Huginn - 01.04.1953, Síða 6

Huginn - 01.04.1953, Síða 6
6 H U E I N N lannpína Ég sat í herbergi mínu, úrillur yfir skrudd- um mínum, og var að vona, að eitthvað óvænt, spennandi kæmi fyrir, sem væri með öllu frá- brugðið því leiðindalífi, sem einkennt hafði mína síðustu skóladaga. Já, og þess var ekki langt að biða, að ég yrði þess var, að eitthvað óvenjulegt væri á seyði. Það byrjaði hægt og án nokkurs sársauka ■— svolitlir óstyrkir kipp- ir í tönnunum. Það var til að byrja með að- eins gaman að því, og mér fannst aðeins til- breyting í þessu. En svo fór þetta að verða að sársauka. Ég stóð upp og byrjaði að ganga fram og aftur um herbergið í þolinmóðu, takt- föstu göngulagi. Það hafið þér vafalaust líka gert undir svipuðum kringumstæðum. Þér hafið ef til vill líka tekið eftir því, að það læknar ekkert. Eg drakk glas af köldu vatni. Mér fannst það væmið á bragðið og kuldinn af vatninu jók kvalirnar í tönninni. Ég reyndi að hella volgu vatni yfir tönnina. Sömu áhrif. Eftir klukkutíma kvöl var ég að verða ær. Til allrar hamingju eru sum apótekin í keykjavík opin alla nóttina, og þar getur mað- ur keypt allt frá „kossum“ (súkkulaði) að penicillinpillum. Ég varð smám saman meira og meira utan við mig af sársauka, ég þaut niður á götuna bjuggu allir keppendur, sem þátt tóku í leikj- unum. Á okkur horfðu menn af 20 til 30 þjóð- flokkum, hvítir, svartir og gulir. Eftir að hafa verið viðstaddur Ólympíuleik- ana í Helsingsfors, sem eru þeir stórkostleg- ustu, sem haldnir hafa verið til þessa dags, er mér nú ljósara en nokkru sinni fyrr, hve geysilega þroskandi og göfgandi íþróttirnar eru fyrir æskuna. Því æðsta hugsjón hvers manns er og á að vera sú, að hann búi yfir heilbrigðri sál í hraustum líkama. Og því tak- marki nær maðurinn bezt með því að iðka íþróttir. Einar Einarsson. og inn í eina slíka stofnun. Með skjálfta í röddinni bað ég ungan mann á hvítum slopp um gott meðal við tannpínu. Hann stakk upp á aspiríni, en ég útskýrði óþolinmóðlega fyrir honum, að það hjálpaði ekkert. Svo sýndi hann mér mynd af lítilli kjarnorkusprengju, en hún var svo ný af nálinni, að ég þorði ekki að reyna hana. „Gaptu,“ sagði hann þvínæst. Hann var nefnilega einn af þeim mönnum, sem hafa gaman af því að kvelja viðskipta- menn sína. Ég opnaði munninn og benti á tönnina, sem hafði angrað mig svo mjög. Eftir nokkur augnablik kíktu að minnsta kosti fimm viðskiptamenn niður í maga á mér, — en reykvísk forvitni gæti verið kapítuli út af íyrir sig. „Vitið þér,“ sagði lyfsalinn, „ég hef meðal, sem er alveg sérstakt. Það heitir „for- ture“ (ég reiknaði með, að það væri latína) og hefur alveg sérstaka eiginleika við tannpínu sem öðru.“ Ég var því ekki lengi að hugsa mig um og keypti dálítinn skammt. Þegar ég kom heim, tók ég mér vænan skammt af því, og beið eftir árangrinum. Hann lét heldur ekki bíða eftir sér. Eftir tíu mín- útur var það, sem ég væri kominn með vængi og flygi um stofuna. — En æ! ó! Það var eins og tannpínan breiddi sig út um allan kjaft, jafnvel barnatennurnar, sem ég hafði misst fyrir mörgum árum, var ég búinn að fá sviða í. Ég lagðist í rúmið, en það var sem hún versnaði um allan helming við það. Ég reif gardínurnar frá glugganum og batt þær um mitt veika höfúð. En alltaf versnaði tannpín- an jafnt og þétt. Það var sem tannpínan breiddi alltaf úr sér, og brátt hafði ég tann- pínu í eyrunum, hálsinum, maganum, hand- leggjunum, tánum og jafnvel í skónum að mér fannst. En yfirgefa mig vildi hún ekki. Mest alla nóttina fékkst ég við að rífa gólf- teppið í ræmur, eða láta reiði mína bitna á stólunum, en allt kom fyrir ekki, tannpínan minnkaði ekki. Ég hljóp eins og óður maður um allt hús og tókst loks að vekja alla íbúa hússins. Því hvaða vit er í því að bera alla þessa kvöl sjálf- ur, þegar hægt er að láta aðra bera hana með sér? Menn bölvuðu og rögnuðu yfir ónæðinu, og hótuðu að kalla á lögregluna, ef ég stillti mig ekki. Þá þoldi ég ekki mátið lengur, þaut út og hljóp beinustu leið niður á Hreyfil, fékk mér „hálfa“ og þambaði að mestu upp úr henni í einum teyg. Það var rétt eins og það hjálpaði — ég bætti einum við og öðrum og

x

Huginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Huginn
https://timarit.is/publication/1602

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.