Huginn - 01.04.1953, Síða 18
18
H U G I N N
ákákwtiHu
Timburmenn
Ég ligg upp í bæli
mér líður svo illa,
sem hundingi á hæli
með hundrað kvilla.
í gær var ég glaður
af guðaveigum,
eyddi margsinnis, maður,
mínum jarðnesku eigum.
Skorpin er tunga, skrælnaðar varir,
skrokkurinn aðeins á nástrái hjarir,
fjandanum sálina feginn ég rétti
ef hann fáeinum bjórdropum upp í mig sletti.
Burt með alla bölvaða drauga,
sem bindindis reisa sér hallir,
en skrokkana lúsuga lauga
í löstunum allir.
Örlygur frá Viðey.
Brotið og lekt vatnssalerni
Forðið ykkur! Flóðið mikla
færir allt í kaf.
Lífs í brotum líkin sprikla,
ljótt er dauðra haf.
Þar grotna í sundur gamlir búkar,
girnast þá rotturnar,
af daunillum sárum þær eru sjúkar.
Sjúkleika rotnunar.
Sagt er að gangi þar gráar vofur
í gegnum sjálfar sig,
og þessar gömlu gráu vofur
garga á mig og þig.
Og næst er þær garga
greyin þau tarna.
Gakk út og hengdu þig.
Örlygur frá Viöey.
Úrslit skákmótsins voru þannig, að Ólafur
Þórarinsson bar sigur úr býtum. Annar varð
Guðmundur P. Jónsson og þriðji varð Magnús
Kristinsson. Voru þeir allir útleystir með góð-
um verðlaunum á fundi í skólafélaginu. Við
birtum hér til gamans skák þeirra Ólafs Þórar-
inssonar og Magnúsar Kristinssonar.
Hvítt- Ólafur Þórarinsson.
Svart: Magnús Kristinsson.
Móttekið drottningarbragð.
1. d-4 d-5
2. c-4 c-6
3. R-c3 R-f6
4. e-3 - -
Hingað til hefur verið farið eftir troðnum
slóðum.
4. - - B-f5
5. D-b3 D-d7
Drottningarleikurinn er ekki djúpt hugsaður
hjá hvítum, því að hann hlýtur að hefta fram-
rás peðanna.
6. R-f3 e-6
7. R-e5 D-c7
8. B-e2 B-d6
9. f-5 R-e4
10. c-5 BxRe5
11. fxBeð 0-0
12. o-o RxRc3
13. DxRc3 R-d7
14. B-d2 b-6
Þessi leikur svarts er gerður til þess að
sprengja upp drottningarmegin, en hvítur vill
halda spennunni, en hyggur meira á kóngs-
sókn.
15. b-4 f-6
Neyðir hvítan til þess að drepa.
16. exf6 Rxf6
17. H-f4 - -
Með það í huga að koma hróknum út á h-
línuna.
17. - - H-e8
18. Ha-fl R-e4
19. D-b2 B-g6
20. B-d3 Rxd2
Nú mátti hvítur ekki leika 21. Bxg6, því þá léki
svartur R-c4 og hvítur tapar manni.