Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Blaðsíða 17
inn sinn Bush-feðgum vestra, enda væru þeir á hefð-
bundnum kanti tilverunnar.
Seint verður þó sagt að danski hægri flokkurinn
hafi haft gagn af þessari meðferð, því að hann þornaði
upp og hefur varla borið sitt barr síðan. Hér á landi
eru til þeir stjórnmálamenn í Sjálfstæðisflokki sem
telja fínast alls að feta slóð norrænna stjórnmála-
manna, sem margir eru sem vasaútgáfur af óáhuga-
verðum stjórnmálamönnum sem ESB hefur á sínu
bandi og í því.
Ólafur Thors gaf engin færi á slíku og fleiri mark-
tækir foringjar sama flokks höfðu einnig nokkurn
vara á sér.
Ekki einhamur
Boris Johnson er frumlegur en um leið stundum kvik-
ur stjórnmálamaður og því er haldið fram af sumum
flokksbræðrum hans í einkasamtölum að hans unga
og kraftmikla kona hafi óþægilega mikil áhrif á
stefnumörkun flokksforingjans, og gæti það með tíð
og tíma skekkt ímynd hans sem leiðtoga. En aðrir
benda á að Boris hafi sýnt að hann getur farið sínu
fram hvað sem slíkum „áhrifavöldum“ líður. Stanley,
faðir Borisar, sem ekki þjáist af fjölmiðlafeimni, og
sum systkina hans taka virkan þátt í þjóðmálaumræð-
unni og leyndu því hvergi að þau styddu ekki sjónar-
mið núverandi leiðtoga Íhaldsflokksins um að Bret-
land skyldi ganga úr ESB. Og vissulega komu nokkur
tímabil, bæði fyrir og eftir þjóðaratkvæðið, þar sem
Boris sjálfur virtist sveiflast nokkuð til í þeim alvar-
legu efnum, þótt hann hafi að lokum komið standandi
niður, sem skipti mestu máli.
Ný bók og fróðleg um löngu liðna tíð
Andrew Roberts, sagnfræðingur og blaðamaður,
sendi nýlega frá sér áhugaverða bók um nokkra
„stríðsleiðtoga“ (Leadership in war). Höfundurinn
undirstrikar, kannski einkum vegna þess að menn
eins og Hitler og Stalín eiga þarna kafla, að þótt „leið-
toganafnbótin“ virðist hafa jákvæða ímynd, þá sé hún
í þessu tilviki algjörlega hlutlaus. Sumir þeirra, sem
þarna eru gerð nokkur skil, með hliðsjón af sama efni
eru hermenn eins og Eisenhower og Marshall, lýð-
kjörnir stjórnmálamenn eins og Churchill, eða hvort
tveggja eins og de Gaulle.
Fróðleg er myndin sem dregin er upp af Adolf Hit-
ler. Óháð öllum hans kunnu voðaverkum þá virðist
styrkur hans, þekking og innsæi hafa verið miklu
veikara hvernig sem á það er horft og ætla mætti,
vegna þess mikla valds og áhrifa sem hann öðlaðist og
hélt meira eða minna til hinstu stundar, svo með ólík-
indum var. Höfundurinn gefur af sinni hálfu nokkrar
skynsamlegar skýringar á því.
Prédikarinn
Jafnframt gerir hann að umtalsefni að hvort sem Hit-
ler sat í Arnarhreiðrinu eða öðrum frægum dvalar-
stöðum hafi hann iðulega setið langt inn í nóttina með
nánustu mönnum sínum og haldið fyrirlestra yfir
þeim eða frekar eintal um stórt og smátt.
Sumar fullyrðingar hans hafi verið með ólíkindum
en öllu tekið sem óendanlegri speki af gapandi aðdá-
endum, sem virtust telja að foringinn opnaði mönnum
víðáttugáttir upplýsinga og fróðleiks. Bormann, sem
var einn hans nákomnasti maður, tók spekina upp og
hélt því til haga og allt sé þetta efni nú til.
Gefin eru dæmi úr uppskriftasafni Bormanns um
hugleiðingar Hitlers og skilgreiningar hans á kven-
fólki, sem eru næsta sérkennilegar. Roberts segir að
sama kvöldið og hann gaf sínar einkennilegu skil-
greiningar á konum hafi Hitler sagt: „Ég les aldrei
skáldsögur. Slík skrif þoli ég alls ekki.“ „Það var ekki
aðeins,“ segir Roberts, „að ríkiskanslarinn hefði ekki
tóm eða tíma til að lesa skáldsögur, heldur fór heimur
skáldskaparins, hið mannlega ímyndunarafl, beinlínis
í taugarnar á honum.“ Í beinu framhaldi nefnir Ro-
berts þátt sem bréfritari kannast ekki við að hafa
heyrt um áður: „Það voru endalausar spásagnir, sem
nánast áttu það helst sameiginlegt að þær gengu ekki
eftir. Og svo hefur hann beint eftir Hitler: „England
og Bandaríkin munu einn daginn hefja stríð gegn
hvort öðru og mun það háð af slíku hatri að næstum
er ekki hægt að ímynda sér heiftina,“ sagði hann.
„Annað hvort ríkið verður að hverfa af jörðinni.“ Og
við annað tækifæri sagði Hitler: „Það mun verða
þýsk-breskur her sem mun hrekja her Bandaríkjanna
frá Íslandi.“
Morgunblaðið/Eggert
4.7. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17