Heilsuvernd - 01.09.1954, Page 30

Heilsuvernd - 01.09.1954, Page 30
90 HEILSUVERND skal jafnframt tekið fram, að allt starfsliðið fékk óskipt hrós og átti það skilið. 1 fyrra var Sigurlaug ungfrú, en nú er hún ung frú — í tveim orðum. Og sú breyting olli því, að hún gat ekki veitt Hressingarheimili N.L.F.I. forstöðu í sumar, þar eð hún varð eðlilega fremur að sinna heimili og nýfengnum erf- ingja, sem Heilsuvernd óskar heilbrigði og hamingju. En þótt frú Sigurlaug geti ekki lengur starfað á vegum N. L. F. I., er vonandi, að hún geti látið sem flesta njóta kunnáttu sinnar áfram, því að gegnum eldhúsið ekki sizt liggur vegurinn til heilbrigði eða vanheilsu, svo að á mikiu veltur, að húsmæður framtíðarinnar njóti góðrar leiðsögu um villigötur matreiðslunnar. Og þar munu ekki margar ratvísari en frú Sigurlaug, sem sameinar í matreiðslunni heilnæmi og bragðgæði. M. M. Sk. Hér fylgja nokkrar uppskriftir, sem frú Sigurlaug góð- fúslega lét Heilsuvernd í té: H VÍTKÁLSJAFNIN GUR. Vi ltr. mjólk, 100 gr. smjörlíki, 100 gr. heilhveiti, 200 gr. hvítkál. Mjólkin hituð, smjörlíkið linað i skál, hveitið hrært út í, látið í mjólkina þegar sýður, hvitkálið þá í, soðið í 5 mínútur. GULRÓFNASALAT. Rifnar gulrætur, rúsínur, sítrónusafi og svolitið af púðursykri. Öllu blandað saman, borðað strax. GRÆNKÁLSSALAT. Saxað grænkál, smátt mulin þurrkuð epli, sem lögð hafa verið i bleyti, rúsínur, söxuð steinselja, púöursykur. Öllu blandað i þeytta súrmjólk, sett í skál skreytt með tómötum. KARTÖFLUBOLLUR. 250 gr. kartöflur soðnar með hýði, 100 gr. blaðlaukur, 2 tsk. kartöflumjöl, 1 egg. Vítamonkraftur. Kartöfiurnar og graslaukurinn saxað og látið í skál, kartöflu- mjölið og eggið hrært út í. Mótað i bollur, brúnaö ljósbrúnt á pönnu. Borðað með hvitkálsjafningi.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.