Morgunblaðið - 27.07.2021, Side 26

Morgunblaðið - 27.07.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021 Pepsi Max-deild karla KR – Fylkir............................................... 4:0 Staðan: Valur 14 9 3 2 25:13 30 Víkingur R. 14 8 5 1 22:12 29 KR 14 7 4 3 24:14 25 Breiðablik 13 7 2 4 29:18 23 KA 13 7 2 4 19:9 23 FH 13 5 3 5 18:17 18 Leiknir R. 14 5 2 7 15:19 17 Keflavík 13 5 1 7 17:22 16 Fylkir 14 3 5 6 17:25 14 Stjarnan 14 3 4 7 14:23 13 HK 14 2 4 8 14:26 10 ÍA 14 2 3 9 13:29 9 Markahæstir: Nikolaj Hansen, Víkingi R ....................... 13 Sævar Atli Magnússon, Leikni R............. 10 Steven Lennon, FH..................................... 8 Joey Gibbs, Keflavík ................................... 8 Patrick Pedersen, Val ................................. 6 Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA ......... 6 Ásgeir Sigurgeirsson, KA .......................... 6 Lengjudeild kvenna Grindavík – Grótta ................................... 3:1 Víkingur R. – Haukar .............................. 2:0 FH – Augnablik........................................ 7:1 HK – Afturelding ..................................... 0:2 Staðan: KR 11 9 1 1 32:14 28 FH 12 8 2 2 32:11 26 Afturelding 12 7 4 1 29:11 25 Víkingur R. 12 4 4 4 20:22 16 Haukar 12 4 3 5 17:19 15 Grótta 12 4 1 7 17:26 13 Grindavík 12 2 5 5 17:22 11 ÍA 11 3 1 7 11:26 10 HK 11 2 3 6 14:26 9 Augnablik 11 2 2 7 17:29 8 2. deild kvenna SR – ÍR...................................................... 2:8 Staðan: FHL 10 9 0 1 46:12 27 Völsungur 9 7 1 1 22:10 22 KH 9 7 0 2 30:8 21 Fram 9 7 0 2 26:11 21 Fjölnir 9 6 1 2 36:12 19 ÍR 9 4 1 4 25:21 13 Sindri 9 4 0 5 20:23 12 Hamrarnir 9 3 2 4 21:19 11 Einherji 10 2 3 5 18:19 9 Hamar 8 2 3 3 14:18 9 SR 9 1 1 7 17:28 4 Álftanes 9 1 0 8 6:19 3 KM 9 0 0 9 1:82 0 Bandaríkin New England – CF Montréal ................. 2:1 - Arnór Ingvi Traustason lék í 63 mínútur með New England og lagði upp fyrra mark liðsins. - Róbert Orri Þorkelsson var ekki í leik- mannahópi CF Montréal. New York City – Orlando City............... 5:0 - Guðmundur Þórarinsson var varamaður hjá New York og kom ekki við sögu. _ Efst í Austurdeild: New England 33, Nashville 26, Orlando City 25, Philadelphia Union 24, Columbus Crew 24, New York City 23, CF Montréal 22. Svíþjóð Varberg – Gautaborg ............................. 2:0 - Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 84 mín- úturnar fyrir Gautaborg. Staða efstu liða: Malmö 13 9 2 2 31:16 29 Djurgården 12 8 3 1 22:7 27 Elfsborg 13 7 2 4 19:13 23 Hammarby 12 6 3 3 24:16 21 AIK 12 6 3 3 16:12 21 Norrköping 12 5 2 5 15:12 17 Häcken 12 4 4 4 17:16 16 Danmörk SönderjyskE – Vejle................................ 1:0 - Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á 77. mínútu hjá SönderjyskE. Staða efstu liða: Randers 2 1 1 0 3:1 4 OB 2 1 1 0 3:2 4 Viborg 2 1 1 0 3:2 4 SønderjyskE 2 1 1 0 1:0 4 >;(//24)3;( KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Eimskipsv.: Þróttur R. – Keflavík ...... 19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Saltpay-völlur: Þór – Fram ...................... 