Morgunblaðið - 27.07.2021, Side 32
Anna Sóley Ásmundsdóttir söngkona kemur ásamt
hljómsveit fram á tónleikum í Mengi annað kvöld, mið-
vikudag, kl. 21. Með Önnu Sóleyju koma fram Lilja
María Ásmundsdóttir á hljóðfæri sem nefnist Hulda,
Mikael Máni Ásmundsson á gítar, Snorri Skúlason á
kontrabassa, Magnús Trygvason Eliassen á trommur og
Tumi Árnason á tenórsaxófón. Flytja þau frumsamið
efni sem ætlunin er að hljóðrita í ágúst. Lagasmíðarnar
dansa á mörkum djass, popps og alþýðutónlistar. Text-
arnir eru gjarnan draumkenndir og helst það vel í hend-
ur við andrúmsloftið í tónlistinni, að því er segir í til-
kynningu. Anna Sóley lauk í vor djass- og popp-
söngnámi við ArtEZ Conservatory í Arnhem í Hollandi.
Anna Sóley og hljómsveit í Mengi
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Frásagnarlistin gæðir landið lífi í
huga okkar,“ segir Halldór Guð-
mundsson, bókmenntafræðingur og
rithöfundur. „Íslendingar hafa um
aldir fundið sér samastað í tilver-
unni með sögum. Heimspekileg
hugsun hefur aldrei verið okkar
sterka hlið en sagnagerðin þeim
mun frekar.“
Nýlega kom út hjá Forlaginu bók
Halldórs, Sagnalandið, þar sem
segir frá 30 stöðum víða um land
sem tengjast höfundum, bók-
menntaverkum, þjóðsögum og at-
burðum í Íslandssögunni. Meðal
annars segir frá Flatey á Breiða-
firði, þar sem stendur elsta bók-
hlaða á Íslandi og kvikmyndir hafa
oft verið teknar upp; Rauðasandi,
Sjöundá og Svartfugli og Merkigili
í Skagafirði þar sem bjó Mónika
Helgadóttir, sem Guðmundur G.
Hagalín gerði fræga með bókinni
Konan í dalnum og dæturnar sjö.
Sömuleiðis segir frá Skriðuklaustri
Gunnars Gunnarssonar, skálda-
þorpinu Hveragerði og Bessastöð-
um, forsetasetrinu sem nefnt er
víða í bókmenntum þjóðarinnar.
Myndirnar í bókinni tók Dagur
Gunnarsson en saman fóru þeir
Halldór um landið síðasta sumar í
efnisöflun.
„… það var hér sem“
„Heimspekileg hugsun hefur
aldrei verið okkar sterka hlið en
sagnagerðin þeim mun frekar, eins
og Páll Skúlason benti eitt sinn á.
Hér var engin hefðbundin borg-
araleg menning lengi vel, við vorum
ekki framarlega í tónlist eða mynd-
list, en fólk gat sagt sögur eða farið
með kvæði um flesta hluti, og þann-
ig leitað átta,“ segir Halldór. „Íbú-
ar margra Evrópulanda geta séð og
skynjað sögu sína í stórkostlegri
byggingarlist allt í kringum sig, við
horfum á hóla og gil og segjum: það
var hér sem …“
Margir staðir á landinu hafa sér-
stakan stað í vitund fólks fyrir sög-
ur sem gerðust, eða þá vegna
skálda og rithöfunda sem staðina
sátu. Herdísarvík í Selvogi þekkj-
um við flest sakir þess að þar bjó
stórskáldið Einar Benediktsson sín
síðustu ár.
„Í Herdísarvík er í fljótu bragði
ekki margt að sjá og fátt sem
ferðamenn að öllu jöfnu sækjast
eftir. Samt er staðurinn töfrum
slunginn í okkar huga af því skáldið
sem orti Útsæ eða Einræður Stark-
aðar bjó þar, fjarri glaumi bæj-
arins, síðasta áratug ævi sinnar.
Við röltum meðfram fjörunni og
hugsum til hans og Hlínar, sem
bruggaði ofan í hann og rak sauð-
fjárbúskap alveg fram á sjötta ára-
tuginn,“ segir Halldór.
Bókina Sagnalandið skrifaði Hall-
dór að ósk þýsks forlags sem vildi
bókmenntalega ferðabók um Ísland.
„Þau gáfu mér alveg frjálsar hend-
ur og þá kom mér þessi nálgun í
hug,“ segir Halldór sem lýsir bók-
inni sem samantekt úr ýmsum átt-
um og hann hafi hugsað hana sem
sagnaskemmtun.
Kleifarvatn og kalda stríðið
„En ég reyni að krydda þetta
með minningum sem ég á sjálfur
um suma staðina og frásögnum um
höfunda sem ég kynntist, og reyni
stundum að fara í óvæntar áttir,“
segir Halldór og að lokum: „Ás-
byrgi verður mér tilefni til að hug-
leiða kveðskap Gerðar Kristnýjar.
Kleifarvatn minnir á Arnald og
kalda stríðið og þar fram eftir göt-
um. Þetta er ekkert heildaryfirlit
um merkilegustu sögustaði lands-
ins, heldur einfaldlega staðir sem
ég hef sótt heim og sem tengjast
einhverju í bókmenntum okkar.
Suma staði leitar maður uppi bara
af því maður hefur heyrt um þá svo
fallegar sögur, svo sem Brettings-
staði á Flateyjardal, þaðan sem
Thor Vilhjálmsson var ættaður og
segir ógleymanlega frá formæðrum
sínum og forfeðrum í Raddir í garð-
inum. Af einhverjum ástæðum
finnst mér ég þá verða að líta slík-
an stað augum.“
Sögur gæða landið lífi
- Bókmenntirnar um land allt - Flatey og Skriðuklaustur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Höfundur Suma staði leitar maður uppi bara af því maður hefur heyrt um
þá svo fallegar sögur, segir Halldór Guðmundsson um Sagnalandið góða.
Ljósmynd/Dagur Gunnarsson
Skriðuklaustur Einn þrjátíu staða
sem segir frá í bókinni nýju.
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 208. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
KR-ingar eru komnir í þriðja sæti úrvalsdeildar karla í
knattspyrnu eftir sannfærandi 4:0-sigur á Fylki á
Meistaravöllum í gærkvöldi. Þá náði Óskar Örn Hauks-
son stórum áfanga er hann lék sinn 400. deildaleik á
ferlinum og skoraði sitt 100. mark er Vesturbæingar
virðast vera að finna sitt allra besta form. »26
Sannfærandi KR-ingar og stór
áfangi Óskars í Vesturbænum
ÍÞRÓTTIR MENNING