Huginn - 01.04.1953, Blaðsíða 7

Huginn - 01.04.1953, Blaðsíða 7
HUGINN / það hlýtur að hafa hjálpað, því að minnsta kosti varð ég ekki var við sviðann lengur. Næsta dag vaknaði ég með höfuðverk og tannpínu. Nú var hún öll í jaxlinum, þar sem hún hafði byrjað. Ég skjögraði niður til hús- ráðanda míns, sem hafði fengið mína húsa- leigu greidda fyrirfram, (svo að ekkert var að óttast). Hann vísaði mér á heimilislækni sinn. „Mjög duglegur og iðinn læknir,“ sagði hann. Ég sagði honum eðlilega ekkert um gólf- teppið og stólana; það hefði líka verið hrein- asta ókurteisi gagnvart hjálpfýsi hans við mig. Aftur á móti náði ég mér sem fyrst í leigubíl og ók til heimilislæknis húsráðanda míns. Mér var vísað inn í biðstofuna, þar sem sátu um 25 manns og biðu eftir afgreiðslu. Ég reyndi að lesa í vikuriti frá aldamótunum og ýmsum öðrum blöðum frá fyrstu læknis- aðgerðum, sem gerðar höfðu verið. Nú upp- götvaði ég, að ég hafði talið að minnsta kosti 5 manneskjur fyrir hverja tönn, sem ég hafði tannpínu í, því að í raun og veru voru sjúkl- ingarnir ekki nema 5. Loks kom röðin að mér, en það get ég sagt ykkur í fullum trúnaði, að það tekur á taug- arnar að vera eini maðurinn inni í læknis- biðstofu, sem er virkilega veikur, og þurfa að fara seinastur inn. Það fyrsta, sem ég var spurður að, þegar inn kom, var, hvort ég gæti greitt strax. Og svaraði ég því játandi, því að ég játa yfirleitt öllu, sem ég er spurður að und- ir slíkum kringumstæðum. „Þetta verður mik- il aðgerð,“ sagði hann. „Allar tennurnar í efri- gómnum verður að draga út, og tennurnar í neðri gómnum verður að brjóta úr, að undan- skildum tveim, sem sennilega er hægt að bjarga.“ Svo talaði hann um hengibrýr og húsagerðarlist, svo að ég var farinn að halda, að ég hefði lent inn til arkitekst, en ekki lækn- is. „Ég ætla að segja yður, að þetta mun kosta 800 kr„ og helminginn eigið þér að borga á skrifstofunni áður en við byrjum.“ „En bíð- ið aðeins,“ stamaði ég. „En sársaukinn er að- eins í vinstri jaxli. Það er allt í lagi með hin- ar. Og þar að auki hef ég alls ekki efni á að borga 800 kr. Þér hljótið að hafa ruglazt á Jóni og Thors.“ Nú varð hann vondur og sagði, að ég hefði eytt tíma hans til ónýtis. Hann sagði, að þetta væri enginn leikur, annaðhvort lagaði hann mínar tennur eða ég færi strax. Hann stóð með gríðarmikinn rafmagnsbor og virtist tilbúinn til alls. Þá beið ég nú ekki lengur boðanna, heldur þaut út. Á leiðinni Hví lýt ég svo lágt, en lifi þó hátt? Hví dýrka ég vínguðsins veigar? Aðeins auðnu og tóm, andstyggð og hjóm ég öðlast við görótta teyga. Þegar flaskan er full fær vínsalinn gull. Hann bruggar og byrlar mér eitur. Gapir opin mín gröf, glotta helvítis höf. Verður fjandinn af sál minni feitur? Örlygur frá Viðey. heim hitti ég skólafélaga minn og hann vís- aði mér þegar í stað á bezta lækninn í borg- inni, að því er hann sagði. Ég horfði á hann efablandinn, því að ég hafði heyrt líka sögu skömmu áður, en vinur minn var svo sann- færður og sagði mér svo margar hrífandi sög- ur um þennan lækni, að ég lét að lokum und- an, fékk heimilisfang hans og skundaði af stað. Það var tekið vingjarnlega á móti mér af rauðbirknum, vingjarnlegum lækni, sem bauð mér strax whiský, sem pabbi hans hafði sent honum í brúðargjöf. Ég benti með fyrirlitn- ingu á jaxlinn. Og enn einu sinni settist ég í læknisstólinn. í þetta skipti meira af vana en af hlýðni. Hann setti svuntu á sig, því næst leitaði hann eftir tönninni. „Nú er þetta allt í lagi,“ sagði hann. „Við drögum tönnina bara út, og svo manstu að bursta í þér tennurnar héðan í frá.“ Hann kom með töng, og áður en ég vissi af stóð hann með hálfónýtan jaxl í höndunum. Eftir allt þetta amstur fannst mér ekkert mæla því mót, að ég fengi mér ein- hverja upplyftingu. Morguninn eftir vakn- aði ég líka aðeins með höfuðverk en enga tannpínu. Allspice.

x

Huginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Huginn
https://timarit.is/publication/1602

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.