Heilsuvernd - 01.09.1954, Síða 35
HEILSUVERND
95
„Náttúrlegir hlutir" er þáttur, seni náttúrufræðingar hafa unilan-
farið annazt í Útvarpinu. Hafa þeir, hver á sinu sviði, svarað
spurningum um náttúrufræði og miðlað htustendum miklum, hlut-
lausum fróðleik, eins og vísindamönnum ber að gera um fræði-
leg efni.
Einn okkar ágætu náttúrufræðinga, Sigurður Pétursson, geria-
fræðingur, vakti þó á sér athygli fyrir að nota þáttinn til mjög ó-
visindalegs áróðurs gegn Náttúrulækningastefnunni, sem auðheyrt
var, að hann þekkti harla lítið. Þegar gerlafræðingurinn flutti hið
óvisindalega erindi sitt, varð þessi visa til:
Með óhreint mjöl eru ýmsir á ferli
í áróðurspokanum,
en ekki veit ég af verri gerli
en vísindahrokanum.
FÉLAGSFRÉTTIR.
Aðalfundur Pöntunarfétags N.L.F.R. var haldinn í Guðspekifé-
lagshúsinu 14. júní. Tveir áttu að ganga úr stjórninni, en voru
endurkjörnir. Stjórnina skipa: Marteinn M. Skaftfells, formaður;
Ililmar Norðfjörð, varaformaður; Steindór Björnsson frá Gröf,
ritari; Klemenz Þorleifsson, gjaldkeri og Friðrik Lunddal, með-
stjórnandi.
Pöntunarfélagið var formlega stofnað 22. júní 1953 með 187
stofnfélögum. Húsnæði fyrir starfsemi félagsins var teigt að Týs-
götu 8. Unnið var að öllum nauðsynlegum umbótum á húsnæðinu
í sjálfboðavinnu, því að vissulega mátti ekki rýra hina léttu sjóði
félagsins meira en brýnustu nauðsyn bar til. 30. júli voru fyrstu
vörurnar afgreiddar og starfræksla hafin. Þriðjudagur og föstu-
dagur liafa frá byrjun verið fastir pöntunardagar. Þá daga er
vörum ekið heim til þeirra, er þess óska. Það sparar húsmæðrum
marga snúninga og veitir öllum, hvar sem þeir búa í bænum eða
grennd, möguleika til að skipta við félagið og njóta þeirra hlunn-
inda, sem það veitir. Margir félagsmenn sækja pantanir sínar
sjálfir. Oft hefir það komið þeim betur að fá þær afgreiddar utan
hinna ákveðnu pöntunardaga, og hefir stjórnin frá upphafi talið
það sjálfsagða þjónustu að mæta slíkum óskum eftir föngum. Pant-
anir eru einnig sendar út á land, jafnt til utanfélagsmanna sem
félagsbundinna.
14. okt. opnaði félagið einnig verztun fyrir utanfélagsmenn.
Pöntunardeildin stendur öllum fétagsmönnum opin eftir sem áð-