Fréttablaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 09.11.2021, Blaðsíða 36
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Í Star Trek eru verð- launin í framtíðinni. Mannfræðingurinn Sveinn Guðmundsson ýtti nýverið úr vör rannsókn á íslenska Star Trek-samfélaginu. Hann segir rannsóknir erlendis sýna að stór hluti aðdáenda Star Trek yfirfæri hugmyndir Star Trek um jöfnuð og fjölbreytileika jarðarbúa yfir á eigin heims- mynd og gjörðir. odduraevar@frettabladid.is „Þetta er rannsókn sem ég er að hefja,“ útskýrir Sveinn. Hann segist hafa horft á Star Trek frá því hann var unglingur en aldrei hugsað um það út frá fræðilega vinklinum þar til hann var fenginn til að kenna námskeið um Star Trek. Þættirnir um skipherrann James T. Kirk og félaga á geimskipinu Ent- erprise, auk síðari áhafna, úr smiðju Gene Roddenberry, hafa fyrir löngu stimplað sig inn sem einn vinsælasti vísindaskáldskapur í heimi. Sveinn segir fræðimenn meðal annars hafa líkt Star Trek-aðdáun- inni við trúarbrögð. „Einn mannfræðingur talar um þessar Star Trek-ráðstefnur eins og pílagrímsferðir. Fólk er þarna að sækja í eitthvað heilagt, án þess að það sé hægt að tengja þetta beint við skipulögð gömul trúarbrögð. Þetta er meira veraldlegt, svona veraldlegur heilagleiki.“ Rými fyrir alla í framtíðinni Sveinn segir sögu Star Trek lykil- atriði og nefnir Sveinn sem dæmi að í fyrstu þáttaröðinni, frá sjöunda áratugnum, hafi svört kona verið í brú Enterprise. „Og 1968, minnir mig, var koss í þáttunum þar sem Kirk og Uhura, hvítur maður og svört kona, kysst- ust. Þetta var svolítið róttækt. Bara árið áður var það tekið úr lögum í Bandaríkjunum að fólk af ólíkum uppruna mætti giftast. Dr. Martin Luther King yngri var drepinn þetta sama ár og þessi þáttur kom út. Þann- ig þetta er dæmi um hvernig Star Trek var virkt í umræð- unni um mannrétt- indi og jafnréttis- baráttu.“ Sveinn nefnir f leiri dæmi: K apt ei n i n n Íslenskir Trekkarar trúa á mannkynið og framtíðina Sveinn er sjálfur aðdáandi og segir þættina afar áhugaverða. MYND/AÐSEND Job.isMest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára www.intellecta.is Framkvæmdastjóri Traust þjónustu- og framleiðslufyrirtæki leitar að öflugum og framsýnum aðila í starf framkvæmdastjóra. Fyrirtækið er staðsett á höfuðborgarsvæðinu og starfa þar u.þ.b. 40 manns. Áhugavert tækifæri í boði hjá fyrirtæki með mikla vaxtarmöguleika. Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi Farsæl stjórnunar- og rekstrarreynsla Árangursrík reynsla af markaðs- og sölustarfi á fyrirtækjamarkaði Tengsl og reynsla í sjávarútvegi er kostur Hæfni í samningagerð, öguð vinnubrögð og frumkvæði í starfi Helstu viðfangsefni: Umsjón með daglegum rekstri Stjórnun og leiðtogahlutverk Markaðs- og sölumál Samskipti við stjórn og eftirfylgni með stefnumótun stjórnar Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2019. Nánari upplýsingar um starfið veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. SNILLINGUR Í BÓKHALDI 80 - 100% starfshlutfall Við óskum eftir liðsauka í að e a ármálasvið fyrirtækisins auk þess sem viðkomandi mun taka að sér önnur tengd verkefni í rekstri fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af störfum af þessum toga auk þess að hafa ríka þjónustulund gagnvart samstarfsfólki og viðskiptavinum. Góð reynsla af ármálum, bókhaldi og rekstri almennt Menntun sem nýtist í star nu Framúrskarandi tölvuþekking Góð enskukunnátta ásamt einu Norðurlandatungumáli er kostur. Lindex er ölskyldufyrirtæki stofnað 2011 og rekur 7 verslanir á Íslandi auk vefverslun lindex.is. Til viðbótar er stefnt að opnun fyrstu verslunarinnar í