Fréttablaðið - 12.11.2021, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þau tala skít á Twitter
en ég læt það ekki á
mig fá.“
Gústi B gaf út nýtt lag á mið-
nætti en lagið heitir Gústi
Jr. Þar opnar hann sig um
baráttuna við Matvæla-
stofnun, yfirvöld og gagnrýn-
endur vegna þessa frægasta
refs á Íslandi.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég kíkti í útvarpsviðtal um dag-
inn þar sem ég ákvað að rappa um
málið og það var þá sem ég fattaði
að ég þyrfti að koma einhverju frá
mér, í bundnu máli. „Af því að ég er
náttúrulega rappari, plötusnúður og
leikari. Maður er náttúrulega ekki
bara refaeigandi sko, þó að maður
sé þekktastur fyrir það í augnablik-
inu,“ segir samfélagsmiðlastjarnan
Ágúst Beinteinn Ágústsson, betur
þekktur sem Gústi B.
Hann segir að umræðan síðustu
vikur og mánuði hafi tekið á sig
og refinn og vill hann með laginu
fá útrás. „Og lagið fjallar um hann
Gústa, refinn minn. Það eru margir
búnir að tjá sig um þetta mál en
nú mun ég útkljá þetta í eitt skipti
fyrir öll og er markmiðið að loka
stóra refamálinu á mínum eigin
forsendum og klára þetta með stæl.“
Gústi viðurkennir að líklega muni
málinu þó ekki ljúka með laginu.
„En lagið er að minnsta kosti eitt-
hvað sem ég þarf að koma frá mér,“
segir Gústi og heldur áfram:
„Þetta hefur tekið sinn toll, ekki
síst fyrir hann júníor minn. Og sér-
fræðingar hjá Matvælastofnun vildu
meina að hann væri orðinn svolítið
stressaður. Ég held það gæti einmitt
verið út af öllum þessum ofsóknum
yfirvalda, það gæti verið,“ segir
Gústi og má þar greina hæðnistón.
Tala skít á Twitter
Hann segir engan bilbug á sér að
finna. „Þetta er eins og ég segi í
laginu sko: „Þau tala skít á Twitter
en ég læt það ekki á mig fá.“ Hinn
annálaði pródúsent Ingi Bauer gerir
lagið með Gústa.
„Ég tók upp lagið hjá honum og
hann hafði fylgst mikið með refa-
málinu mikla og hjálpaði mér með
framkvæmdina. Þegar maður gerir
tónlist um eitthvað sem skiptir
máli, þá er það eitthvað allt annað
og sérstakt, í stað þess að rappa bara
um hvað maður er nettur og ríkur.“
Með laginu kemur út tónlistar-
myndband, sem er alfarið teiknað.
„Og Gústa jr. er í fyrsta skipti breytt
í teiknimyndafígúru. Ég er rosalega
spenntur að sjá hvernig fólk tekur í
það, hann er með gullkeðju og allt.“
Hann segir Gústa jr. alls ekki vera
að fara neitt, þótt lagið eigi að loka
málinu. „Gústi er ekkert á förum
sko en ég kannski dreg hann úr
sviðsljósinu, fyrst þetta er farið að
hafa svona rosalega stressandi áhrif
samkvæmt sérfræðingunum,“ segir
hann hlæjandi.
Gústi segir sig og refinn fá fjöl-
margar fyrirspurnir um afmælis-
kveðjur. „Það eru allir sem vilja
afmæliskveðju frá júníornum, það
er bara þannig. Og fyrirtæki eru
líka mikið búin að vera að hafa
samband, þau vilja fá auglýsingar og
svoleiðis á samfélagsmiðlunum.“ n
Rekur sögu refamálsins
mikla í nýjum rappslagara
Gústi eldri
segist opna
sig upp á gátt í
myndbandinu
þar sem hann
veltir við öllum
steinum.
Gústi segir að ef eitthvað, þá sé refurinn stressaður vegna áreitni yfirvalda en ekki eignarhalds síns. Mynd/Aðsend
Bragi Páll
Sigurðsson
rithöfundur
„Úff, góð spurn-
i n g . T ó m a s
Tómasson lög-
reglumaður er í
bókinni yfir rann-
sókn málsins, það
er svo kannski
bara lesenda að dæma hvort hann
gæti upplýst hver morðinginn er
eður ei,“ svarar rithöfundur-
inn Bragi Páll Sigurðsson
lykilspurningu dagsins.
Bragi gaf nýverið út sína
aðra skáldsögu: Arnaldur
Indriðason deyr. Líkt og
titillinn ber með sér fjallar
bókin um morðið á Arnaldi Ind-
riðasyni og fléttast þar persónur úr
raunveruleikanum inn í sögu Braga.
Hægt væri að sjá fyrir sér ýmsa
möguleika í stöðunni.
Sjálfsagt myndi Arnaldur
best treysta sínum Erlendi
fyrir morðrannsókn sinni
sem gæti einnig farið í
langdregið og formlegt
ferli hjá ráðgátuleysinum
glögga Birgi Ármanns, sem
myndi sennilega slysast til þess
að leysa málið eftir að hafa óvart
rambað á mikilvæga vísbendingu
í gömlum skókassa í kjallara kaup-
félags Borgnesinga. n
Hver gæti leyst morðið á Arnaldi?
n Lykilspurningin
26 Lífið 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Fréttaumfjöllun
fyrir alla
FRÉTTAVAKTIN
kl. 18.30 á virkum dögum
Fréttavaktin býðum landsmönnum upp
á fjölbreytta fréttaumfjöllun í opinni
dagskrá. Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir
fréttayfirlit dagsins ásamt því að fá til
sín góða gesti að ræða helstu mál líðandi
stundar. Fréttavaktin er á dagskrá alla
virka daga kl. 18.30 á Hringbraut
og frettabladid.is