18 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Norðurálsvöllur: ÍA – KR.................... 19.15 Í KVÖLD! Manchester United og Real Madríd hafa komist að samkomulagi um kaupverð á franska knattspyrnu- manninum Raphael Varane og má búast við því að félagsskiptin verði opinberuð á næstu dögum. Samkvæmt BBC mun United greiða um 42 milljónir punda fyrir miðvörðinn sem hefur verið lyk- ilmaður Real og franska landsliðs- ins um árabil. Hann varð heims- meistari með Frökkum sumarið 2018 og sigraði í Meistaradeild Evr- ópu með Real Madríd þrjú ár í röð, 2016, 2017 og 2018. Man. Utd. að kaupa Varane AFP Félagsskipti Raphael Varane er á leiðinni til Manchester United. Ingunn Haraldsdóttir, fyrirliði KR, hefur samið við grísku meistarana PAOK og verður þar með fyrsta ís- lenska knattspyrnukonan til að spila með grísku liði. Ingunn er 26 ára varnarmaður, hefur spilað með KR frá 2017 en lék áður með Val, Aftureldingu og HK/Víkingi og yngri landsliðum Íslands. PAOK varð grískur meistari með yfir- burðum á síðasta tímabili, vann alla sína leiki, og hefur leikið í Meist- aradeildinni undanfarin ár. Liðið tekur einmitt þátt í fyrstu umferð hennar í næsta mánuði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fyrirliði Ingunn Haraldsdóttir fagn- ar marki í leik með KR-ingum. Fyrst til að spila í Grikklandi KR – FYLKIR 4:0 1:0 Atli Sigurjónsson 9. 2:0 Óskar Örn Hauksson 38. 3:0 Kristján Flóki Finnbogason 56. 4:0 Ægir Jarl Jónasson 78. MM Atli Sigurjónsson (KR) Kristinn Jónsson (KR) M Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR) Pálmi Rafn Pálmason (KR) Kennie Chopart (KR) Theódór Elmar Bjarnason (KR) Óskar Örn Hauksson (KR) Stefán Árni Geirsson (KR) Ásgeir Eyþórsson (Fylki) Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 6. Áhorfendur: 412. FÓTBOLTINN Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is KR-ingar virðast vera að finna sitt allra besta form á Íslandsmótinu í knattspyrnu eftir afar sannfærandi 4:0-stórsigur á Fylki á Meist- aravöllum í lokaleik 14. umferð- arinnar í gærkvöldi. Vesturbæingar eru þar með komnir með 25 stig í þriðja sæti deildarinnar, hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sín- um, og eru nú fimm stigum á eftir toppliði og Íslandsmeisturum Vals. Reykjavíkurstórveldin mætast ein- mitt á Hlíðarenda í næstu umferð. _ Óskar Örn Hauksson var eins og oft áður í lykilhlutverki í leik KR- inga í gær en fyrirliðinn náði þar að auki stórum áfanga með því að leika sinn 400. deildaleik á ferlinum, heima og erlendis, auk þess að skora sitt 100. mark. Hann kom KR í 2:0 á 38. mínútu þegar boltinn hrökk af honum og í netið eftir að varn- armaður náði að koma sér fyrir skot Kennie Chopart á marklínu. Hann fékk svo dauðafæri í síðari hálfleik, en skaut í þverslá, og átti svo glæsi- skot skömmu síðar, af 20 metra færi, í innanverða stöngina og út. Óskar verður 37 ára í næsta mánuði og það telst til tíðinda ef hann missir af leik en hann er nú búinn að spila 130 leiki í röð með KR í úrvalsdeildinni og missti síðast af deildaleik með liðinu sumarið 2015. „KR-ingar áttu eflaust einn sinn allra besta leik á tímabilinu. Þeir réðu ferðinni frá fyrstu mínútu þar sem þeir komu mjög ákveðnir og innstilltir til leiks, náðu forystunni snemma og voru með undirtökin all- an tímann,“ skrifaði Víðir Sigurðs- son m.a. um leikinn á mbl.is. Eins og fyrr segir heimsækja KR-ingar næst topplið Vals en fimm stig skilja liðin að. Vesturbæingar fóru hægt af stað í sumar, unnu ekki nema tvo af fyrstu sex leikjum sínum