Heilsuvernd - 01.09.1954, Side 36

Heilsuvernd - 01.09.1954, Side 36
96 HEILSUVERND ur með þeim hlunnindum, sem hún veitir og vera ættu hverju heimili til nokkurs hagnaðar. Um áramót voru félagsmenn 259. Á þessu ári til 10. júli hafa 108 nýir félagar bætzt í hópinn, þar af 45 i júní. Viðskipti hafa frá byrjun stöðugt farið vaxandi, enda hefir verið lögð rik áherzla á lipra afgreiðslu og vöruvöndun, sérstak- lega útvegun hollra matvæla. Kornkvörnin tryggir viðskiptamönnum bezta fáanlega mjölið. Ekki hefir verið unnt að komast hjá því að verzla með ýmsar vörur, sem við teldum æskilegt að þurfa ekki að hafa. Tóbaks- vörur, sælgæti, öl og slíkt er samt ekki verzlað með. En þótt einnig sé verzlað með vörur, sem við teljum neikvæðar, er stranglega fylgt þeirri reglu að mæla aldrei með neinni vöru, sem ekki má telja vist að sé góð. Frá þeirri reglu má aldrei hársbreidd hvika, og á því engin hætta að vera, því að verzlunin er ekki rekin sem gróðrafyrirtæki, heldur til að útvega almenningi sem beztar vörur yfirleitt og þá fyrst og fremst sem beztar neyzlu- vörur. Þannig vill félagið stuðla að bættu heilsufari einstaklings og þjóðar í þjónustu við hugsjón og markmið náttúrulækninga- stefnunnar. Náttúrulækningafélag Akraness hélt aðalfund sinn fimmtudaginn 10. júní s.l. Þessir félagar skipa stjórn félagsins: Jóhann B. Guðnason, formaður, Einar Þ. Helgason, Þuríður Guðnadóttir, Guðni Kristjánsson og Karl Helgason. Varastjórn skipa: Guðmundur Jónsson, Gísii Guðjónsson og Ingibjörg Tómasdóttir. Gjaldkeri og framkvæmdastjóri félagsins, Einar Þ. Helgason, las upp reikninga félagsins, og voru þeir samþykktir. Félagið rek- ur pöntunarstarfsemi með þær vörutegundir, er félagsmenn neyta helzt. Vöruvelta á s.l. ári nam um 45.000 krónum. Auk þess eiga félagsmenn kornmyllu, sem er mikið notuð á alls konar korn- tegundir. Nú hefir félagið keypt verzlunarleyfi og hyggst að auka umsetningu alls konar neyzluvara. Var allmikið rætt um þá starf- semi félagsins og tilhögun hennar. Jón Kr. Guðmundsson hefir haft á hendi vöruúthlutun fyrir fé- lagið, og annast um það með mikilli kostgæfni og trúmennsku tvö s.l. sumur. Á þessum fundi var allmikið rætt um væntanlega skemmtiferð til fjarlægra landsfjórðunga og kosin undirbúnings- nefnd til að skipuleggja ferðalag nú á þessu sumri. Meðlimum félagsins fer fjölgandi, og eru nú rétt tvö hundruð. Akranesi, 19. júní 1954. Jóhann Guðnason.

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.