Heilsuvernd - 01.03.1993, Síða 5
ÚTGÁFA:
Náttúrulækningafélag íslands.
RITSTJÓRN OG ÁBYRGÐ:
Kolbrtin Sveinsdóttir.
RITNEFND:
Kolbrún Sveinsdóttir og Regína
Stefnisdóttir.
ÚTLIT OG UMBROT:
Kolbrún Sveinsdóttir.
AUGLÝSINGAR:
Björg Stefánsdóttir.
PRÓFÖRK:
Eiríkur Þormóðsson.
MYNDIR:
Bonni (Björn Torfi Hauksson).
FILMUVINNA OG SKEYTING:
Prentmyndastofan.
PRENTUN:
Prenttækni.
DREIFING í REYKJAVÍK:
Ævar Guðmundsson,
sími: 985-23334.
Skrifstofa Náttúrulækningafélagsins,
Heilsuverndar og Heilsuskóla NLFÍ
er á Laugavegi 20b, 101 Reykjavík.
ÁSKRIFTARSÍMI: 91 16371.
STJÓRN
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAGS
ÍSLANDS:
Gunnlaugur K. Jónsson forseti,
Vilhjálmur Ingi Árnason varaforseti,
Regína Stefnisdóttir,
Friðgeir Ingimundarson.
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Kolbrún Sveinsdóttir.
FRÁ RITSTJÓRA
Á undanförnum árum hefur blaðið verið að
stækka jafnt og þétt og stækkar nú enn með
þessu tölublaði. Ástæðan er sú að blaðið hefur
stöðugt verið að vinna á og nú hafa bæst við mjög
margir nýir áskrifendur frá áramótum. Það kann
að koma á óvart að mitt í öllu krepputalinu
skulum við vera að stækka við okkur. En það er
svo sannarlega engin kreppa í þeim málefnum er
varða heilsu, þvert á móti hefur verið útþensla
hjá Náttúrulækningafélaginu hin síðari ár og er
Heilsuskóli NLFÍ gott dæmi um það, en á liðnu
ári hefur hann verið að vinna sér fastan sess með
fjölbreyttu námskeiðahaldi. Við segjum nánar frá starfsemi skólans hér í
blaðinu. Það er ánægjulegt til þess að vita að fólk skuli ekki byrja sparnaðinn
á eigin heilsu þegar kreppir að.
Ekki er ólíklegt að aðgerðir stjórnvalda í heilbrigðismálum séu kveikja að
aukinni meðvitund manna um fyrirbyggjandi aðgerðir í sambandi við
heilsufar. Þær aðgerðir hafa vakið menn til umhugsunar urn að það er ekki
á neinn nema sjálfan sig að treysta þegar heilsan er annars vegar. Með
aukinni meðvitund vaknar líka áhugi fyrir starfi þeirra sem hafa þor til þess
að leita nýrra leiða í lækningum eins og t.d. Ævar Jóhannesson. Þessi lítilláti
vísindamaður vinnur mikið starf í leit sinni að hjálp fyrir sjúka og ekki síst
fyrir fólk sem fengið hefur krabbamein. Síminn hjá Ævari hringir stöðugt,
seint og snemma, jafnt í vinnu sem á heimilinu og hann reynir að veita öllum
liðsinni og tekur hann þó enga greiðslu fyrir. Ævari hefur orðið vel ágengt
og margir binda nú vonir við seyði það sem hann gerir úr lúpínunni.
Efni blaðsins er fjölbreytt að vanda og hefur verið gaman að undirbúa það
en mér er engin launung á að skemmtilegasti hluti þeirrar vinnu var að fá
að kynnast Huldu Sigurðardóttur jógaleiðbeinanda. Hulda býr yfir visku og
ró sem getur fylgt efri árunum en um leið er hún vökul og kvik sem í blóma
lífsins væri. Ég býst við að flestir kvíði því að eldast en ef við verðum svo
lánsöm að geta farið í fötin hennar Huldu þarf ellin ekki að vera neitt
kvíðaefni.
Með sumarkveðju,
5