og voru um tíma átta stigum á eftir Völsurum. Þeir gætu hins vegar saxað þá for- ystu niður í tvö stig og gert alvöru- áhlaup að Íslandsmeistaratitlinum með sigri á fjendum sínum á Hlíð- arenda í næsta leik. Einn besti leikur KR Morgunblaðið/Unnur Karen Vesturbær KR-ingurinn Kristinn Jónsson og Fylkismaðurinn Óskar Borg- þórsson fylgjast með boltanum á Meistaravöllum í leiknum í gærkvöldi. - Óskar Örn náði stórum áfanga Ólympíuleikar Karlar, C-riðill: Argentína – Slóvenía........................ 100:118 Japan – Spánn....................................... 77:88 _ Slóvenía 2, Spánn 2, Argentína 1, Japan 1. Konur, A-riðill: Suður-Kórea – Spánn........................... 69:73 Serbía – Kanada ................................... 72:68 _ Spánn 2, Serbía 2, Kanada 1, Suður-- Kórea 1. 4"5'*2)0-# FH er áfram í öðru sæti í fyrstu deild kvenna í knattspyrnu, Lengjudeildinni, eftir afar sannfær- andi 7:1-sigur á Augnabliki í Hafn- arfirðinum í gærkvöldi. Aftureld- ing, sem einnig er í harðri toppbaráttu, er í þriðja sætinu eftir 2:0-sigur á HK á útivelli. Alls voru fjórir leikir í Lengju- deildinni spilaðir í 12. umferðinni í gær en henni lýkur í kvöld þegar topplið KR heimsækir ÍA. KR er með 28 stig eftir 11 leiki en FH er nú með 26 stig að 12. leiknum lokn- um þökk sé stórsigrinum í gær. Aft- urelding er svo með 25 stig í þriðja sætinu eftir sína 12 leiki og sig- urinn í Kórnum. Grindavík lyfti sér úr fallsæti með 3:1-sigri á Gróttu á heimavelli og Víkingur vann Hauka 2:0 í Foss- voginum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Barátta FH og Afturelding eru í hörðum slag um úrvalsdeildarsæti. Liðin í toppbaráttunni unnu leiki sína í gær Kórónuveirufaraldurinn er aftur farinn að herja á Íslandsmótið í knattspyrnu, en leikmenn fjögurra liða í tveimur efstu deildum karla og kvenna hafa greinst með veir- una á undanförnum dögum. Allur leikmannahópur Leiknis úr Reykjavík er kominn í sóttkví eftir að einn leikmaður liðsins greindist með veiruna samkvæmt heimildum fótbolta.net. Umræddur leikmaður tók ekki þátt í leik liðsins gegn KA í Breiðholtinu á sunnudaginn, en Leiknismenn eiga næst að spila gegn Fylki í Árbænum á þriðjudag- inn eftir viku. Hjá Fylki er svo einnig smit en það er í herbúðum meistaraflokks kvenna. Leikmaður liðsins greind- ist með veiruna í gær og er búið að fresta leik Fylkis og Vals sem átti að fara fram á morgun. Afleit staða í Ólafsvík Fresta þurfti tveimur leikjum í fyrstu deild karla um helgina. Vík- ingar í Ólafsvík gátu ekki tekið á móti Frömurum á föstudaginn vegna smits í hópnum. Þá sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari liðsins, í samtali við Valtý Björn Valtýsson í hlaðvarpsþættinum Minni skoðun að staðan hjá liðinu væri erfið. Fjórir leikmenn Ólafsvíkinga eru smitaðir og í einangrun en allir aðr- ir leikmenn liðsins og þjálfarar eru í sóttkví. „Þetta er afleit staða en maður verður bara að vona það besta,“ sagði Guðjón Þórðarson. Sömuleiðis kom upp smit í her- búðum Kórdrengja og þurfti því að fresta leik liðsins gegn Aftureld- ingu sem fyrst átti að fara fram á föstudaginn, svo laugardaginn áður en honum var frestað ótiltekið. Veiran riðlar Íslands- mótinu á nýjan leik Morgunblaðið/Haukur Gunnarsson Veiran Margir eru komnir í sóttkví.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.