Heilsuvernd - 01.09.1954, Side 8
68
HEILSUVERND
hvíta hveitisins og hvíta sykursins um allmörg ár og lagt
niður neyzlu sauðamjólkur og afurða hennar.
Það eru um 60 ár síðan ég komst í kynni við læknis-
fræðina. Og þegar ég útskrifaðist um aldamótin, hafði ég
aldrei séð botnlangabólgu. Og Guðmundur próf. Magnús-
son fullyrti, að sykursýki væri ekki til meðal Islendinga,
sem hér hefðu fæðzt og uppalizt. Nú er sykursýkin orðin
talsvert algengur sjúkdómur og fer vaxandi. Magasár var
fátítt fyrir aldamót. Nú er það orðið hræðilegur kvilli og
fer hratt vaxandi. Sama er að segja um tannveikina. Nú er
það orðið fágætt að hitta mann með heilar tennur, og þann-
ig er það um hrörnunarsjúkdóma. Orsakirnar eru ekki
tvíræðar. Hvíta hveitið, hvíti sykurinn og hvítu hrísgrjónin
hafa undanfarna áratugi verið stór og vaxandi liður í fæði
almennings. Og þessar fæðutegundir hafa án efa valdið
æ g i 1 e g u heilsutjóni og er sennilega helztu orsakavald-
ar krabbameins vegna kyrrstöðu í þörmunum, en hún veld-
ur rotnun, sem berst með blóðinu um allan líkamann. En
krabbameinið er fyrst og fremst blóðsjúkdómur.
Þessar fæðutegundir eru gjörsneyddar lifandi fæðuefn-
um, fjörefnum, steinefnum og grófefnum, sem líkamanum
eru nauðsynleg. Það er því engin furða, þótt þessi dauða
fæða valdi veiklun og ýmiss konar truflunum í líkamanum.
Hitt væri furðulegt, ef hún gerði það ekki, þar sem hana
skortir þau efni, sem líkamanum eru nauðsynleg til heil-
brigði og hreysti. Það þarf ekki læknislærða menn til að
skilja þetta. Þetta skilur og veit hver hugsandi maður.
Orku sólar, sem viðheldur öllu lífi, þarf að gæta í fæð-
unni. Þegar við neytum lifandi jurta, draga meltingarfær-
in geislamagn sólarinnar úr fæðunni, og með blóðinu flytzt
það til hverrar frumu líkamans, eykur lífmagn hverrar
frumu og mótstöðuafl gegn sjúkdómum og veitir okkur
vellíðan og fyllir okkur starfsorku og starfslöngun um
langan aldur.
Öll heilbrigði er undir því komin, að blóðið sé hreint. En
hreint blóð er undir því komið, að neytt sé réttrar fæðu.