Morgunblaðið - 27.07.2021, Qupperneq 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021
✝
Sigurlaug
Jónsdóttir
fæddist á Sauð-
árkróki 21. ágúst
1927. Hún and-
aðist á líknardeild
Landspítalans 15.
júlí 2021.
Foreldrar
hennar voru
Ragnhildur Páls-
dóttir Leví frá
Heggstöðum í
Húnaþingi, f.
15.1. 1895, d. 13.2. 1970, og
Jón Sigtryggsson frá Fram-
nesi í Skagafirði, f. 8.3. 1893,
d. 3.12. 1974. Systkini hennar
eru Ingibjörg Pála, f. 24.5.
1926, Páll Leví, f. 25.8. 1928,
d. 23.4. 1941, Sigrún Tryggv-
ina, f. 24.6. 1931, d. 10.4.
2018, og Guðný, f. 11.10. 1932,
d. 10.4. 1937.
Sigurlaug giftist 12.12.
1953 Árna Jónssyni, hús-
gagnaarkitekt og hús-
gagnasmíðameistara, f. 2.4.
1929 á Kópaskeri, d. 1.12.
1983. Foreldrar hans voru
Valgerður Guðrún Sveins-
dóttir frá Felli í Sléttuhlíð í
Skagafirði, f. 8.12. 1895, d.
10.11. 1983, og Jón Árnason
frá Garði í Mývatnssveit, f.
ull, f. 2013, og Indíana Hulda,
f. 2016. c) Árni Pétur, f. 1995.
4. Ragnar, f. 1968, kvæntur
Áslaugu Björgvinsdóttur, f.
1966. Börn þeirra eru a) Elín
Ragnhildur, f. 2003, b) Björg-
vin Hugi, f. 2005 og c) Þur-
íður Helga, f. 2007.
Sigurlaug gekk í Sam-
vinnuskólann í Reykjavík. Að
námi loknu vann hún við
skrifstofustörf hjá Hampiðj-
unni í Reykjavík. Hún hélt
síðan til Kaupmannahafnar
árið 1949 og stundaði þar
nám við Håndarbejdets
Fremme. Síðar vann hún hjá
endurskoðanda og starfaði við
bókhald þar ytra. Í Kaup-
mannahöfn felldu þau hugi
saman Sigurlaug og Árni sem
nam húsgagnaarkitektúr þar í
borg. Sigurlaug og Árni
sigldu heim til Íslands sum-
arið 1953 og stofnuðu þá hús-
gagnaverkstæði og verslun
við Laugaveginn sem bar
heitið Húsgagnaverslun Árna
Jónssonar. Síðar hófu þau
einnig sölu á listmunum og
gjafavöru. Frá árinu 1977 var
verslunin rekin undir nafninu
Kúnst. Eftir fráfall Árna árið
1983 rak Sigurlaug versl-
unina í sjö ár. Hún starfaði
síðan um árabil sem sjálf-
boðaliði í verslun Rauða
krossins á Landspítalanum við
Hringbraut.
Sigurlaug verður jarð-
sungin frá Bústaðakirkju í
dag, 27. júlí 2021, klukkan 13.
10.9. 1889, d.
10.1. 1944.
Sigurlaug og
Árni eignuðust
fjögur börn. Þau
eru: 1. Jón Þór, f.
1954, kvæntur
Hallfríði Sigurð-
ardóttur, f. 1961.
Börn þeirra eru
a) Árni, f. 1993,
og b) Sigurður
Kristinn, f. 1996,
maki Margrét Ýr
Ólafsdóttir, f. 1997. 2. Páll, f.
1957, kvæntur Eddu Lilju
Sveinsdóttur, f. 1958. Börn
þeirra eru a) Örn, f. 1987,
maki Valgerður Guðmunds-
dóttir, f. 1988, dóttir þeirra er
Lilja, f. 2017. b) Harpa, f.
1989, maki Eyþór Björnsson,
f. 1988, þeirra synir eru Dag-
ur, f. 2016, og Kári, f. 2018, c)
Sveinn, f. 1992, maki Renfei
Liu, f. 1995. 3. Ásdís, f. 1962,
gift Jóni Bergsveinssyni, f.
