Heilsuvernd - 01.09.1954, Side 10
HEILSUVERND
Gretar Fells:
THusteri
THusleranna.
Langt er síðan að það var haft á orði í mín eyru, að
Guðspekinemar væru allir grasætur, og hefðu hina megn-
ustu skömm og andúð á öllu kjöti. Tilfærð var sú ástæða
fyrir þessari afstöðu þeirra, að þeir vildu ekki láta deyða
nein dýr, en auk þess teldu þeir jurtafæðu hollari, bæði
líkama og sál, heldur en dýrafæðu, og eiginlega hina einu
fæðu, sem til mála kæmi að neyta, þegar menn væru farnir
að feta hina innri leið andlegrar þroskaviðleitni. Auðvitað
var litið á þetta sem sérvizku og kreddutrú, og málið oft
afgreitt með háðsglósum og axlaypptingum. Nú er öldin
önnur, þó að ennþá séu framfarir, að því er mataræðis-
menningu snertir, of hægfara. En áður en ég tek að segja
frá kenningum Guðspekinnar um mataræðið, vil ég leyfa
mér að leiðrétta ýmsar missagnir um afstöðu Guðspeki-
félagsins og Guðspekinema til málsins. Því fer fjarri, að
Þar sem hollir lifnaðarhættir eru í heiðri hafðir, eru
sjúkdómar nærri óþekkt fyrirbrigði. Sjúkdómar eru því
e k k i óumflýjanlegir.