Danmörku í haust. Umsóknir með ferilskrá berist á atvinna@ldx.is merktar „Snillingur í bókhaldi“ Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst nk. Hæfniskröfur eru: Boðskapur Vúlkana eins og Spock um frið er vinsæll. Sisko, sem var fyrsti svarti kapteinn- inn í Deep Space Nine-seríunni, Jane í Voyager-seríunni, fyrsti kvenkyns kapteininn og nýju þættirnir Disco- very þar sem Sveinn segir konur, hin- segin fólk og fólk af ólíkum uppruna í stórum hlutverkum. „Þetta er allt í anda þessarar grunnhugmyndafræði Star Trek,“ útskýrir Sveinn og nefnir fjölbreyti- leikann í þessu samhengi. „Og í þessari framtíðarsýn sem sett er upp í Star Trek-heiminum erum við jöfn, það eru ekki fordómar, heldur erum við bara að vinna saman. Og erlendar rannsóknir sýna að þetta er það sem dregur fólk að þátt- unum.“ Greinir Star Trek-umræðuna hér Sveinn ýtti eigin rannsókn úr vör með fjölmiðlagreiningu. „Það kom mér á óvart hvað það var mikið af viðtölum við Star Trek-aðdáendur í fjölmiðlum, í Kastljósi, Fréttablað- inu, Morgunblaðinu og hér og þar. Viðtöl við Star Trek-aðdáendur þar sem þau eru að tala um þetta, að spegla þetta, þessa framtíðarsýn sem birtist í Star Trek,“ segir Sveinn. „Svo er ég bara að byrja núna að taka viðtöl, þann- ig ég er í startholunum með þessa rannsókn,“ segir Sveinn. Viðtölin eru því næsta skref í rann- sókninni. „Ég sé  á þessari fjölmiðlagrein- ingu staðfestingu á því að eins og erlendis stofna aðdáendur klúbba og eru markvisst að vinna að þessari framtíðarsýn sem birtist í Star Trek, með því að innbyrða boðskapinn og taka hann inn í sitt daglega líf, sinna sjálf boðastörfum og vinna að góðgerðarmálum,“ segir mann- fræðingurinn. „Það er áhugaverð tenging, og það er kannski erfitt að segja trúar- brögð, en þetta er ákveðin trú á framtíðina, að hún sé bjartari. Sem er þá kannski andstaða við þessi gömlu skipulögðu trúarbrögð þar sem við fáum verðlaunin í eftirlíf- inu. Í Star Trek eru verðlaunin í fram- tíðinni og það er ekki sálin eftir dauða líkamans sem fær verðlaunin. Heldur er það mannkynið í heild í framtíðinni. Þannig það er svolítið alltaf verið að horfa á mannkynið í heild í Star Trek og þróun þess.“ ■ odduraevar@frettabladid.is „Þetta hefur farið fram úr björtustu vonum,“ segir Sveinbjörg Péturs- dóttir, markaðssérfræðingur hjá Símanum, um vinnustaðakeppnina Reddum málinu. Þar keppast fyrir- tæki og stofnanir við að lesa texta í gegnum tölvu eða snjalltæki með það fyrir augum að kenna tækj- unum að skilja að lokum íslensku. Keppnin fer fram á vefnum reddummalinu.is og lýkur á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Sveinbjörg segir hátt í tvö hundruð fyrirtæki hafa skráð sig fyrsta dag- inn og þrjú þúsund manns lesið íslensku inn á vefinn. „Þetta tekur bara nokkrar mín- útur og allir geta gert þetta, í hvaða tæki sem er, svo lengi sem þú kemst á netið.“ Áður hefur verið haldin grunnskólakeppni með góðum árangri og er núna komið að því að safna raddsýnum fullorðinna. „Og það er frábært að sjá keppnis- skapið vakna hjá fyrirtækjunum,“ segir hún. „Krakkarnir eru búnir að vera rosa duglegir og konur mjög duglegar en það vantar karlmanns- raddir og það vantar líka þá sem ekki eru með íslensku sem fyrsta mál,“ segir Sveinbjörg. „Þetta varðar okkur öll og snýst ekki um einhverja f lotta íslensku, heldur snýst þetta um að geta átt í samskiptum á tungumálinu okkar, sama hvaðan við komum.“ ■ Alls konar íslensku – ekki bara flotta Patrekur Jaime og Binni Glee láta ekki sitt eftir liggja í keppninni sem er sam- starfsverkefni Almannaróms, HR og Símans. MYND/AÐSEND 22 Lífið 9. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.