1960. Börn þeirra eru a) Sig-
urlaug, f. 1984, maki Sævar I.
Haraldsson, f. 1984, börn
þeirra eru Róbert Hugi, f.
2010, Hrafn, f. 2011, og Auður
Rut, f. 2014. b) Kristín Rut, f.
1985, maki Úlfar G. Finsen, f.
1982, börn þeirra eru Jón Jök-
Rúm þrjátíu ár eru síðan ég
kynntist tengdamóður minni Sig-
urlaugu Jónsdóttur, Diddu, þeg-
ar við Ragnar sonur hennar fór-
um að vera saman. Margs er að
minnast og þakka fyrir. Didda
var afar vel gefin, minnug og
skemmtileg. Hún var raungóð og
rausnarleg við afkomendur sína
og tengdabörn. Þótt líkamleg
heilsa væri farin að gefa sig síð-
ustu árin var andlegt jafnvægi og
vitræn geta í toppstandi allt fram
á síðasta dag.
Didda lauk samvinnuskóla-
prófi átján ára gömul og vann við
bókhald og skrifstofustörf að því
loknu, fyrst hér heima en frá
árinu 1949 í Kaupmannahöfn þar
til hún og Árni eiginmaður henn-
ar komu heim sumarið 1953. Eft-
ir heimkomuna hófust þau handa
við að koma undir sig fótunum og
stofna húsgagnafyrirtæki og
verslun. Árni hannaði og smíðaði
húsgögn sem þau seldu í versl-
uninni. Didda tók þátt í rekstr-
inum samhliða barnauppeldi og
heimilisstörfum. Hún saumaði
m.a. áklæði á svefnbekki og
púða. Þá var ekki verra að hafa
lært kjólasaum í Kaupmanna-
höfn.
Hjónaband Diddu og Árna var
einstaklega farsælt. Þar ríkti
gagnkvæm ást, virðing og traust.
Þau voru samrýnd og samhent í
öllu sem þau tóku sér fyrir hend-
ur. Árni lést langt fyrir aldur
fram, aðeins 54 ára að aldri, eftir
nokkurra mánaða veikindi. Það
var stórt áfall og sorgin mikil en
lífið hélt áfram. Hún tók við
starfi Árna við rekstur verslun-
arinnar og þegar hún seldi hana
árið 1990 leigði hún út atvinnu-
húsnæðið að Laugavegi 40.
Didda nefndi stundum að henni
hefði raunar þótt miklu
skemmtilegra að afgreiða í búð-
inni en að sinna heimilisstörfum.
Dugnaður Diddu, agi, þraut-
seigja og sjálfstæði fór ekki fram
hjá neinum sem henni kynntist.
Hennar besta hrós um fólk og við
fólk var að það væri duglegt.
Didda hélt áfram að tileinka
sér nýja færni þótt aldurinn
færðist yfir. Þegar iPad og iP-
hone, öll öppin og samfélagsmiðl-
arnir komu til sögunnar tileink-
aði hún sér þessa nýju
möguleika. Hún las Morgunblað-
ið og Fréttablaðið á hverjum
degi og leysti krossgátur, sudoku
og allar aðrar hugarþrautir sem
blöðin buðu upp á. Þar hjálpaði
að hún var alla tíð sérstaklega
talnaglögg. Hún hafði skoðanir á
mönnum og málefnum, s.s. hár-
greiðslu afkomenda sinna, fata-
vali og förðun, aðild Íslands að
ESB og þriðja orkupakkanum.
Hún hafði gaman af að spila, s.s.
Skrafl og Rummikub, og spilaði
leikinn Candy Crush á iPadinum
þar sem hún komst í borð 1.872
áður en hún þurfti að leggja
iPadinn til hliðar nokkrum dög-
um fyrir andlátið.
Didda var komin á áttræðis-
aldur þegar hún lagðist fyrst á
spítala til annars en að eiga börn.
Hún veiktist nokkrum sinnum al-
varlega og var hætt komin en
alltaf stóð hún veikindin af sér.
