Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.7. 2021
S
umarið virtist loksins vera að
læðast inn, eins og bæði mátti
sjá af auknum straumi út á
land, þéttsetnum borðum við Aust-
urvöll og því að af máli manna á
Laugavegi mátti ekki ráða annað en
höfuðborgin væri amerísk.
Einn bandarískan ferðamann var
þó ekki að finna þar, en hann fannst
eftir liðlega sólarhrings leit 4 km
norðvestur af gosstöðvunum á
Reykjanesskaga, en hann hafði orðið
viðskila við göngufélaga sína án
helstu lífsnauðsynja, vatns og síma.
Gosvirknin í Geldingadölum hefur
gengið upp og niður en jókst aftur
um liðna helgi. Auknar líkur eru
taldar á því að hraun streymi yfir
Suðurstrandarveg, örar en gert var
ráð fyrir.
Tiltrúin á ferðaþjónustuna er mikil,
eins og sást á því að áttföld eftir-
spurn var eftir hlutabréfum í flug-
félaginu Play, sem lauk fyrir liðna
helgi. Um 4.600 skráðu sig fyrir
hlutum, bæði almenningur og fag-
fjárfestar.
Sennilegt er að ferðamanna-
straumurinn til landsins aukist
mikið á næstu vikum, enda varð Ís-
land fyrst Evrópuríkja til þess að af-
létta öllum innanlandstakmörkunum
fyrri föstudag.
Straumurinn er minni úr lónum
landsins, enda var veturinn bæði
kaldur og vorið úrkomulítið á suður-
hluta landsins. Fyrir vikið er vatns-
hæðin í Þórisvatni mun lægri en í
fyrra, sem gæti orsakað vandræði í
afhendingu raforku er líður á.
Önnur vandræði í raforkuafhend-
ingu komu fram þegar á mánudag,
þegar Orka náttúrunnar þurfti að
slökkva á 156 götuhleðslustöðvum
Orku náttúrunnar vegna þess að
Reykjavíkurborg stóð rangt að út-
boðinu, sem dótturfyrirtæki þess
svo hreppti.
Fram eru komnar hugmyndir um
friðlýsingu Langaness, sem ætti að
vera auðvelt að koma við.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra ansaði loksins ákalli lækna
vegna margháttaðra vandræða í
heilbrigðiskerfinu. Þar kom í löngu
máli fram að leitað yrði nýrra leiða.
Í Morgunblaðinu var sögð frétt af
langferð fílahjarðar í Kína, sem út
af fyrir sig var forvitnileg, en ekki
var þó minna merkilegt að þar var í
fyrsta sinn birt mynd af þeim marg-
umræddu en viðsjálu skepnum,
bleikum fílum.
. . .
Frjósemi í landinu er með því
minnsta sem verið hefur miðað við
tölur frá 2019, en samkvæmt þeim
eignast meðalkonan nú 1,75 barn um
dagana. Fæðingartíðnin þarf að
vera lítillega yfir 2 til þess að þjóðin
standi í stað. Fróðlegt verður að sjá
hvort kórónuveiran reynist einhver
áhrif hafa á fæðingartíðina.
Reykjavíkurborg hefur nýja hjól-
reiðastefnu í smíðum, en þar á meðal
verður átak til þess að draga úr
reiðhjólastuldi, sem hefur ágerst
upp á síðkastið.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
sagði að borgin hefði víst áhuga á að
reisa þjóðarleikvang í Laugardal, en
skipting kostnaðar við hann þyrfti
að skýrast. Fram kom í viðtali við
Bjarna Benediktsson fjármála-
ráðherra vikunni á undan að naum
svör og fjárráð Reykjavíkurborgar
stæðu í vegi fyrir þeim fyrirætlun-
um.
Verð á jarðefnaeldsneyti hefur
hækkað töluvert upp á síðkastið eða
um 3-8 kr. á lítra. Ástæðan er aukin
eftirspurn á heimsvísu eftir því sem
áhrif kórónuveirunnar dvína og hag-
kerfi heimsins taka við sér.
Hið kalda vor hefur margvísleg
áhrif, en þau ekki síst að skordýr
klekjast seinna út en endranær. Lít-
ið hefur sést af humlu, geitungum
eða býi, sem getur haft sín áhrif á
garðagróður, en eins hefur ekki
frést af lúsmýi nema á einum stað á
landinu enn.
Sigríður Jóhannsdóttir, fyrrver-
andi skólastjóri Hjúkrunarskólans,
lést eftir stutt veikindi, 91 árs að
aldri.
. . .
Sérfræðingar spá nú meiri hagvexti
í ár en búist hafði verið við en vöxtur
í einkaneyslu er meðal helstu skýr-
inga þess. Áður var gert ráð fyrir
2,7% hagvexti, en hann er nú talinn
geta farið yfir 3%.
Maður með hlaðna skammbyssu
var handtekinn við Sæbraut í
Reykjavík. Árvökull vegfarandi til-
kynnti um átök milli tveggja manna
við brautina og að sér virtist sem
annar þeirra hefði skammbyssu.
Aurskriða varð í Varmahlíð, þar sem
tvö hús urðu fyrir tjóni, en enginn
slasaðist.
