Heilsuvernd - 01.09.1954, Síða 6
HEILSUVERND
Jónas Kristjánsson:
Eru siúkdómar
óum(hjianlegir7
Ég svara fyrir mitt leyti algjörlega neitandi. Það er sann-
færing mín, að sigrast megi á flestum þeim sjúkdómum,
sem þjá hinar vestrænu þjóðir, beiti læknar sér gegn or-
sökum þeirra. Hrörnunarsjúkdómar eru jafnalgengir, eins
og raun ber vitni um, vegna þess, að sáralítið er gert til
að byggja fyrir þá. Jafnvíst er hitt, að sumir hinna næmu
sjúkdóma eins og berklar, mænuveiki, innflúensa o. fl., eru
öðrum þræði manneldissjúkdómar og stafa að nokkru af
því, að daglegri fæðu er áfátt um hollustu.
Það er sannfæring mín, að heilsurækt sé ekki nægur
gaumur gefinn, að of lítið sé gert til að varðveita fullkomna
heilbrigði.
Einn af spekingum fornaldarinnar sagði: „Vísindi og
listir hjálpa ekki, afl og orka koma ekki að gagni, auður
fjár kemur ekki að notum, mælskulistin er fánýt, ef heils-
una vantar."
Náttúrulækningastefnan heldur því fram, að hrörnun-
arsjúkdómar stafi af orsökum, sem unnt sé að koma í veg
fyrir, og með heilnæmum lifnaðarháttum megi til mikilla
muna auka mótstöðuafl líkamans gegn smitsjúkdómum.