Heilsuvernd - 01.09.1954, Qupperneq 11

Heilsuvernd - 01.09.1954, Qupperneq 11
HEILSUVERND 71 allir Guðspekinemar hafni dýrafæðu, og hér á landi a. m. k. munu þeir, er það gera, vera í miklum minnihluta. Guð- spekifélagið sem heild tekur enga afstöðu til málsins, frem- ur en til annarra kenninga, sem komið hafa fram innan vébanda þess eða utan. Það er fræði- og námsfélag, sem lætur meðlimi sína algjörlega sjálfráða um það, hvaða kenningar þeir aðhyllast eða afneita, eða hvernig þeir haga lífi sínu, svo framarlega sem það brýtur ekki í bága við einingarkenningu þá og bræðralagshugsjón, sem er grund- völlur sá, sem félagið er byggt á. Maður getur verið ágætur Guðspekinemi, þó að hann neyti kjöts eða annarrar dýra- fæðu, og miklu meiri og betri en hinn, sem ef til vill er að- eins gróðurneytandi. Það væri hlægilega auðvelt að vera góður maður og nýtur, að ekki sé sagt heilagur maður, ef ekki þyrfti til þess annað og meira en að breyta um mat- aræði, — ef eldhúsið væri eins konar óhjákvæmileg sálu- hjálparmiðstöð. Málið er ekki svo einfalt. — Hitt er annað mál, að margir Guðspekinemar munu komast að þeirri nið- urstöðu, eftir að þeir hafa kynnt sér kenningar Guðspek- innar, að af mjög mörgum ástæðum væri æskilegt, að allt dýradráp væri lagt niður, og að maðurinn sé ekki skapað- ur fyrir dýrafæðu, hvorki frá líffræðilegum eða öðrum sjónarmiðum. Þeir benda í þessu sambandi á nokkrar stað- reyndir, og skulu þær raktar hér: 1. Hið allra fyrsta, sem hver sá maður, er leitar andlegs þroska, verður að gera sér grein fyrir, er hin raunverulega afstaða jarðlíkamans til hins innra manns, og þýðing hans fyrir alla andlega þroskaviðleitni. Því að þó að maðurinn sé annað og meira en líkaminn, er líkaminn þýðingarmikill hluti þeirrar heildar, sem vér köllum mann. Það er algjört aðalatriði, að líkaminn láti sem bezt að stjórn hins innra manns, en til þess, að um það geti verið að ræða, verður líkaminn að vera hreinn og léttur, ómengaður öllu eitri og óþyngdur af grófum fæðutegundum, sem verka sem eins konar stjóri við þessa jörð. Þá má það og teljast sannað mál, að ef menn vilja varðveita fulla heilbrigði líkamans,

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.