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er 20
ára, en tækifærið þegar það var
haldið hátíðlegt var notað til þess að
stækka verndarsvæði hans um eitt
vatn, einn dal og tvö fjöll.
Félagsmiðlar loguðu þegar það upp-
götvaðist að á götuskilti við Grens-
ásveg hefði auka-err sloppið inn í
nafn götunnar.
Ólafur B. Thors, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sjóvár-Almennra og
forseti borgarstjórnar, lést 83 ára að
aldri.
. . .
Flugfélagið Play hefur farið af stað
með hvelli, en tugþúsundir sæta
hafa selst og þéttbókað fram á
haust. Icelandair kvartar ekki held-
ur en þar ber mest á bókunum frá
Bandaríkjunum fram á haust og inn
í veturinn.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
sagði í viðtali að hann teldi að jafn-
vægi myndi nást í rekstri borgar-
innar á 3-5 árum og kenndi kórónu-
veirunni um að illa gengi.
Nú er sumar og gleðjast gumar, en
Geislavarnir ríkisins ráðleggja fólki
að fylgjast með UV-stuðli á heima-
síðu þeirra, sem sýnir styrk út-
fjólublás sólarljóss. Hann er yfirleitt
ekki ýkja hár hér á landi en hefur
síðustu daga farið nærri 6. Mælt er
með því að nota sólarvörn fari hann
yfir 3.
Miðbæjarfélagið færði kaup-
mönnum við Laugaveg og Skóla-
vörðustíg strákústa að gjöf til þess
að auðvelda þeim að gera hreint fyr-
ir sínum dyrum. Samtökin kvarta
undan því að Reykjavíkurborg trassi
hreinsun á götum og gangstéttum í
miðbænum.
Skilagjald á drykkjarumbúðum var
hækkað úr 16 krónum í 18 til sam-
ræmis við verðbólguþróun.
Dr. Ásgeir Jónsson seðlabanka-
stjóri leiddi sögugöngu um Þingvelli,
þar sem hann fjallaði um fjármál á
söguöld, framfærslu og lánshæfi
Gunnars á Hlíðarenda og silfur Eg-
ils.
Vatnajökulsþjóðgarður var stækk-
aður en hann þekur nú um 14% af
flatarmáli landsins. Kosningabar-
átta vinstri grænna greinilega kom-
in á fullt.
N1-mótið í fótbolta fór fram á Ak-
ureyri en þar voru meira en tvö þús-
und keppendur og leikirnir 1.060
talsins.
. . .
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra telur að hagþróun á fyrri
hluta ársins gefi góðar vonir um
hraðari viðsnúning í hagkerfinu en
útlit var fyrir. Veitir ekki af, en
heildarskuldir ríkissjóðs hafa aukist
um nær 500 milljarða króna í heims-
faraldrinum og miklu skiptir að geta
grynnkað hratt á þeim skuldum.
Ríkislögreglustjóri lýsti yfir hættu-
stigi vegna leysinga á Norðaustur-
landi. Vegir og brýr hafa skemmst í
vatnavöxtunum og brýnt var fyrir
fólki að fara að öllu með gát.
Hópslys varð á Akureyri þegar svo-
nefndur hoppukastali fauk upp með
63 börn inni í sér. Eitt barn slasaðist
alvarlega og þurfti að fljúga með það
á sjúkrahús í Reykjavík. Sex önnur
voru færð til skoðunar á sjúkrahúsi
nyrðra.
Reykjavíkurborg og olíufélögin hafa
kynnt áform um að fækka eldsneyt-
isstöðvum í borginni, en þær munu
mikið til víkja fyrir aukinni sjálfs-
afgreiðslu.
Varðskipið Óðinn hefur fengið lang-
þráð viðhald, en þar á meðal var sett
upp nýtt mastur sem Mirai, japönsk
skipasmíðastöð í Kesennuma, gaf í
vináttuskyni.
Orðið var við lögbannsbeiðni land-
eigenda við gosstöðvarnar í Geld-
ingadölum, en þyrlulendingar á gos-
stöðvunum í óleyfi þeirra eru nú
bannaðar. Norðurflug segir hug-
myndir landeigenda um lendingar-
gjöld of háleitar.
Bleikir fílar
í fréttum
Í Kína hafa allsgáðir ljósmyndarar náð myndum af bleikum fílum, en hjörð þeirra hefur verið á óskiljanlegu ferðalagi yfir
hálft landið. Hér sofa þeir vært eftir að hafa skjögrað til svefnstaðar næturinnar, en vanalega sofa fílar standandi.
AFP
27.6.-2.7.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Í BACH OG FYRIR
GE IRÞRÚÐUR ANNA GUÐMUNDSDÓTT IR
Johann Sebastian Bach • Sex einleikssvítur fyrir selló
11 . JÚL Í , KL . 16 • S V Í TUR 2 , 3 & 6
NORÐURLJÓS
í Hörpu
10 . JÚL Í , KL . 1 6 • S V Í TUR 1 , 4 & 5
ÝLIR
TÓNLISTARSJÓÐUR
HÖRPU FYRIR UNGT FÓLK
Miðasala á www.harpa.is