Morgunblaðið - 27.07.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.07.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi Samfélagshús Opin vinnustofa kl. 9-12.30, botsía kl. 10- 11, félagsvist kl. 13-15.45, tálgað í tré kl. 13-15.45, kaffi kl. 14.30-15.20. Allir velkomnir! Nánari upplýsingar á skrifstofu Samfélagshúss eða í síma 411-2701 & 411-2702. Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50.Töfrasýn- ing / skemmtun kl. 13. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Sími 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Lista- smiðja kl. 13-15.30. Bónusrútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Gerðuberg Opin handavinnustofa frá kl. 8.30. Gönguhópur frá kl. 10. Núvitund kl. 11. Listaspírur frá kl. 13. Athugið sóttvarnir og grímu- skyldu. Félagsvist á miðvikudögum fellur niður fyrst um sinn. Gjábakki Kennt verður á spjaldtölvu í Gjábakka alla þriðjudaga milli kl. 13. og 15 í sumar. Jóga fyrir alla eldri borgara kl. 10. Opin vinnu- stofa í allt sumar í Gjábakka á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 13 og 15. Á staðnum verður boðið upp á málningu, pensla og blöð. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30.Tækni- aðstoð kl. 10.30-11.30. Gönguferð kl. 13.30. Korpúlfar Botsía kl. 10 í Borgum. Helgistund kl. 10.30 í Borgum. Spjallhópur kl. 13 í listasmiðju. Endilega komið og njótið. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á hópþjálfun með hreyfiteyminu okkar kl.10.30 og svo verður haldið í gönguferð í verslun kl. 13. Kl. 14.15 verða svo tveir þættir af Kötlu á dagskrá, en Katla er ný æsispennandi þáttaröð úr smiðju Baltasar Kormáks. Hlökkum til að sjá ykkur. Seltjarnarnes Sundlaug Seltjarnarness er lokuð í dag, kaffispjall í króknum frá kl. 9, pútt á flötinni við Skólabraut kl. 10.30, því miður þurfum við að fresta ferðinni okkar í Hellisgerði, við munum auglýsa nýja dagsetningu þegar nær dregur. Vantar þig fagmann? FINNA.is mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Pálmi Stefáns- son fæddist á Litlu-Hámundar- stöðum á Árskógs- strönd þann 3. sept- ember 1936. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 15. júlí 2021. Pálmi var sonur hjónanna Stefáns Einarssonar, f. 1902, d. 1958, og Önnu Þorsteinsdóttur, f. 1909, d. 1994. Pálmi var þriðji í röð sjö systkina. Þau eru Rósa, f. 1930, d. 2014, Valgeir Þór, f. 1934, Anna Lilja, f. 1938, Svandís f. 1943, d. 2012, Steingrímur, f. 1946, d. 2002, og Stefán Páll, f. 1948, d. 1987. Pálmi kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Soffíu Kristínu Jónsdóttur, f. 17.7. 1947, þann 10.12. 1967. Börn þeirra þrjú eru: 1) Haukur, f. 1968, kvæntur Sigur- björgu Ósk Sigurðardóttur, f. 1976. Þau eiga Stef- án Elí, f. 2000, Ástu Sóleyju, f. 2005, og Neó Tý, f. 2007. 2) Björk, f. 1969, gift G. Ómari Péturs- syni, f. 1964. Þau eiga Helgu Sigrúnu, f. 1989, Kristófer Leó, f. 1994, Ívan Geir, f. 1996, Aþenu Björk, f. 2004, og Elenu Soffíu, f. 2007. 