Hún var þakklát fyrir það og
fólkið sitt. Í fjölskylduboði þar-
síðustu jól hjá syni sínum orðin
veik til heilsunnar sagði hún
glaðlega: „Mikið er ég þakklát
fyrir að vera á lífi og geta verið
hér með ykkur.“ Og hún geislaði
af þakklæti og ánægju þegar hún
sagði þetta. Það var fallegt og
eftirminnilegt. Ég, Ragnar og
börnin okkar söknum Diddu og
erum innilega þakklát fyrir tím-
ann með henni.
Áslaug Björgvinsdóttir.
Elsku Didda amma
Það er okkur systrum ljúfsárt
að kveðja þig í hinsta sinn. Þú
áttir langa og góða ævi og það er
gott að hugsa til þess að nú séuð
þið afi loksins sameinuð, en við
munum sakna þess að kíkja til
þín í rótsterkt kaffi og kræsingar
og ræða hin ýmsu mál. Síðustu
mánuði og ár rifjaðirðu gjarnan
upp gamla tíma sem er dýrmætt
að hafa fengið að heyra um.
Langömmubörnin munu sakna
ömmu-súkkulaðigríss og verður
minningu þinni haldið á lofti með
súkkulaði á tyllidögum, eða bara
alla daga. Við systur vorum svo
heppnar að hafa varið miklum
tíma með þér á okkar yngri árum
heima hjá þér í Lálandinu og í
sumarbústaðnum okkar við Apa-
vatn. Þú kenndir okkur að tala
góða íslensku, borða sviða-
kjamma, spila lönguvitleysu,
sletta á dönsku og nota sólina til
hins ýtrasta þegar hún birtist.
Þú elskaðir að safna freknum á
Spáni og varst svo frábær að
bjóða öllum þínum afkomendum
með þér í sólina á fimm ára
fresti, í kringum afmælið þitt í
ágúst á heilum og hálfum tug.
Fyrir þær ferðir verðum við æv-
inlega þakklátar og munum taka
þig okkur til fyrirmyndar á
seinni árum. Þegar við lítum til
baka sjáum við hversu mikil
kjarnakona þú varst. Afi lést fyr-
ir aldur fram og þú sinntir eftir
hans dag fjölskyldu, heimili og
búðarrekstri og tókst verkefninu
af æðruleysi og dugnaði. Þú
varst okkur meiri fyrirmynd en
þig grunaði og við vonum að við
höfum erft brot af þínum dugn-
aði og krafti í beinan kvenlegg.
Elsku besta amma, takk fyrir
hláturinn, umhyggjuna, tímann,
spilin, margföldu kossana á kinn-
ina og allt súkkulaðið. Við trúum
því að afi hafi tekið vel á móti þér
og treystum því að þú passir
áfram upp á okkur eins og þú lof-
aðir þegar við kvöddumst.
„Tak skal du ha“
Þínar
Sigurlaug (Didda) og
Kristín Rut.
Elsku amma okkar er farin og
svo sorglegt að við eigum ekki
eftir að hitta hana aftur og njóta
samvista með henni. Við höfum
samt fengið ár til að búa okkur
undir það að ævi ömmu væri
senn á enda og raunar fengum
við lengri tíma með henni en við
höfðum þorað að vona í fyrra
þegar hún greindist með krabba-
meinið. Síðustu vikurnar var hún
orðin svo veik og máttfarin að við
skildum að komið var að enda-
lokum, sennilega fyrr en síðar.
Amma var okkur sérstaklega
náin og okkur þótti mjög vænt
um hana. Hún sýndi okkur mikla
hlýju, væntumþykju og athygli.
Passaði okkur þegar við vorum
yngri og spilaði þá gjarnan við
okkur eða las fyrir okkur. Þegar
við vorum yngri þá var hún alltaf
með súkkulaði og brjóstsykur í
töskunni sinni, sem okkur þótti
mjög spennandi. Það var gaman
að vera með henni og sérstak-
lega notalegt að heimsækja
hana. Hún hafði gaman af að
spila og við nutum þess að sitja
við borðstofuborðið hennar og
spila m.a. Rummikub og Se-
quence. Nærvera ömmu var hlý
og okkur leið vel með henni. Hún
var hjálpsöm og m.a. studdi hún
Elínu við dönskunám einn vetur
og sagði þá líka frá Kaupmanna-
hafnarárunum sem heyra mátti
að voru ánægjuleg. Heimili
hennar var fallegt og gott að
heimsækja hana. Það var alltaf
eitthvað gott í ísskápnum.
