Fréttablaðið - 09.11.2021, Page 4

Fréttablaðið - 09.11.2021, Page 4
Við höfum kallað eftir tilkynningum um tjón en þær berast ekki, nema einstaka tilkynn- ingar um æðarvarp. Steinar Rafn Beck Baldursson, sérfræðingur hjá UST Ráðherrabolti í Valsheimilinu Íslenskar alþingiskonur spiluðu opnunarleik á Global Goals World Cup gegn erlendum starfssystrum sínum í Valsheimilinu. ElIza Reid forsetafrú setti mótið en íslensku valkyrjurnar hrósuðu sigri. Markmið mótsins er að styðja við og auka aðgengi stúlkna og kvenna að íþróttaiðkun. Hvert lið sem tekur þátt velur sér eitt af heimsmarkmiðunum og vinnur verkefni með það að markmiði að styðja við það bæði innan sem utan vallar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Handgerðir íslenskir sófar • Margar útfærslur í boði • Mikið úrval áklæða • Engin stærðartakmörk Hvernig er draumasófinn þinn? Kíktu í heimsókn! Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is Sjá nánar á patti.is Refaveiðar þjóna ekki lengur tilgangi sínum, að verja sauðfé, og eru orðnar að vana eða launaðri sportveiði. Árið 2020 var metár í veiði og kostnaður ríkis og sveitar- félaga eykst með hverju árinu. kristinnhaukur@frettabladid.is DÝRAVERND Umhverfisstofnun telur forsendur fyrir refaveiðum brostn- ar, meðal annars vegna breytinga í landbúnaði, og finna ætti annað fyrirkomulag, einkum með tilliti til fuglaverndar. Meira en 56 þúsund refir hafa verið veiddir undanfarin áratug með kostnað upp á tæpan milljarð fyrir ríki og sveitarfélög. „Búfénaður virðist ekki verða fyrir tjóni. Við höfum kallað eftir tilkynningum um tjón en þær ber- ast ekki, nema einstaka tilkynn- ingar um æðarvarp,“ segir Steinar Rafn Beck Baldursson, sérfræðingur í veiðistjórnun hjá Umhverfis- stofnun. „Refurinn er sagður lævís og grimmur og verk hans vinna gegn honum. Enda fær hann makleg málagjöld. Hann er réttdræpur hvar sem hann hittist,“ sagði Kristján Eldjárn í heimildarmynd Ósvalds Knudsen, Refurinn gerir greni í urð frá árinu 1961. Frá landnámi höfðu bændur verið í stríði við dýrbítinn um sauðkindina og toll þurftu allir að greiða sem ekki veiddu ref. „Mér finnst líklegasta ástæðan sú að kindur eru hættar að bera úti,“ segir Steinar aðspurður hvers vegna refurinn sé ekki lengur þessi skaðvaldur sem hann var. „Áður fyrr sóttu refirnir í nýfædd lömb eða fóru aftan í kindur þegar þær voru að bera.“ Stofninn var aðeins 1.200 dýr við upphaf talninga, árið 1979, en óx upp í tæp 9.000 árið 2007. Hrun varð um 30 prósent árin 2008 til 2010 en stofninn hefur verið nokkuð stöð- ugur undanfarin ár og veiðin aukist. Árið 2020 voru 7.227 refir veiddir, sem er það mesta í 40 ár. Sveitarfélögum er skylt að greiða refaskyttum fyrir hvert skott frá hausti fram á vor. Hefur árlegur kostnaður þeirra aukist úr 67 millj- ónum árið 2011 í tæpar 134 milljón- ir árið 2020. Síðan 2014 hefur ríkið tekið á sig fjórðung eða fimmtung kostnaðarins og reynt er að jafna hann fyrir fámenn og víðfeðm sveitarfélög. Gagnrýni á veiðarnar hefur komið fram, svo sem í umræðum skotveiðimanna. Að refaveiðar séu launuð sportveiði og vani frekar en nauðsyn. Á yfirstandandi þingi spurði Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfisráðherra út í veiðarnar. Sá síðarnefndi lagði fram frum- varp um breytingar á veiðilöggjöf- inni sem náði ekki í gegn á þinginu. Samkvæmt því hefði verið sett stjórnunar- og verndaráætlun fyrir refinn. Steinar segist vona að frumvarpið komist í gegn en stofnunin sé þegar farin að huga að slíkri áætlun fyrir rjúpuna. Refurinn myndi koma seinna. „Það væri eðlilegast að endurskoða allt þetta fyrirkomulag. Kannski aðeins að stunda vetrar- veiðar en ekki grenjaveiði,“ segir hann. n Telja forsendur refaveiða brostnar og vilja breytingar Hinrik Ívarsson í Merkinesi, refaskytta Hafnamanna, tæmir Mönguselsár- grenið árið 1961. Læðu, stegg og fjóra hvolpa. MYND/SKJÁSKOT kristinnpall@frettabladid.is SAMGÖNGUR „Við höfum tekið eftir því, frá fyrsta degi þegar það var tilkynnt um afléttingu þessara takmarkana, að það mældist strax mikil aukning í bókunum. Bókun- arflæðið hefur haldist sterkt og gott, bæði frá Íslandi og Evrópu, og það er mjög jákvætt að þetta sé komið af stað á ný,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, spurður um áhrif opnunar Bandaríkjanna fyrir ferðamönnum frá Íslandi eftir að Bandaríkin opnuðu landamæri sín á ný í gær. Icelandair hefur haldið uppi áætl- unarflugi til Bandaríkjanna undan- farna mánuði. Frá og með gærdeg- inum gátu fullbólusettir Íslendingar ferðast til Bandaríkjanna á ný gegn því að sýna fram á neikvætt PCR- próf. Icelandair var með sex flug til Bandaríkjanna í gær. „Það var mikill áhugi og margar fyrirspurnir um flug til Bandaríkj- anna á meðan þessar takmarkanir stóðu yfir. Um leið og það var til- kynnt um af léttingu byrjaði fólk að bóka ferðir og það hefur haldist nokkuð stöðugt,“ segir Bogi. „Við höfum haldið uppi f lugi til Bandaríkjanna með að stærstum hluta Bandaríkjamenn um borð. Nú eru allir markaðir opnir og það ætti að styrkja okkar starf. Við vorum með háleit markmið um sölu fyrir síðasta ársfjórðung þessa árs, vit- andi að von væri á opnun.“ n Mælanleg aukning strax við afléttingu BogI Nils Boga- son, forstjóri Icelandair Group arnartomas@frettabladid.is TRÚMÁL Um þriðjungur lands- manna ber mikið traust til þjóð- kirkjunnar og rúmlega þriðjungur lítið. Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup um þjóðkirkj- una. Þar kemur fram að fólk sé líklegra til að bera traust til þjóðkirkjunnar eftir því sem það er eldra. Ríf lega helmingur fólks yfir sextugu ber mikið traust til þjóðkirkjunnar en aðeins um 14 prósent fólks undir þrítugu. Ef litið er til stjórnmálaskoðana væru þeir sem kysu Miðflokkinn, Sjálfstæðisflokkinn og Flokk fólks- ins ef gengið væri til kosninga  í dag  líklegastir til að bera mikið traust til þjóðkirkjunnar. Aðeins um 15 prósent eru ánægð með störf Agnesar M. Sigurðardótt- ur, biskups Íslands, sem er svipað hlutfall og í síðustu mælingu. n Kynslóðaskiptar skoðanir á þjóðkirkjunni Um 14 prósent fólks undir þrítugu bera mikið traust til þjóðkirkjunnar. 2 Fréttir 9. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.