3) Anna Berglind, f. 1979, gift Helga Rúnari Pálssyni, f. 1979. Þau eiga Arnór Inga, f. 2000, Pálma Þór, f. 2008, og Helgu Maren, f. 2011. Útförin fer fram í Glerár- kirkju í dag, 27. júlí 2021, klukkan 11. Komið er að kveðjustund Pálma, frænda okkar hjóna. Margar góðar minningar rifjast upp. Við Pálmi vorum systkina- börn og á æskuheimili hans, Litlu-Hámundarstöðum, var ég tíðum heimagangur sem barn og unglingur og þessi fjölskylda ná- tengd minni og mikil samskipti milli bæjanna. Pálmi var með talsverða sjónskerðingu allt frá barnsaldri, en það var undravert hvað honum tókst að vinna úr því og aldrei varð maður var við það, að hann sæi ekki eins vel og aðrir. Pálmi eignaðist strax á unglings- aldri harmóníku og varð það til þess að það hljóðfæri fylgdi hon- um til æviloka. Reyndar búinn að eiga margar slíkar. Hans ævistarf snerist að mestu leyti um músík. Hann spilaði fyrir dansi á mörg- um stöðum, allt frá því að spila einn, við annan mann eða í hljóm- sveitum. Gömlu dansarnir voru í uppáhaldi hjá okkur báðum og sennilega höfum við hjónin oftast dansað á dansleikjum þar sem Pálmi spilaði fyrir dansinum. Við Pálmi höfum unnið saman að verkefnum í sambandi við gömlu dansana. Pálmi var alltaf tilbúinn að koma út á Strönd og spila fyrir okkur, hvort sem það var á al- mennum dansleik eða fyrir félög- in eða kirkjukórinn í sveitinni. Pálmi var alltaf tilbúinn. Takk fyrir það. Það vill svo til að mað- urinn minn, Sveinn Jónsson, er jafn mikið skyldur Pálma og ég. Þeir eru bræðrasynir og hafa átt góðar stundir saman. Eitt sinn stunduðu þeir sögulega grá- sleppuútgerð ásamt Þorsteini, bróður mínum. Það er stundum rifjað upp og haft gaman af. Með öðrum bróður mínum, Birgi, var hins vegar samstarf í músíkinni, báðir höfðu gaman af að spila á hljóðfæri og að spila fyrir dansi hér og þar. Pálmi flutti ungur úr sveitinni til Akureyrar og þar á hann yndislega konu og þrjú börn sem öll eru með fjölskyldur. Soffía hefur oft verið bílstjórinn á ferðum þeirra, þar sem Pálma var meinað að taka bílpróf, og aldrei á henni að heyra að það væri neitt annað en sjálfsagt og gaman. Við Sveinn viljum þakka fyrir alla samfylgd við frænda okkar og fjölskyldu hans og sendum þeim öllum ásamt öðrum ættingjum og vinum hans samúðarkveðjur. Við kveðjum öll, en hvenær? Ekkert svar. Hverju verður næsta veröld prýdd? Verður kannski bjart að búa þar? Við bara flytjum næst í aðra vídd. (Vilhjálmur S.V. Sigurjónsson) Hvíl þú í friði. Ása Marinósdóttir. Föðurbróðir minn og lærifaðir, Pálmi Stefánsson, er látinn. Ég á honum mjög mikið að þakka. Hann var algjör erkisnillingur. Um miðjan sjöunda áratug síð- ustu aldar stofnaði hann og stýrði hljómsveitinni Póló, sem var um skeið vinsælasta hljómsveit landsins og sum lög sveitarinnar lifa enn með landanum - Glókoll- ur, Á heimleið og Lóan er komin eru þar á meðal. Pálmi stofnaði hljóðfæra- og plötuverslun, Tónabúðina, á Ak- ureyri á svipuðum tíma og Póló fór í gang. Erfiðlega gekk að fá ís- lenskar plötur til sölu, þar sem einhverjir útgefendur höfðu gert einkasölusamning við aðra versl- un á Akureyri. Þá stofnaði hann Tónaútgáfuna og gaf út plötur með Póló, Geirmundi Valtýssyni, Ævintýri, Flowers, Ingimari Ey- dal, Kristínu Ólafsdóttur, Örvari Kristjánssyni og mörgum fleir- um. Tónaútgáfan gaf t.d. út fyrstu plötu Björgvins Halldórssonar og Lifun með Trúbroti, svo eitthvað sé talið, og setti síðar upp hljóð- ver á Akureyri. Pálmi kvæntist úrvalskonunni Soffíu (Ossa frænka oftast köll- uð), sem lifir mann sinn. Börn þeirra og barnabörn hafa heldur betur markað spor sín í menn- ingu, listum, íþróttum og við- skiptum á Akureyri og víðar - enda ljómaði Pálmi af stolti í hvert sinn er hann talaði um börnin og barnabörnin. Pálmi réð mig í afleysingar í Tónabúðinni á Akureyri fyrir tæpum 30 árum, en á þeim tíma var ég í hljómsveit með Hauki syni hans. Pálmi hóf þá aðeins að siða mig til og kenna og alltaf báru viðskiptavinirnir