Heilsuvernd - 01.09.1954, Blaðsíða 19

Heilsuvernd - 01.09.1954, Blaðsíða 19
HEILSUVERND 79 stækismenn, virðast ekki sjá neitt ofstæki í því að geta ekki hugsað sér að hætta við dýrafæðuna, aðeins af því að hún kitlar bragðtaugarnar! Og þannig mætti lengi telja. En þá væri illt í efni, ef samkvæmni, viljafesta og heilindi væru alltaf sama sem ofstæki, þó að þetta allt geti auðvitað tekið á sig ýmsar afkáralegar myndir og öfgakenndar. Frá mínu sjónarmiði er ofstæki fyrst og fremst fólgið í því að vilja þröngva öðrum til þess að haga sér eftir ákveðnum kenningum og skoðunum, og í för með slikri drottnunar- girni er venjulega meira eða minna ofsafenginn málflutn- ingur og óþolinmæði eða skortur á biðlund. Ofstækismað- urinn kann ekki tökin á því að bíða eftir því að aðrir menn sannfærist, annað hvort fyrir mátt réttra raka eða þá fyrir eigin reynslu. Honum er það fyrir öllu að sigra skoðana- andstæðing sinn, jafnvel hvernig sem sigurinn er fenginn. — I ákveðnum dulfræðiskólum í fornöld voru nemendurnir látnir hlýða á fyrirlestra um ákveðin efni. Einn daginn hlýddu þeir á fyrirlestur t. d. um ódauðleika sálarinnar. Þar var teflt fram öllum mögulegum rökum og sönnunum fyrir framhaldslífinu, svo að áheyrendurnir komust varla undan því að sannfærast um ódauðleika mannssálarinnar. En næsta dag voru þeir látnir hlýða á fyrirlesara, sem hélt fram algjörlega gagnstæðum skoðunum. Hann leiddi rök að því, að öllu væri lokið með líkamsdauðanum, og ekkert framhaldslíf væri til. — Hvað áttu nú vesalings lærisvein- arnir að hugsa eða gera? Áttu þeir að trúa fyrri ræðu- manninum og stælast og styrkjast í trú sinni á framhalds- lífið, eða áttu þeir að vera á sama máli og síðasti ræðu- maður, eins og stundum er komizt að orði? — Eða áttu þeir að leggja árar í bát og gefast upp við að komast að nokkurri niðurstöðu? Nei! Þeir áttu að vega og meta rök beggja ræðumannanna, og draga sjálfstæðar ályktanir af. Þeir áttu að brýna dómgreind sína til hins ýtrasta, skerpa skilning sinn á því að glíma við rök og gagnrök, vinna úr öllu saman á hlutlægan hátt og skapa sér ákveðna skoðun Framhald á hls. 87.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.