Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.7. 2021 LESBÓK SÚR Okkar besti Íslandsvinur, Bruce Dickinson, söngv- ari breska málmbandsins Iron Maiden, snupraði stjórn- völd í Bretlandi í samtali við sjónvarpsstöðina Sky News í vikunni og hvatti þau til að tryggja að auðveldara verði fyrir breska listamenn að troða upp í Evrópu, en alls kyns leyfi þarf nú til þess arna eftir Brexit. Dickinson, sem sjálfur kaus með Brexit, segir menn þurfa að beita skynsemi. „Hvaða rugl er það að við getum ekki komið fram í Evrópu og Evrópubúar ekki hér? Atvinnuleyfi og kjaftæði. Koma svo, gyrðið ykkur í brók! Ræsið fram- bærilegan gaur til að koma þessu í lag! Það er auðveld- ara að spila í Bandaríkjunum en Evrópu í dag,“ segir Dickinson en uppselt er á tónleikaröð Iron Maiden í Evr- ópu síðar á árinu. Ef goðin fá þá að koma. Gyrðið ykkur í brók! Brúsi gamli ligg- ur ekki á skoð- unum sínum. AFP ÆVI Frank Bello, bassafanturinn úr Ant- hrax, er að leggja lokahönd á endurminn- ingar sínar sem nefnast hvorki meira né minna en Fathers, Brothers, And Sons: Survi- ving Anguish, Abandonment, And Anthrax. Það er málmfræðingurinn Joel McIver sem heldur um pennann. Í samtali við hlaðvarpið Making Waves: The ShipRocked Podcast lýs- ir Bello ánægju sinni með bókina, þetta sé ekki bara dæmigerð rokk og ról-bók enda þótt nokkar safaríkar sögur fljóti með. Hann skrifar m.a. um barnæsku sína sem var erfið eftir að faðir hans stakk af og skildi móður hans eftir staurblanka með fjögur börn. Rokk og ról og erfið barnæska Frank Bello kann afar vel við sig á sviðinu. AFP Sammy Hagar á tónleikum nú í júní. Eins og þegar fólk skilur SKUGGI Sammy Hagar, fyrrver- andi söngvari Van Halen, baðst á dögunum velvirðingar á því að hafa ljóstrað upp um skuggahlið Eddies heitins Van Halens í endurminn- ingum sínum árið 2011. Það gerði hann í brasilíska vefþættinum In- side With Paulo Baron. Ekki svo að skilja að hann hafi ekki verið að segja satt og rétt frá en stundum má satt kyrrt liggja og hefði Hagar ritað bókina í dag, að Van Halen gengnum, hefði hann sleppt þessu öllu. Mjög kært var með þeim fé- lögum meðan Hagar var í bandinu en eftir að hann hvarf á braut súrn- aði víst sambandið en lagaðist aftur síðar. „Eins og gerist þegar fólk skilur, þið skiljið,“ sagði hann. J im Morrison, söngvari bandarísku hljómsveitarinnar Doors, lézt í París sl. laugardag. Umboðs- maður hans skýrði frá þessu í gær- morgun og sagði einnig við það tæki- færi, að hann hefði beðið með fregnina, vegna þess að nánustu vin- ir hans hefðu ekki viljað endurtaka þann „skrípaleik“, sem hefði fylgt andlátum Jimi Hendrix og Janis Joplin. Enn hefur ekki verið skýrt frá dánarorsökinni, en sagt hefur verið að Jim hafi dáið eðlilegum dauðdaga, sennilega af hjartaáfalli eða lungnabólgu.“ Þessa sorglegu frétt var að finna á blaðsíðu 17 í Morgunblaðinu laug- ardaginn 10. júlí 1971, réttri viku eftir að söngvarinn féll frá, aðeins 27 ára að aldri. Í framhaldinu var gerð nánari grein fyrir hinum látna enda ekki sjálfgefið að allir lesendur blaðsins væru með á nótunum. „Jim Morrison og hljómsveit hans, Doors, áttu gífurlegum vin- sældum að fagna í Bandaríkjunum og víðar fyrir tveimur-þremur árum. Þótti Jim sérlega æsandi í sviðs- framkomu sinni, þar sem hann skók sig á sviðinu, íklæddur níðþröngum leðurbuxum og þunnri skyrtu, sem jafnan var fráhneppt, svo að skein í loðna bringuna. Voru hljómleikar hans margir hverjir hinir söguleg- ustu, eins og t. d. þegar hann æsti sig fullmikið á hljómleikum í Florída fyrir tveimur árum og var ákærður fyrir ósiðlega framkomu og klúrt orðbragð. Var hann eftir þetta eftir- lýstur í fjölmörgum ríkjum Banda- ríkjanna og virtist sem þetta mál hefði átt mestan þátt í því, hve vin- sældir hljómsveitarinnar hríðféllu síðustu tvö árin. Að lokum var hann sýknaður af fyrri ákærunni en hlaut dóm fyrir ljótt orðbragð og þótti það vel sloppið. Eftir þau málalok færð- ist aftur líf í hljómsveitina, en það var um seinan.“ Sem frægt er fann Pamela Cour- son, sambýliskona Morrisons, hann látinn í baðkarinu í íbúð þeirra í 17- 19, Rue Beautreillis í Le Marais, fjórða hverfi Parísar. Opinber dánarorsök er „hjartabilun“ en eng- in krufning fór fram, þar sem þess er ekki krafist í frönskum lögum. Fyrir liggur hins vegar að Morrison hafði um árabil misnotað áfengi og fíkniefni og fólk sem umgekkst hann undir það síðasta hefur haldið því fram að banamein hans hafi í reynd verið of stór skammtur af heróíni sem söngvarinn hafi tekið af gáleysi. Jim Morrison var fæddur til að skapa list og standa á sviði. Flickr.com Æsilegur dans við dauðann Hálf öld er um helgina liðin frá sviplegu andláti Jims Morrisons, hins hæfileikaríka en óstýriláta söngvara bandaríska rokkbandsins The Doors, einnar mestu rokkstjörnu sem um getur í sögunni. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is James Douglas Morr- ison fæddist 8. desem- ber 1943 í borginni Melbourne í Flórída. Faðir hans var aðmír- áll í bandaríska sjó- hernum og flæktist Morrison vítt og breitt um landið milli herstöðva á yngri ár- um ásamt foreldrum sínum og tveimur yngri systkinum. Hann fékk ungur áhuga á heimspeki, bók- menntum, ljóðlist og tónlist. Eftir að hafa lokið BA-prófi í kvik- myndagerð frá UCLA stofnaði Morrison The Doors ásamt hljóm- borðsleikaranum Ray Manzarek. Naut sveitin mikillar lýðhylli á seinni hluta sjöunda áratugarins fyrir lög á borð við Light My Fire, Touch Me, Break on Through (To the Other Side), People are Strange og The End, þar sem ljóðskáldið Morrison var í essinu sínu. Hann var fjórða rokkstjarnan á aðeins tveimur árum sem lést 27 ára gamall; hinar voru Brian Jones úr The Rolling Stones, Jimi Hendrix og Janis Joplin. Upp frá því er talað um 27 ára-klúbbinn en af seinni tíma meðlimum má nefna Kurt Cobain og Amy Wine- house. Meðlimur í 27 ára-klúbbnum Morrison ásamt félögum sínum í The Doors. pxhere.com

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.