mikla virð- ingu fyrir honum. Tónabúðin setti svo upp útibú í Reykjavík 1994 og þar starfaði ég lengi, fyrst í af- leysingum og svo í fullu starfi þar til verslunin var seld 2007. Lær- dómsríkur og gríðarskemmtileg- ur tími með bráðskemmtilegum vinnufélögum og viðskiptavinum. Blessuð sé minning Pálma, hann var úrvalsmaður og ég á eft- ir að sakna hans mikið. Ingvar Valgeirsson. Kveðja frá Kiwanis- klúbbnum Kaldbaki Við Kaldbaksfélagar kveðjum nú einn af máttarstólpum klúbbs- ins okkar, Pálma Stefánsson. Pálmi hefur verið félagi í Kald- baki lengur en nokkur annar eða í um 50 ár, alltaf með mjög góða mætingu og þurfti mikið að ganga á svo hann kæmi ekki á fundi eða aðrar samkomur hjá klúbbnum. Hann var forseti Kaldbaks starfs- árið 1986–87 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum í gegnum tíðina eins og gengur og var nokkurs konar akkeri fyrir þá sem vildu fara svolítið fram úr sér með alls konar hugmyndir í klúbbstarfinu. Þá kom hann fram með sínar skoðanir, á sinn rólega og yfirveg- aða hátt sem allir tóku tillit til. Þær voru ófáar samkomurnar sem Pálmi mætti á með nikkuna, hvort það voru jólafundir, jóla- trésfagnaðir eða skemmtikvöld. Fyrir síðasta jólatrésfagnað okk- ar hafði hann veikst mikið nokkru áður og töldum við ólíklegt að hann gæti spilað en þegar við færðum það í tal við hann, hvort hann treysti sér til þess, þá hélt hann það nú, hann færi ekkert að bregða út af vananum. Svona var hann, skilaði alltaf sínu. Pálmi var gegnheill Kiwanismaður og hann sagði okkur að eitt sinn hefði hann verið spurður af hverju hann væri búinn að vera svona lengi í Kiwanis, þá svaraði hann því til að hann hefði aldrei tímt að hætta, þetta væri svo góður fé- lagsskapur. Við teljum þetta orð að sönnu. Að leiðarlokum þökkum við Kaldbaksfélagar Pálma fyrir samfylgdina á liðnum árum og sendum fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. F.h. Kiwanisklúbbsins Kald- baks Kristinn Örn Jónsson forseti. Ég kynntist Pálma fyrir rúm- um 60 árum síðan þegar sameig- inlegur vinur okkar leiddi okkur saman í hljómsveit, en það var Birgir Marinósson en hann var þá búinn að fá Gunnar Tryggvason til liðs við sig og þessi hljómsveit hóf að spila 28. okt. 1961 í Víðihlíð í Húnavatnssýslu og spilaði til 29. sept. 1962 á Hótel Höfn á Siglu- firði eða alls á 61 dansleik. Pálmi kom frá Árskógsströnd og var þá nýfluttur til Akureyrar og samd- ist okkur svo um að hann gerðist kostgangari hjá okkur hjónum en við vorum þá nýbúin að stofna heimili. Árið 1962 hættir Birgir með sína hljómsveit og þá tók Pálmi við og til liðs við okkur gekk þá Sveinbjörn Vigfússon, en þessi hljómsveit hóf að spila 6. okt. 1962 og hennar síðasta ball var 22. sept. 1963, og þá stofnaði Pálmi hljómsveitina Póló og ég hljómsveitina Laxa, en vinátta okkar hélst alla tíð þó svo að við værum ekki að spila saman. Til dæmis tókum við Alþýðuhúsið á Akureyri á leigu og spiluðum við þar, báðar hljómsveitir til skiptis eða hvor sitt kvöldið. Þetta gerð- um við í tvö sumur á virkum kvöldum en fórum svo eitthvað úr bænum um helgar. Einhverju sinni heyrði Pálmi okkur flytja lag eftir Grétar Ingvarsson og texta eftir mig, sem að heitir Æskuást. Hann var þá að gefa út plötu með Erlu Stefánsdóttur og varð þetta lag afar vinsælt. Svo gaf hann út plötu sem heitir Eitt með öðru, þar bauð hann mér að syngja tvö lög. Þegar að við vor- um að mestu hættir að spila þá fórum við fara á öldrunarheimilin