Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Síða 19
4.7. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
koma listamönnum og verkum
þeirra á framfæri með áherslu á um-
hverfismál, mannréttindi, menntun
og menningu. Hún neitar að svara
spurningum um hvað verkefnið í Ar-
les hafi kostað.
Þegar hún er spurð hvers vegna
hún hafi valið þennan 53 þúsund
manna bæ er svarið: „Ég valdi ekki
Arles, Arles valdi mig.“
Hún flutti þangað þegar hún var
barn og faðir hennar, Luc Hoff-
mann, einn stofnenda WWF, bjó til
verndarsvæði til að varðveita fjöl-
breytt vistkerfi Camargue, svæðis
milli Miðjarðarhafsins og ósa árinn-
ar Rhone, sem þekkt er fyrir bleika
flamingófugla.
Turninn endurspeglar það. Salt
frá Camargue er notað í panela og
þörungar úr ósunum í litarefni fyrir
tau.
Hoffmann kveðst vonast til að
verkefnið laði að fleiri gesti á vet-
urna til bæjar þar sem næstum
fjórðungur íbúa er undir fátækra-
mörkum.
Um 190 manns munu vinna að
Luma-verkefninu á sumrin, að sögn
Bouhayatis, sem bætir við að Hoff-
mann hafi búið til „vistkerfi til sköp-
unar“.
Nýtt mætir gömlu. Í forgrunni er
leikvangurinn frá tímum Rómaveldis
til forna og í fjarska rís nýreistur
turn Franks Gehrys til himins.
AFP
Í loftinu fyrir ofan hringstigann er spegill og virðist sem þar gangi maður á
hvolfi líkt og komið sé inn í teikningu eftir Hollendinginn M.C. Escher.
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is
Við leigjum út krókgáma
FRAMKVÆMDIR?
til lengri eða skemmri tíma
HAFÐU SAMBAND:
sími: 577 5757
www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum!
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
DVERGARNIR R
Frábær hönnun, styrkur
og léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoðið nýju
heimasíðuna
islandshus.is