Fréttablaðið - 09.11.2021, Síða 11

Fréttablaðið - 09.11.2021, Síða 11
Golf er vinsælasta þátttökuíþrótt á landinu. Svo vinsæl er íþróttin að uppselt hefur verið í golf í Reykja- vík í rúman áratug og nú er svo komið að uppselt er að heita má á öllu höfuðborgarsvæðinu: bið- listar klúbbanna telja vel á annað þúsund manns. Ástandið hamlar vexti íþróttarinnar. Um nokkurra ára skeið hefur það vakið furðu mína að forysta golf- hreyfingarnar virðist ekki geta sagt upphátt að vöntun sé á golfvöllum í Reykjavík: þegar forseti Golf- sambandsins hefur verið spurður þá hefur hann talað sig frá spurn- ingunni og bent á að það séu golf- vellir suður með sjó, handan flóa og heiða. Í viðtali í Bítinu nýlega kvað við sama tón hjá frambjóðanda til embættisins, þar talar frambjóð- andinn um að sveitarfélögin þurfi að skilja að golfíþróttin sé orðin mikilvægur hluti af samfélaginu og þau verði að láta land af hendi fyrir golfvelli, nema Reykjavík! Nei, frambjóðandinn hefur efasemdir um að það sé raunhæft: vill sjá hugarfarsbreytingu hjá kylfingum (reykvískum) þannig að þeir sætti sig við lengri ferðalög. Furðulegt sjónarmið, fyrir golf hreyfinguna er ekkert mál mikilvægara en bygg- ing golfvalla í borginni. Borgin þarf að sinna kylfingum í samræmi við fjölda þeirra og þá skyldi maður ætla að svo stór og afskiptur hópur útsvarsgreiðenda og kjósenda væri eitthvað sem pólitíkin hefði áhuga á að sinna! Hreyfing er mikilvæg í heil- brigðum lífsstíl. Jákvæð, bein áhrif hreyfingar koma sérstaklega fram í forvörnum við ýmsum langvinnum sjúkdómum. Að vera líkamlega og félagslega virkur eykur starfs- hæfni fólks og hjálpar til við að viðhalda lífsgæðum og sjálfstæði. Golf er fyrirtaks hreyfing. Ganga er góð, ganga í góðum félagsskap er þó betri og enn aukast gæðin ef við blöndum keppni í jöfnuna og virkjum af ákefð bæði líkama og huga. Sömuleiðis eflir golf félagsleg tengsl og styrkir þannig sjálfsmynd. Hreyfing, félagsskapur og keppni eru dúndur mixtúra, lífs elexír, en sýnt hefur verið fram á að fólk sem stundar golf lifir að líkindum fimm árum lengur en þeir sem ekki leika golf. Vinsældir golfíþróttarinnar eru miklar. 6% þjóðarinnar eru með- limir í golfklúbbum og þrátt fyrir að uppselt hafi verið í golf í Reykjavík hefur verið aflmikill vöxtur í íþrótt- inni. Árið 2011 voru kylfingar á Íslandi 16.000, tíu árum síðar erum við 22.200. Sem gerir golf að næst- fjölmennustu íþrótt landsins. Þá er ekki öll sagan sögð; en talið er að yfir 40.000 manns hafi leikið golf á Íslandi í ár. Hjá Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) ætti að vera í mesta lagi pláss fyrir um 3.000 iðkendur. Félagar í dag eru hins vegar um 3.950 og hafa verið f leiri en góðu hófi gegnir síðan 2008. Talað er um GR sem fjölmennasta golf klúbb í heimi, sú staða gerir ekkert fyrir meðlimi klúbbsins. Fjöldinn reynir á ystu þolmörk aðstöðunnar sem í boði er. Við slíkt verður vart búið lengur. Í dag eru um 600 manns á biðlista hjá GR. Hjá f lestum klúbbum á höfuð- borgarsvæðinu er svipaða sögu að segja: að klúbbarnir eru fullir og þar eru á biðlistum vel á annað þúsund manns. Aðstöðuleysi í borginni hefur hamlandi áhrif á vöxt íþróttar- innar. Einfalt reiknidæmi sýnir það: Reykvíkingar eru 36% af þjóðinni, af 22.000 kylfingum ættu