Dagrenning - 01.12.1939, Qupperneq 14

Dagrenning - 01.12.1939, Qupperneq 14
432 yfir til mannsins, sem haim liafði heyrt, að væri faðir söngstúlkunnar. —John Steele, sagði hann og laut nokkuð drýgindalega niður að Steele. — Ég þarf að tala við þig nokkur orð, einslega. Steele sem að þessu hafði naumast tekið eftir neinu sem fram fór þarna í salnum, leit nú upp og framan í þann, sem ávarpaði hann. Andlitið varð hörkulegt og næstum ill- úðlegum svip 'orá yfir það um leið og hann segir: —Hvað vantarþig að tala við mig? Ég þekki þig ekkert; hefi aldrei séð þig fyrr. —Æ, jú, Við munum þó hafa séðst fyrr. Við mætt- umst fyrst óveðursnóttina miklu í ferjubátnum við ár- bakkann. —En ég segi að ég þekki þig ekkert, og mér væri kært, ef þú létir mig í friði ogfærir frá mér. —Þú þekkir mig, Ég er Steve Langford, og hefi verið að leita að þér síðastliðinn mánuð. Þar sem ég hefi ver- ið svo heppinn að finna þig, þá ætla ég ekki að tapa af þér DAGRENNING aftur. Við þurfum að gera upp reikninga saman. Þeir höfðu talað lágt, en þó virtist samtal þeirra hafa truflað fólkið í salnum, sem nú beið eftir að ungfrú Law- less byrjaði að syngjaí þriðja sinn, því nú heyrðist úr öil— um áttum htópað:—Hættið öllu samtali, þú þarna, sem stendur í ganginum, seztu niður. Og herra Lyte sneri sér til mannsins, og bað hann vera hljóðan um sig. —Hafðu sjálfur hljótt, svaraði hiun og var auðheyrt á röddinni að honum fanst sér misboðið,-—Eins og ég megi ekki tala við kunningja mína, ef mig bara vantar. Tilheyrendurnir voru nú orðnir all æstir og hrópaði nú hver af öðrum: Látið hann út ef hann getur ekki þagað á meðan ungfrú Law- less syngur ! Presturinn reis nú á fæt- ur, og við það, að sjá hann standa upp varð dauða þögn í ía'num. —Þér er best að fara út, sagði hann til mannsins, sem hafði verið að tala við Steele. —Ef þú ætlar að fara að gera

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.