hér í bæ, stundum tveir eða þrír til að spila fyrir heimilisfólk þar. Hann vildi gera meira úr þessu og hringdi í mig og sagðist ætla að stofna alvöru hljómsveit og að ég ætti að vera í henni. Ég sagði hon- um að ég væri búinn að selja trommusettið mitt. „Það er allt í lagi, þú átt bara að syngja,“ sagði hann þá og þar með var það ákveðið, en við gerðum meira en að spila á öldrunarheimilunum. Við fórum til Dalvíkur og Ólafs- fjarðar og vorum á skemmtunum í safnaðarheimili Akureyrar- kirkju og spiluðum á hafnarfest- ivali í Óðinsvéum í Danmörku. Þegar Pálmi fór að missa heilsu undir það síðasta, þá komst hann stundum ekki til að spila og eitt sinn þegar ég heimsótti hann á sjúkrahúsið og við höfðum verið að spila daginn áður, þá sagði ég honum að við hefðum sett nýtt nafn á bandið; nú héti það Vinir Pálma. Hann var afar kátur með það. Kæri vinur, þín verður sárt saknað og við félagarnir í Vinum Pálma kveðjum þig með miklum söknuði og við vitum að þú verður kominn með band í sumarlandinu innan tíðar. Rafn Sveinsson. Í dag, þriðjudaginn 27. júlí, er jarðsunginn frá Glerárkirkju á Akureyri vinur minn og félagi Pálmi Stefánsson. Við kynntumst á sjöunda áratugnum, þá var hann nýbúinn að stofna Tónabúð- ina og við báðir í tónlist, hann með Póló og ég með Flamingó. Miklar hringingar voru alla tíð á milli okkar og keypti ég mörg hljóð- færi af honum. Síðan stofnaði hann Tónaútgáfuna og þá fóru hlutirnir að gerast. Þar fór hann að gefa út hljómplötur með Björgvini Halldórs, og þá var hann sá eini sem þorði að gefa út Trúbrot. Hann hafði mikinn áhuga á minni tónlist og þar kom að hann ákvað að gefa út tvær tveggja laga hljómplötur. Við fór- um með flugvél suður eitt sunnu- dagskvöld, hann frá Akureyri og ég frá Sauðárkróki. Við hittumst á Reykjavíkurflugvelli og tókum okkur leigubíl í Sjálfstæðishúsið í Reykjavík. Þar biðu okkar fé- lagar úr Trúbrot, engir smá kall- ar, það voru þeir Gunni Þórðar, Gunni Jökull og Rúnar Júl. Síðar komu til liðs við strákana Maggi Kjartans, Kalli Sighvats og fleiri sem bættust við. Pálmi hafði kynnst þessum strákum. Ég var bara feiminn sveitastrákur en fljótt tókst á milli okkar góður kunningsskapur. Við vorum við upptökur frá sunnudegi til fimmtudags. Pétur Steingríms- son tók upp í gömlu tannlækna- stofunum í Síðumúlanum. Á föstudag flugum við Pálmi heim, þetta var í janúar 1972. Síðan kom önnur platan út í byrjun júlí. Bíddu við rauk þar strax í fyrsta sæti og var þar fram í miðjan september. Pálmi var nú alltaf jafn rólegur og var ekkert að hreykja sér þótt gengi vel. Eitt sinn fyrir fáum árum datt honum í hug að smala saman í hljómsveit og æfa lögin mín og ég kom og söng. Síðan fluttum við lögin í safnaðarheimili Akureyrarkirkju fyrir fullum sal. Við Pálmi áttum alltaf gott samtal. Við Mína kom- um síðast í heimsókn til þeirra Pálma og Sossu í byrjun júlí og var það mjög skemmtilegt en ekki datt mér í hug að það yrði í síð- asta sinn sem ég sæi Pálma. Í gegnum tíðina höfum við átt margar góðir stundir saman og mér er t.d. minnisstæð ferð okkar hjóna með þeim Pálma og Sossu í Hrísey þar sem við gengum um eyna og áttum góð dag saman. Ég þakka Pálma kærlega fyrir okkar samleið í gegnum lífið, þangað til ég kem og þá getum við farið að spila saman. Svo að lokum bið ég Guð að blessa Sossu, börnin og öll barna- börnin. Takk fyrir allt Pálmi minn. Geirmundur Valtýsson. Pálmi Stefánsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.