reykvískir kylfingar að vera að lágmarki 8.000. Í GR er 3.900 félagar og Golfklúbbur Brautarholts er með ríf lega 600 félaga. Það vantar pláss fyrir í það minnsta 3.500 reykvíska kylfinga. Hvernig stendur á því að svo vin- sæl íþrótt skuli búa við annað eins aðstöðuleysi? Árum saman! Hvers vegna hefur golf hreyfingin ekki brugðist við með skýru ákalli til borgarinnar? Golfíþróttin er falleg og góð nánast hvernig sem á það er litið. Helsti (eini?) ókostur íþróttarinnar er hversu plássfrek hún er og ekki hlaupið að því að finna staði fyrir golfvelli í og við borgir. Því er eðli- legt að spurt sé hvar golfvöllur eigi að koma í Reykjavík og hver eigi að borga. Ýmsir staðir koma til greina, hér verður tiltekin hugmynd kynnt. Hugmyndin er um golf byggð í borginni: að f létta saman byggð, þjónustu henni tengdri, golfi og almennu útivistarsvæði. Staðsetn- ingin væri í Úlfarsárdal austanverð- um. Miðað er við að uppbygging yrði fjármögnuð með innviðagjaldi. Rekstur vallarsvæðisins væri sjálf- bær: greiddur af notendum. Upphaflega var skipulögð byggð í Úlfarsárdal fyrir 24.000 manns. Hugmyndin gengur út á að horfið yrði að nokkru til upprunalegs skipulags; að byggt verði austur dalinn, með þeirri mikilvægu við- bót að hverfið verði byggt fyrir ákveðinn aldurshóp (60 ára +) og að golfvellir væru hluti af skipu- laginu. Auðvelt væri að skipuleggja hverfi með t.d. 3.000 íbúðum af ýmsum stærðum og gerðum, með þjónustukjarna og útivistarsvæði þar sem golfvellirnir væru höfuð- djásn. Hverfismiðstöð væri klúbb- hús íbúa, með rými fyrir ýmis konar verslun og þjónustu. Eðlilegt væri að gera ráð fyrir kjarna með þjónustuíbúðum og hjúkrunar- heimili sem hluta byggðarinnar. Samþjöppun fólks á þessum aldri og með líkar þarfir myndi hafa ýmis jákvæð áhrif. Ekki þyrfti að byggja leikskóla, barna- og grunn- skóla o.þ.h. í hverfinu, enda ekki gert ráð fyrir að börn og ungmenni hafi þar búsetu. Byggðin myndi ekki auka álag á samgönguinn- viði í takt við fjölda íbúa. Nýting innviða í grónum hverfum myndi aukast. Kraftmikil innspýting á lóðamarkaðinn hefði jákvæð áhrif til að minnka þrýsting á íbúðaverð og hækkun vaxta. Þegar svo margt fólk á líkum aldri myndar heilt borgarhverfi myndast grundvöllur fyrir fjölbreytta nærþjónustu og hagkvæmara verður að veita hana. Allt atriði sem létta á kostnaði við uppbyggingu og síðar á rekstri fyrir borgina, íbúana og samfélagið í heild. Golfvellirnir væru opnir öllum, þ.e. reknir með svipuðu sniði og golfklúbbar á Íslandi almennt. Fréttablaðið birti nýlega grein eftir mig sem bar titilinn Það vant- ar hús, hvar ég fjalla um þörfina á alvöru fjölnota íþrótta- og við- burðahúsi, húsi sem myndi leysa ýmsar aðkallandi þarfir og vera vettvangur iðandi mannlífs um ókomin ár, nú bendi ég á hrópandi þörf fyrir nýja golfvelli. Vissu- lega stórar og kostnaðarsamar hugmyndir. En ódýrar, þar liggur fegurðin. Gengið er út frá því að verkefnin fjármagni sig sjálf, að þau verði rekstrarlega sjálf bær og af þeim verði verulegur samfélags- legur og hagrænn ábati. n Það vantar velli Viggó H. Viggósson ritari stjórnar Íþróttabandalags Reykjavíkur Golfíþróttin er falleg og góð nánast hvernig sem á það er litið. ÞRIÐJUDAGUR 9. nóvember 2021 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.