Amma fylgdist vel með lífi
okkar og allra í fjölskyldunni.
Var dugleg að hrósa okkur en lét
líka óhikað í ljós ef henni fannst
að eitthvað mætti betur fara.
Hún nefndi það stundum við
okkur, að það hefði ekki tíðkast
að hrósa mikið þegar hún var
barn og það hefði mátt gera
meira af því. Amma var falleg og
fín kona, klár, reglusöm og raun-
góð. Allt í röð og reglu og stund-
um var hún alveg hissa á að for-
eldrar okkar væru ekki með
fasta staði fyrir alla hluti. Amma
var góð fyrirmynd í seiglu,
vinnusemi og að kaupa ekki
óþarfa en þó svo rausnarleg við
okkur og fólkið sitt. Við erum
innilega þakklát fyrir að hafa átt
hana og fengið góðan tíma með
henni. Minningar okkar um hana
eru dýrmætar og þær munu lifa
með okkur áfram.
Elín Ragnhildur, Björgvin
Hugi og Þuríður Helga.
Sigurlaug
Jónsdóttir Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir og afi,
EYÞÓR BJÖRGVINSSON
læknir,
Kópavogstúni 9,
lést á Landspítala fimmtudaginn 22. júlí.
Hann verður jarðsunginn frá Lindakirkju fimmtudaginn
29. júlí klukkan 13.
Ágústa B. Herbertsdóttir
Ólína Þorleifsdóttir
Eyþór Ingi Eyþórsson Inga R. Bachmann
Ásta Eyþórsdóttir
Finnur Már Eyþórsson Björg Ó. Gunnarsdóttir
Gróa Laufey Eyþórsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BÓEL ÍSLEIFSDÓTTIR,
Vogatungu 7, Kópavogi,
lést fimmtudaginn 8. júlí.
Útförin fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn
29. júlí klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á slóðinni:
https://hljodx.is/index.php/streymi
Pétur F. Ottesen
Ingibjörg F. Ottesen Garðar Valur Jónsson
Ísleifur F. Ottesen Svala Ólafsdóttir
Þuríður F. Ottesen
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og fósturmóðir,
MARGRÉT HAGALÍNSDÓTTIR
ljósmóðir,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni
17. júlí, verður jarðsungin frá Háteigskirkju
föstudaginn 30. júlí klukkan 10.
Reynir Þórðarson
Smári Haraldsson Helga Friðriksdóttir
Agnes M. Sigurðardóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir
Rannveig Sif Sigurðardóttir
Gunnhildur Reynisdóttir
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐBJÖRG ÁRNADÓTTIR
frá Stykkishólmi,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn
20. júlí. Útför hennar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 29. júlí klukkan 13.
Edda Ingvarsdóttir Sigurður Pétur Guðnason
Rannveig Ingvarsdóttir Hörður Sigurjónsson
Rakel Ingvarsdóttir Þorvaldur Karlsson
Gústaf Hinrik Ingvarsson
Benedikt Gunnar Ingvarsson Sigríður Haraldsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
GUÐRÚN ÁSGERÐUR JÓNSDÓTTIR
Ása
Klapparhlíð 5, Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
22. júlí. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn
6. ágúst klukkan 13.
Sigurbjartur Helgason
Helgi Sigurbjartsson Kristín Bjarnadóttir
Jón Ásgeir Sigurbjartsson Guðrún Margrét Jóhannesd.
Arnar Sigurbjartsson Unnur Malín Sigurðardóttir
barnabörn, barnabarnabörn
barnabarnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORGEIR BRIMIR HJALTASON,
Raufarhöfn,
lést á HSN á Húsavík þriðjudaginn 20. júlí.
Útför hans fer fram frá Raufarhafnarkirkju
laugardaginn 31. júlí klukkan 14.
Signý Einarsdóttir
Þórhildur Hrönn Þorgeirsdóttir
Fjóla Björg Þorgeirsdóttir
Heiða Ingunn Þorgeirsdóttir
Hörður Ingimar Þorgeirsson
Hugrún Elva Þorgeirsdóttir
makar, barnabörn og barnabarnabörn