Heilsuvernd - 01.09.1954, Blaðsíða 18

Heilsuvernd - 01.09.1954, Blaðsíða 18
78 HEILSUVERND um leið, — öðrum skilyrðum, sem sum eru miklu mikils verðari, svo sem ræktun huga og hjarta. Það er vitað t. d. um Adolf sáluga Hitler, að hann bragðaði ekki kjöt, og munu flestir sammála um, að æskilegt hefði verið, að hann hefði jafnvel hámað í sig kjöt og aðra dýrafæðu, en verið meiri mannvinur en hann var, og yfirleitt meiri maður og betri. — Og sama mætti vitanlega segja um marga gróður- neytendur aðra. En það breytir ekki þeirri staðreynd, að rétt fæðuval er eitt af höfuðskilyrðum bæði líkamlegrar og andlegrar heilsu og þroska, og í raun og veru er það ó- samboðið hugsandi verum, að láta það vera að meira eða minna leyti óháð vakandi athygli og dómgreind, hvers konar fæða það er, sem þær neyta. Nú á dögum er mikið um það hugsað, eins og vera ber, að íbúðarhús manna séu byggð úr haldgóðu og varanlegu byggingarefni. Manns- líkaminn er vissulega dýrðlegasta musteri sálarinnar á þess- ari jörð, og allra mustera þýðingarmest, enda hefur hann stundum verið nefndur „musteri Guðs“ eða Heilags Anda. En þegar um þetta musteri musteranna er að ræða, bregð- ur svo kynlega við, að svo er að sjá, sem mörgum mönnum þyki það harla litlu skipta, hvers konar byggingarefni því er valið. 1 þessum efnum hlýtur höfuðreglan að vera sú, að menn eigi að velja líkömum sínum þá fæðu eina, sem þeir vita, að er þeim holl og heilsusamleg, án alltof mikils tillits til smekksins, sem oft er mjög afvegaleiddur og spillt- ur af röngum lífsvenjum. Þeir menn, sem vinna að því að auka þekkingu manna á réttu mataræði, eru því þarfir menn, og eiga annað skilið en ávítur og brýgzl um ofstæki og kreddur. Annars er þetta ofstækistal stundum heldur undarlegt og handahófskennt, eftir því sem vindurinn blæs í það og það skiptið. Maður, sem er algjör bindindismaður á vín og tóbak, er t. d. stundum kallaður ofstækismaður. En þeir hinir sömu menn, er slíkar nafngiftir hafa á reið- um höndum, sjá ekkert ofstæki í því að vilja halda dauða- haldi í áfengi og tóbak, hvað sem öllu öðru líður en eigin- girni þeirra sjálfra! Þeir, sem kalla gróðurneytendur of-

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.