lengra líf. Við þökkum af alhug fyrir Þórunni Egilsdóttur og vottum foreldrum hennar, eig- inmanni, börnum og öllum sem henni unnu einlæga samúð. Ragnhildur Hjaltadóttir. Glæsileg, heilsteypt og jákvæð forystukona er fallin frá í blóma lífsins. Sár er söknuður fjöl- skyldu, vina og flokksfélaga. Þórunn Egilsdóttir vakti at- hygli hvar sem hún kom og ekki í síst þingsal. Hún bar sig með reisn og klæddist vönduðum föt- um og skartgripum, sem gjarnan voru íslensk hönnun. Við setningu Alþingis skartaði hún íslenskum búningi. Þingflokkur Framsóknar- manna sem kom saman á vordög- um 2013 var fjölbreyttur bæði hvað varðaði bakgrunn og aldurs- amsetningu. Þórunn var ómetan- legur liðsmaður þessa hóps, enda þingmaður sem trúði á samkennd og gleði í mannlegum samskipt- um. Ekki að undra að nærum- hverfi hennar fyrir austan valdi hana unga að árum til margvís- legra trúnaðarstarfa. Hún var oddviti sinnar sveitar, skólastjóri, bóndi og kvenfélagsformaður. Dýrmæta reynslu bar hún því með sér í farteskinu, þegar hún settist á þing. Samvinna og sam- hugur voru lykilatriði í hennar huga til að ná settum markmið- um. Það er margs að minnast frá árunum okkar saman í þing- flokksherbergi Framsóknar- manna og þar var oft glatt á hjalla, þó að eðli máls samkvæmt þyrfti að fjalla um snúin og erfið mál. Gleði var aldrei langt undan þar sem Þórunn var. Það var mér ómetanlegt að hafa Þórunni mér við hlið við stjórn þingflokksins, enda tók hún við keflinu sem þing- flokksformaður. Alþingi er margslunginn vinnustaður. Það sætti tíðindum að í miðjum jólaönnum þingsins árið 2013 stigu tveir þingmenn í pontu og boðuðu stofnun hóps já- kvæðra þingmanna. Þetta voru stjórnarandstæðingurinn Óttarr Proppé og stjórnarliðinn Þórunn Egilsdóttir. Markmiðið var að skapa betra andrúmsloft á vinnu- staðnum milli einstaklinga þvert á flokka. Þessum heiðursþing- mönnum má þakka þessa við- leitni, en því miður voru ekki allir á þessari línu þeirra. Það var sannarlega ekki sýnd- armennska hjá nýja þingmannin- um, Þórunni, sem réð þarna för. Þetta var hennar einlæga lífstrú, trúin á gleðina, sem síðan sýndi sig svo vel í baráttu hennar við hinn óskammfeilna gest sem gerði sig heimakominn hjá henni. Karakter fólks kemur hvað best í ljós þegar erfiðleikar steðja að, fáir hafa þann styrk og kjark að geta rætt jafn einlæglega og opinskátt um veikindi sín og hún gerði. Hún var hetja og góð fyrirmynd. Einkar ánægjulegt var að Þór- unn ávarpaði þing kvenstjórn- málaleiðtoga heimsins sl. júní- mánuð. Meginstef fundarins var að með fleiri konur við stjórnvöl- inn gæti heimurinn orðið eðlilegri og betri. Ekki er gott að segja hvort það voru forlög eða tilviljun sem réðu för sl. júnímánuð er mér auðnað- ist að hitta Hauksstaðahjónin á góðum degi á Akureyri, sem ég þakklát fyrir. Þennan dag var tek- in skólfustunga að stækkun flug- stöðvarinnar, framkvæmd sem Þórunn og félagar okkar höfðu barist fyrir. Ég votta Hauki og fjölskyldu mína dýpstu samúð, en arfleifðin um jákvæða og einstaka fjöl- skyldukonu lifir og hjálpar. Blessuð sé minning kjarnorku- konunnar Þórunnar Egilsdóttur. Sigrún Magnúsdóttir. Í dag er kvödd kær vinkona, Þórunn Egilsdóttir alþingiskona, sem ég kynntist þegar við tókum sæti á Alþingi árið 2013. Ég var stödd fyrir austan þeg- ar ég frétti að Þórunn væri látin. Ég var nýbúin að segja við fólkið mitt að ég þyrfti að renna í Hauksstaði og fá mér kaffibolla með Þórunni. Þrátt fyrir að Þór- unn hafi lengi barist við „boð- flennuna“, eins og hún kallaði krabbann, þá voru fréttirnar óvæntar og sárar. Þórunn fékk snemma það hlut- verk að leiða þingflokk Fram- sóknarflokksins og eins og annað gerði hún það af festu og einurð. Hún var heilsteypt í starfi sínu og ávann sér traust og virðingu okk- ar sem með henni störfuðu. Við Þórunn kynntumst enn betur þegar við fórum saman í ríkisstjórnarsamstarf, báðar þingflokksformenn með tilheyr- andi skyldur og verkefni að leysa. En við áttum líka margar stundir þar sem við spjölluðum um lífið og tilveruna sem ég er afskaplega þakklát fyrir. Þórunn var með eindæmum glaðlynd og með frá- bæran húmor og sagði gjarnan „við fæddumst ekki á þessa jörð til að hafa það leiðinlegt“. Þannig tókst hún líka á við veikindin með bjartsýni að leiðarljósi enda ekki í hennar orðabók að gefast upp eða glata voninni. Það var afskaplega ljúf og góð stund þegar Þórunn leit við hjá okkur í þinginu nú í sumarbyrjun en hún hafði gert sér bæjarferð til að flytja ávarp okkar þingkvenna á heimsþingi kvenleiðtoga. Frá- bært erindi og verðugt síðasta verkefni hennar sem þingmaður. Hún var hress að vanda þegar ég heyrði í henni síðast. Var í verkstjórahlutverkinu, sagði hún, að stýra mannskapnum við ýmsar framkvæmdir m.a. eldhúsið á Hauksstöðum enda lét hún engan bilbug á sér finna og var með marga góða í verkinu eins og hún komst að orði. Í þessari lokakveðju minnist ég glaðlyndrar og góðrar vinkonu með mikilli hlýju og þakklæti. Ég sendi Hauki, Kristjönu, Guðmundi, Heklu, foreldrum Þór- unnar og fjölskyldunni allri hlýjar og góðar kveðjur á þessum erfiðu tímum. Guð blessi minningu góðr- ar konu. Bjarkey Olsen Gunn- arsdóttir, þingflokks- formaður Vinstri grænna. Þórunn Egilsdóttir MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.