Morgunblaðið - 27.07.2021, Page 32

Morgunblaðið - 27.07.2021, Page 32
Anna Sóley Ásmundsdóttir söngkona kemur ásamt hljómsveit fram á tónleikum í Mengi annað kvöld, mið- vikudag, kl. 21. Með Önnu Sóleyju koma fram Lilja María Ásmundsdóttir á hljóðfæri sem nefnist Hulda, Mikael Máni Ásmundsson á gítar, Snorri Skúlason á kontrabassa, Magnús Trygvason Eliassen á trommur og Tumi Árnason á tenórsaxófón. Flytja þau frumsamið efni sem ætlunin er að hljóðrita í ágúst. Lagasmíðarnar dansa á mörkum djass, popps og alþýðutónlistar. Text- arnir eru gjarnan draumkenndir og helst það vel í hend- ur við andrúmsloftið í tónlistinni, að því er segir í til- kynningu. Anna Sóley lauk í vor djass- og popp- söngnámi við ArtEZ Conservatory í Arnhem í Hollandi. Anna Sóley og hljómsveit í Mengi Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Frásagnarlistin gæðir landið lífi í huga okkar,“ segir Halldór Guð- mundsson, bókmenntafræðingur og rithöfundur. „Íslendingar hafa um aldir fundið sér samastað í tilver- unni með sögum. Heimspekileg hugsun hefur aldrei verið okkar sterka hlið en sagnagerðin þeim mun frekar.“ Nýlega kom út hjá Forlaginu bók Halldórs, Sagnalandið, þar sem segir frá 30 stöðum víða um land sem tengjast höfundum, bók- menntaverkum, þjóðsögum og at- burðum í Íslandssögunni. Meðal annars segir frá Flatey á Breiða- firði, þar sem stendur elsta bók- hlaða á Íslandi og kvikmyndir hafa oft verið teknar upp; Rauðasandi, Sjöundá og Svartfugli og Merkigili í Skagafirði þar sem bjó Mónika Helgadóttir, sem Guðmundur G. Hagalín gerði fræga með bókinni Konan í dalnum og dæturnar sjö. Sömuleiðis segir frá Skriðuklaustri Gunnars Gunnarssonar, skálda- þorpinu Hveragerði og Bessastöð- um, forsetasetrinu sem nefnt er víða í bókmenntum þjóðarinnar. Myndirnar í bókinni tók Dagur Gunnarsson en saman fóru þeir Halldór um landið síðasta sumar í efnisöflun. „… það var hér sem“ „Heimspekileg hugsun hefur aldrei verið okkar sterka hlið en sagnagerðin þeim mun frekar, eins og Páll Skúlason benti eitt sinn á. Hér var engin hefðbundin borg- araleg menning lengi vel, við vorum ekki framarlega í tónlist eða mynd- list, en fólk gat sagt sögur eða farið með kvæði um flesta hluti, og þann- ig leitað átta,“ segir Halldór. „Íbú- ar margra Evrópulanda geta séð og skynjað sögu sína í stórkostlegri byggingarlist allt í kringum sig, við horfum á hóla og gil og segjum: það var hér sem …“ Margir staðir á landinu hafa sér- stakan stað í vitund fólks fyrir sög- ur sem gerðust, eða þá vegna skálda og rithöfunda sem staðina sátu. Herdísarvík í Selvogi þekkj- um við flest sakir þess að þar bjó stórskáldið Einar Benediktsson sín síðustu ár. „Í Herdísarvík er í fljótu bragði ekki margt að sjá og fátt sem ferðamenn að öllu jöfnu sækjast eftir. Samt er staðurinn töfrum slunginn í okkar huga af því skáldið sem orti Útsæ eða Einræður Stark- aðar bjó þar, fjarri glaumi bæj- arins, síðasta áratug ævi sinnar. Við röltum meðfram fjörunni og hugsum til hans og Hlínar, sem bruggaði ofan í hann og rak sauð- fjárbúskap alveg fram á sjötta ára- tuginn,“ segir Halldór. Bókina Sagnalandið skrifaði Hall- dór að ósk þýsks forlags sem vildi bókmenntalega ferðabók um Ísland. „Þau gáfu mér alveg frjálsar hend- ur og þá kom mér þessi nálgun í hug,“ segir Halldór sem lýsir bók- inni sem samantekt úr ýmsum átt- um og hann hafi hugsað hana sem sagnaskemmtun. Kleifarvatn og kalda stríðið „En ég reyni að krydda þetta með minningum sem ég á sjálfur um suma staðina og frásögnum um höfunda sem ég kynntist, og reyni stundum að fara í óvæntar áttir,“ segir Halldór og að lokum: „Ás- byrgi verður mér tilefni til að hug- leiða kveðskap Gerðar Kristnýjar. Kleifarvatn minnir á Arnald og kalda stríðið og þar fram eftir göt- um. Þetta er ekkert heildaryfirlit um merkilegustu sögustaði lands- ins, heldur einfaldlega staðir sem ég hef sótt heim og sem tengjast einhverju í bókmenntum okkar. Suma staði leitar maður uppi bara af því maður hefur heyrt um þá svo fallegar sögur, svo sem Brettings- staði á Flateyjardal, þaðan sem Thor Vilhjálmsson var ættaður og segir ógleymanlega frá formæðrum sínum og forfeðrum í Raddir í garð- inum. Af einhverjum ástæðum finnst mér ég þá verða að líta slík- an stað augum.“ Sögur gæða landið lífi - Bókmenntirnar um land allt - Flatey og Skriðuklaustur Morgunblaðið/Sigurður Bogi Höfundur Suma staði leitar maður uppi bara af því maður hefur heyrt um þá svo fallegar sögur, segir Halldór Guðmundsson um Sagnalandið góða. Ljósmynd/Dagur Gunnarsson Skriðuklaustur Einn þrjátíu staða sem segir frá í bókinni nýju. ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 208. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. KR-ingar eru komnir í þriðja sæti úrvalsdeildar karla í knattspyrnu eftir sannfærandi 4:0-sigur á Fylki á Meistaravöllum í gærkvöldi. Þá náði Óskar Örn Hauks- son stórum áfanga er hann lék sinn 400. deildaleik á ferlinum og skoraði sitt 100. mark er Vesturbæingar virðast vera að finna sitt allra besta form. »26 Sannfærandi KR-ingar og stór áfangi Óskars í Vesturbænum ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.