Morgunblaðið - 27.07.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 27.07.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021 Ýmsar gerðir af heyrnar- tækjum í mismunandi litum og stærðum. Allar helstu rekstrarvörur og aukahlutir fyrir heyrnartæki fást í vefverslun heyrn.is HEYRNARÞJÓNUSTA 2007 HLÍÐASMÁRI 19, 2. HÆÐ • 201 KÓPAVOGI • SÍMI 534 9600 HEYRN@HEYRN.IS • HEYRN.IS Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu „EKKI FARA ÚT Í SMÁATRIÐI. SEGÐU BARA MÖMMU ÞINNI AÐ VIÐ VERÐUM SEINIR HEIM.“ „ÉG LAGÐI ÓLÖGLEGA FYRIR FRAMAN DÓMSHÚSIÐ.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að láta hann vita að þú elskar hann. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞETTA ER ÉG NÝROG ENDURBÆTTUR! NÚ 25 PRÓSENTUM KALDHÆÐNARI FLJÓTUR! OPNAÐU DYRNAR! BAKARÍ snarvitlaus veður. „En þetta var gaman, en öðruvísi ábyrgð, því það er lítið af fragt en mikið af fólki.“ Ívar og Kristbjörg eru búin að vera að ferðast um landið í boði barna sinna og í kvöld heldur fjöl- skyldan upp á afmælið saman. Fjölskylda Eiginkona Ívars er Kristbjörg Gunnarsdóttir verslunarmaður, f 23.8. 1948, og þau búa í Reykjavík. Foreldrar Kristbjargar eru hjónin Gunnar B.H. Sigurðsson ökukenn- ari, f. 20.4. 1928, d. 3.5. 2016, og Þór- dís Grímheiður Magnúsdóttir hús- móðir, f. 19.1. 1928, d. 25.5. 2019. Þau bjuggu í Reykjavík. Börn Kristbjargar og Ívars eru: 1) Íris, naglafræðingur í Reykjavík, f. 14.5. 1972. Hún á dótturina Magneu Björgu Jónsdóttur, f. 1994; Ívar Kristinsson, f. 2002, og Maríu Krist- insdóttur, f. 2002. 2) Anna Vilborg, hómópati og viðskiptafræðingur og vinnur hjá Kötlu Travel í Reykjavík, f. 16.5. 1975, gift Frédéric Leca, CEO hjá Samskipum í Hollandi. Þau búa bæði í Garðabæ og Hollandi og eiga börnin Elías Orra, f. 2006; Aron Ívar, f. 2009, og Thomas Frey, f. 2011. 3) Gunnhildur Björg, kennari í Reykjavík, f. 3.8. 1978, gift Sigur- steini Kristjánssyni og þau eiga börnin Elvar Inga, f. 2002; Ísar Snæ, f. 2007, og Ernu Sigríði, f. 2010. Bræður Ívars eru Sigurður Ágúst, sjómaður, f. 5.7. 1945; Björn, renni- smiður og eigandi Fjöltækni, f. 10.11. 1946; Skúli Gunnlaugur, sjómaður og vann á skrifstofunni á Eimskip lengst af, f. 24.10. 1949; Ásgeir, átti fyrirtækið Arctic Trading, sjómaður og verslunarmaður, f. 8.10. 1952, og Kristinn Andrés sjómaður, f. 7.10. 1957, d. 10.2. 1984. Foreldrar Ívars voru hjónin Gunn- laugur B. Björnsson framkvæmda- stjóri, f. 27.7. 1917, d. 21.12. 1990, og Vilborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 21.4. 1926, d. 22.11. 1974. Þau bjuggu í Reykjavík. Ívar Gunnlaugsson Sigríður Jónsdóttir húsfreyja á Neðri-Hálsi í Kjós Jón Guðmundsson verkamaður í Reykjavík Ólína Ágústa Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skipstjóri í Reykjavík Vilborg Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík Vilborg Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík Sigurður Bjarnason tómthúsmaður í Reykjavík Kristín Andrésdóttir húsfreyja á Hömrum í Gnúpverjahreppi Guðmundur „yngri“ Ámundarsson bóndi á Hömrum í Gnúpverjahreppi Sesselja Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Björn Gunnlaugsson innheimtumaður í Reykjavík Björg Árnadóttir bóndi í Múla og Syðri-Völlum í Kirkjuhvammshreppi Gunnlaugur Gunnlaugsson bóndi í Múla og á Syðri-Völlum í Kirkjuhvammshreppi Úr frændgarði Ívars Gunnlaugssonar Gunnlaugur B. Björnsson framkvæmdastjóri í Reykjavík Guðni Ágústsson sendi mér póst á föstudag en hann var þá stadd- ur á Austurvell. Hann sendi séra Hjálmari mynd þar sem mávur sat á kolli styttunnar af Jóni Sigurðssyni. Hjálmar orti á augabragði: Ekki finnst mér fögur sjón fylla skjáinn minn yfir dáðadrenginn Jón dritar mávurinn Á föstudag skrifaði Sigrún Huld Þorgrímsdóttir á Boðnarmjöð: „Á Lónsöræfum gleðja berggangar augað. Landið skóp Kollumúla- eldstöðin fyrir 5-6 milljónum ára. Því barði ég þetta saman: Perlufestar fjöllin hnýta fagurt er þá smíð að líta. Bergganga þær ber að kalla, býsn þeir auka dýrðir fjalla. Klárt er að hér knátti malla Kollumúlastöðin snjalla. Golli, Kjartan Þorbjörnsson, skrif- ar: „Var á gönguför um Horn- strandir með góðum hóp. Eftir göngu frá Aðalvík yfir í Fljótavík með viðkomu á Straumnesfjalli fæddist þessi“: Af fjallabrík sést fegurð slík, Fljótavíkin bjarta. Í léttum flíkum vöðum vík, verðum rík í hjarta. „Seinna gengum við að Hesteyri og áttum þar töfratíma í yndislegu veðri. Þessi limra varð til á bryggj- unni við brottför“: Ef líf þitt geymir eina örðu af augnabliki hér á jörðu, þinn hugur sér að hentar þér Hesteyri við Jökulfjörðu. Það liggur vel á Kristjáni H. Theó- dórssyni: Júlínótt á Norðurlandi, nú er kyrrð. Ekkert stríð og allt í standi, ef þú spyrð. Kneyfa ölið kalt úr glasi, kann því vel. Naumast á mér nokkur asi, í næði dvel. Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir „Þynnkuþanka“; Villtu faðir líkn mér ljá leita verð ég svara. Gjarnan yrði gott að fá góðan afréttara. Gunnar J. Straumland er mikill matmaður: Saltar og sykraðar ormsdætur og súrsaðar gíraffahnésbætur ég grillaði í sudda með görnum af tudda. Í desert fæ dansandi kiðfætur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á Lónsöræfum og á Hornströndum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.