Morgunblaðið - 27.07.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Ég kýs að kalla þetta „jarm-
tónlist“, sem er blanda af minni
uppáhaldstónlist; djassi, rokki og
impressjónískri tónlist,“ segir
gítarleikarinn Mikael Máni Ás-
mundsson um tónlistina á nýrri
plötu sinni Nostalgia Machine sem
kemur út 6. ágúst.
„Það er tónlistin sem ég hlustaði
mest á á mótunarárunum. Þegar ég
var að verða tvítugur hlustaði ég
næstum eingöngu á djasstónlist en
síðan hef ég verið að fara meira til
baka í tónlistina sem ég hlustaði á
á mótunarárunum, þegar allt var
sérstaklega spennandi því maður
hafði ekki heyrt svo mikið. Þá var
ég oft að taka tímabil þar sem ég
hlustaði bara á eina hljómsveit eða
tónlistarmann í níu mánuði, hlust-
aði til dæmis bara á Sigur Rós á
hverjum degi eða á Debussy.“
Tónlist tengist minningum
Mikael segir hugmyndina að baki
plötunni hafa orðið til á náttúru-
legan hátt, út frá því hvernig hann
er vanur upplifa tónlist og semja
hana. Hann lýsir því hvernig sum
tónlist tengist ákveðnum minn-
ingum og minnir mann upp frá því
á það augnablik þegar maður skap-
aði fyrst þessa tengingu. Sömu til-
finningar og maður fann þegar
maður heyrði tónlistina fyrst geti
vaknað aftur þegar maður heyrir
hana síðar. „Maður getur jafnvel
haft einhverja íþyngjandi tengingu
við glaðlegt lag, til dæmis „Hoppí-
polla“ með Sigur Rós, því maður
var kannski að ganga í gegnum
eitthvað þegar maður var að kynn-
ast því. Þegar maður hlustar á lag-
ið síðar geta þær tilfinningar komið
til baka. Það er alla vega þannig
hjá mér þegar ég hlusta á tónlist
og ég held þetta sé svona hjá öðr-
um líka,“ segir Mikael.
„Þetta er líka þannig þegar ég
sem tónlist. Jafnvel lög sem eru
mjög glaðleg eru kannski með ein-
hverja marglaga tengingu fyrir
mig sem ég veit ekki hvort kemst
til skila og skiptir kannski ekki
öllu máli. Maður samdi kannski
glaðlegt lag af því manni leið illa
yfir einhverju eða eitthvað svoleið-
is. Þess vegna heitir platan Nost-
algíuvélin. Tónlistin er nostalgíu-
vélin sem færir mann til baka á
þessi augnablik. Tilfinningaleg
tengsl við lög verða mjög flókin og
persónuleg og það er nokkuð sem
ég upplifði löngu áður en mér
tókst að setja það í orð.“
Ólíklegur hópur
samankominn
Mikael segir tónlistarmennina
sem spila með honum á plötunni
úr ólíkum áttum. Það eru þau Lilja
María Ásmundsdóttir, Sölvi Kol-
beinsson, Ingibjörg Elsa Turchi og
Magnús Trygvason Elíassen. „Það
er gaman hvað þetta er ólíklegur
hópur að spila saman. Lilja María,
systir mín, kemur úr klassík og til-
raunatónlist. Hún er klassískur
píanóleikari, gerir þverfaglega list
og er í doktorsnámi í Bretlandi.
Svo spilar Ingibjörg með mörgum
poppböndum og er líka í djassi.
Sölvi er bæði í klassík og mjög
djúpt í djassi. Magnús spilar svo
náttúrlega í öllum hljómsveitum á
Íslandi.“
Útgáfunni verður fagnað með
tónleikum föstudaginn 13. ágúst í
Kaldalóni í Hörpu. Þar mun Mika-
el koma fram með þessu „óhefð-
bundna fimm manna djasskombói“
eins og hann kallar það, auk þess
sem með þeim mun leika strengja-
kvartett og í nokkrum lögum verð-
ur söngrödd, án texta. „Ég útsetti
lög af nýju plötunni og af fyrri
plötu minni Bobby fyrir strengja-
kvartett. Þetta er nokkuð sem ég
leik mér oft að því að gera; að út-
setja lögin sem ég sem fyrir
strengi, bara til gamans,“ segir
tónskáldið sem er ánægt með að
geta haft þær útsetningar með á
tónleikunum.
Skemmtilegt tækifæri
Stjórn upptöku var í höndum
manns að nafni Matt Pierson og
segir Mikael gaman að hafa fengið
tækifæri til að vinna með honum.
Pierson hafi nefnilega séð um upp-
tökustjórn á nokkrum af þeim
plötum sem hann lá yfir á mót-
unarárunum og nefnir sem dæmi
plötuseríuna The Art of the Trio
með bandaríska píanóleikaranum
og tónskáldinu Brad Mehldau, sem
hann hlustaði sérstaklega mikið á.
