Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Blaðsíða 2
Hvernig stemningu viljið þið ná fram á tónleik- unum í Bókabúð máls og menningar á miðvikudag? Þessi staður bætir svolítið skemmtilegri stemningu í flóruna í Reykjavík. Það er allt lágstemmt og menningarlegt og saga húss- ins kallar á ákveðna stemningu. Við höfum spilað nokkrum sinnum með Þorleifi og búið til lágstemmda útgáfu af bæði eldri lögum og óútgefnum sem verða gefin út á plötu seinna á árinu. Við not- uðum tækifærið og nálguðumst mikið af tónlistinni aftur í sinni einföldustu mynd. Við erum vön að spila allt frá því að vera tvö upp í 15 með kór og strengjasveit. Okkur finnst þetta vera full- komin blanda, þessi nálgun og þetta hús. Við erum að smíða hljómsveitina út frá tónleikastaðnum í raun. Hvað greinir Bókabúð máls og menningar frá öðrum tónleikastöðum? Þetta er hús sem kallar á kyrrð og ró. Það er mikil nánd á milli tón- leikagesta og hljómsveitarinnar. Það er því mikil tenging. Það hentar okkur vel því hvert lag hjá okkur er lítil saga og við munum skyggnast á bak við textana og segja hvernig lögin voru unnin. Svo mun fólk heyra lög sem það hefur ekki heyrt áður sem verður skemmtilegt. Eru þessi nýju lög í sama dúr og þau sem þið hafið gefið út áður? Okkur finnst ekkert skemmtilegra en að leika okkur með hugmyndir, senur og myndir. Okkur hefur tekist ágætlega að fara með hlustandann í ákveðið ferðalag hvort sem það er í villta vestrið eða til sjöunda og áttunda áratug- arins. Þessa plötu sem við vinnum núna gerum við með pródúsent sem heitir Rick Nowels. Hann hefur unnið að mörgum af stærstu plötum áttunda, níunda og tíunda áratugarins og unnið mikið með Lönu Del Rey til dæmis. Sú plata verð- ur mjög myndræn, stórar útsetningar og mikið af strengjum. Þannig að á sama tíma og við vinnum lögin erum við að breyta þeim til að spila á einfaldan hátt. Er eitthvað fleira á döfinni hjá ykkur á næstunni? Við erum að spila í Norræna húsinu sem hefur verið draumur hjá mér lengi. Við spilum á kántríhátíð í Bæjarbíói í ágúst og svo verðum við með stóra tónleika 17. september í Fríkirkjunni. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon GUNNAR HILMARSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Spila óútgefin lög Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.7. 2021 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir TILBOÐ Í SÓL ALBÍR PLAYA HOTEL & SPA 4* ALBÍR, SPÁNN FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUHÓTEL MEÐ MORGUNVERÐI WWW.UU.IS | 585 4000 | INFO@UU.IS 08. - 15. JÚLÍ VERÐ FRÁ: 79.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN INNIFALIÐ FLUG, GISTING, MORGUNVERÐUR, HANDFARANGUR OG INNRITAÐUR FARANGUR Ég er hugsi yfir tómlæti þjóðarinnar í garð hins merka landnámsmanns Hámundar heljarskinns Hjörssonar. Öll þekkjum við tvíburabróður hans, Geirmund heljarskinn, en Hámundur virðist af einhverjum sorglegum ástæðum hafa lent milli skips og bryggju. Hvers vegna sveiflan hefur alltaf verið með Geirmundi er ekki gott að segja. Í Landnámu er Há- mundur sagður ættgöfgastur allra landnámsmanna, sonur Hjörs Hörðakon- ungs og Ljúfvinu dóttur Bjarmakonungs. Nýfæddir voru þeir bræður dökkir yfirlitum og húðin öll hrukkótt og voru þeir því kallaðir heljarskinn. Ég prófaði að fletta okkar manni upp í greinasafni Morgunblaðsins og fékk ekkert svar. Ekki eitt. Ef marka má vefinn tímarit.is hefur hans í tvígang verið getið í fjölmiðlum á þessari öld. Tómas M. Tómasson bassaleikari nefndi Hámund á nafn í samtali við Fréttablaðið árið 2010 en hann var að eigin sögn afkomandi Hjörs. Sem skýrir yfirburði Tómasar heitins í ís- lensku tónlistarlífi. Þar á undan bar Hámund á góma í Fréttabréfi Ætt- fræðifélagsins 2001. Mér varð hugsað til Hámundar þegar ég var á Akureyri í vikunni en sem kunnugt er kom hann til lands- ins með Helga magra, sem var tengdafaðir hans. Hámundur kvæntist ekki aðeins einni dóttur Helga, heldur tveimur. Þó ekki samtímis. Þegar Þórunn dó gekk hann að eiga Helgu. Dóttir Hámundar og Helgu var Yngvildur allra- systir, kona Örnólfs sonar Þórðar slítanda landnámsmanns í Hörgárdal. Mergjaðri verða viðurnefnin víst ekki – allrasystir. Í Landnámu segir að Hámundur hafi fyrst numið Árskógsströnd frá Svarfaðardal og suður að Hörgá og búið á Hámundarstöðum. Síðar fékk hann land hjá Helga magra, frá Merkigili (nærri Hrafnagili) til Skjálg- daldsár og bjó á Espihóli. Ungur heyrði ég af Hámundi enda ættaður frá þar- næsta bæ, Grund, og rennur því blóðið til skyldunnar. Ég lýsi hér með her- ferð hafna til að gera veg Hámundar heljarskinns í fjölmiðlum sem mestan! Hámundur heljarskinn Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Hámundur var ekki aðeins kvæntur einni dóttur Helga magra, heldur tveimur. Þó ekki samtímis. Szymon Niescier Ég á engan uppáhalds en vinn á Aktu taktu svo segjum það bara. SPURNING DAGSINS Hver er uppáhalds- maturinn þinn? Eygló Hreiðarsdóttir Veistu, ég get ekki svarað þessu, það er svo margt. Ég borða allt. Trausti Helgason Besti maturinn var sá sem tengda- mamma eldaði, lambalæri. Jóna Jóhanna Sveinsdóttir Lax er það fyrsta sem kemur upp í hugann. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Kristinn Ingi Pétursson Hljómsveitin Sycamore Tree, skipuð þeim Ágústu Evu Erlendsdóttur og Gunnari Hilm- arssyni, leikur í Bókabúð Máls og menningar á miðvikudag. Þorleifur Gaukur Davíðsson leikur á gítar, pedal steel og munnhörpu með hljómsveitinni. Miðar fást á tix.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.