Þegar fyrri plata Mikaels Bobby
kom út var það vinur Piersons, Ís-
landsvinur nokkur sem kemur allt-
af á Airwaves, sem benti honum á
að tala við hann. „Pierson sýndi
þessu mjög mikinn áhuga. Það
voru miklu fleiri, sem eru kannski
smærri fiskar, sem sýndu þessu
engan áhuga. Það er gaman að
fólk sé opið fyrir nýrri tónlist.“
Fíflast á æfingum
Í stað þess að Pierson kæmi til
landsins og væri viðstaddur æfing-
arnar, eins og planið var, unnu
þeir Mikael að plötunni saman í
gegnum netið enda Covid-farald-
urinn í fullum gangi. „Ég held að
æfingarnar hefðu verið öðruvísi ef
það hefði verið einhver að fylgjast
með. Við æfðum rosalega mikið út
af Covid – það var svo lítið að gera
fyrir þetta annars rosalega upp-
tekna tónlistarfólk – og vorum að
spjalla mikið og fíflast.“
Fleiri hafa sýnt plötunni áhuga
erlendis. Tónlistarkonan Cerys
Matthews úr rokkbandinu Catat-
onia spilaði titillag plötunnar,
„Nostalgia Machine“, í þætti sínum
á útvarpsstöðinni Radio 6 hjá
BBC.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nostalgía „Tilfinningaleg tengsl við lög verða mjög flókin og persónuleg
og það er nokkuð sem ég upplifði löngu áður en mér tókst að setja það í
orð,“ segir tónlistarmaðurinn Mikael Máni.
„Tónlistin er nostalgíuvél“
- Ný plata Mikaels Mána, Nostalgia Machine, inniheldur blöndu af djassi, rokki og impressjónískri
tónlist - Tónlistarfólk úr ólíkum áttum og virtur upptökustjóri - Útgáfutónleikar í Kaldalóni
„El Coloso“ (Risinn), eitt þekkt-
asta málverk heims, hefur aftur
verið eignað spænska meistaran-
um Francisco Goya. Þessu greinir
Artnet frá. Í frétt tímaritsins er
rifjað upp að fyrir 13 árum hafi
stjórnendur hjá Museo Nacional
del Prado í Madrid fallist á það
mat Manuelu Mena, Goya-
sérfræðings safnsins, að umrætt
verk væri ekki eftir Goya heldur
málað af Asensio Julia, sem var
lærlingur hjá Goya. Mena hélt því
fram að greina mætti upphafsstaf-
ina A.J. í einu horni málverksins.
Árum saman var talið að Goya
hefði málað verkið á tímabilinu frá
1818 til 1825 sem viðbragð við því
að Frakkar hernámu Spán 1808
eftir sigur Napóleons í
Pýreneaskagastríðinu. Risinn á
myndinni var sagður tákna við-
leitni Spánverja til að reka her-
námsliðið á brott. Málverkið hefur
verið í eigu Museo Nacional del
Prado frá árinu 1931 þegar dánar-
bú Pedros Fernández Duráns gaf
það safninu.
Í frétt Artnet kemur fram að
þegar Josefa Bayeu, eiginkona
Goya, lést árið 1812 hafi verið
útbúin skrá yfir allar eigur dánar-
búsins og þar var talið upp mál-
verk sem nefnist „El Gigante“ og
er jafnstórt og „El Coloso“. Þrátt
fyrir þetta hafa fræðingar deilt
um höfund málverksins síðan 1992
þegar forvörslu á því lauk. Þegar
Mena fór á eftirlaun 2018 fóru
aðrir sérfræðingar hjá Museo
Nacional del Prado að skoða verk-
ið betur og fullyrða nú að verkið
sé í reynd eftir Goya. Máli sínu til
stuðnings vísa þeir til systurmál-
verksins „Gigante sentad“ (Sitj-
andi risi) sem í stíl og efnistökum
minni á „El Coloso“, en staðfest
er að Goya málaði risann sitjandi.
Listsagnfræðingurinn Peio H.
Riaño gagnrýnir að safnið breyti
skráningunni í skjóli nætur án
opinberra skýringa.
Risinn aftur
eignaður Goya
Ljósmynd/Museo Nacional del Prado
Risinn Talið er að Francisco Goya
hafi málað El Coloso 1818-25.
Leikararnir Emily Blunt og Dwayne Johnson stilltu sér
upp á rauða dreglinum þegar fjölskyldumyndin Jungle
Cruise í leikstjórn Jaumes Collet-Serra var frumsýnd í
Disneylandi í Kaliforníu um helgina. Líkt og titillinn
gefur til kynna fjallar myndin um ævintýralegt ferða-
lag í miðjum frumskógi. Meðal annarra leikara eru
Edgar Ramírez og Sulem Calderon. Myndin er tekin til
sýningar í íslenskum kvikmyndahúsum á fimmtudag.
AFP
Á vit ævintýra í frumskógarsiglingu