Feykir - 16.12.2020, Side 9
48/2020 9
Mjólkursamlag KS
Skagfirðingabraut 51 Sauðárkróki Sími 455 4600 www.ks.is
Bestu óskir um
gleðileg jól
og farsæld á komandi ári
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Gleðileg jól og farsælt komandi ár,
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Sjáumst hress og kát á nýju ári.
Jólakveðja frá KS Hofsósi
HOFSÓSI
Brunborg30) og settist að í Noregi. Eftir
síðari heimsstyrjöldina var Guðrún
mikið á Íslandi, en sonur hennar Olav31)
hafði verið í andspyrnuhreyfingunni
og látist í fangabúðum nasista. Með
kvikmyndasýningunum á Íslandi safnaði
hún í sjóð til minningar um son sinn
handa íslenskum námsmönnum í Noregi
og norskum námsmönnum á Íslandi.
Fyrir störf sín fékk hún bæði fálkaorðuna
og orðu frá Ólafi Noregskonungi.
Hvítasunnumenn voru með söfnuð á
Sauðárkróki en komu stundum í Hofsós
og héldu samkomur í barnaskólanum
til að reyna að kristna hina heiðnu
Hofsósinga. Bar það takmarkaðan
árangur. Sigurður á Egg32) stóð með
Biblíuna í skjálfandi höndum og hrópaði
„Ég var syndari“ titrandi röddu, en hann
hafði frelsast á fullorðinsaldri. Svavar
Guðmundsson33) var áheyrilegri með
sinni tæru tenórrödd og eigin undirspili
á rafmagnsorgel. Minnisstæðastur var
þó Daníel Glad34) sem kom akandi af
Króknum í sínum Volkswagen og hélt
samkomur fyrir börnin. Við héldum að
Daníel hefði fengið viðurnefnið Glað af
því að hann var alltaf svo glaður. Það var
þó ekki. Ég hitti Daníel síðar á æfinni og
komst að því að hann var frá Finnlandi
og er ættarnafnið Glad vel þekkt meðal
sænskumælandi Finna. Því var það
að Daníel söng með sænskum hreim
„Hver hefur skapað fuglarna, fuglarna,
fuglarna?“, en ekki fuglana. Sama var
að segja um blómin björt, stjörnurnar,
mig og þig og kannski eitthvað fleira. Ég
veit að jafnaldrar mínir úr Hofsós geta
örugglega heyrt í huga sér söng Daníels
með finnlandssænska hreimnum um
allt sem „gud í himmelen“ skapaði.
Daníel var sennilega eitthvað slappur í
íslensku tölunum því þegar hann var að
selja sínar kristilegu bækur nefndi hann
aldrei upphæðina heldur einungis litinn
á seðlunum, t.d. einn rauðan og einn
bláan.
Við látum þetta nægja að sinni þó
að sjóðir minninganna um samkomur
og skemmtanir í Hofsós æsku minnar
séu enn langt frá því tæmdir. Jólatrés-
skemmtunin og kvenfélagsböllin með
körfuuppboðinu með öðru góðu bíða því
betri tíma.
Þorrablótsnefndin í stuði að skemmta bæði sér og öðrum. F.v. Trausti Gunnsa, Pétur Tavsen, Bergur
Baldvinsson, Guðmundur Kristjánsson (Mummi), Björn Ívarsson (Bassi) og Gísli Kristjánsson. Myndin er
í eigu Finns Sigurbjörnssonar.
Nafnalisti:
1) Húsið við Suðurbraut 2 í Hofsós. Var áður samkomuhús
Hofsósinga.
2) Þorgrímur Hermannsson, (1906-1998), útgerðarmaður,
skipstjóri og bátasmiður á Hofsósi.
3) Draugalestin. Sakamálaleikur eftir Arnold Ridley.
Sett upp hjá Leikfélagi Hofsóss leikárið 1950-1951,
Þorsteinn Hjálmarsson, faðir greinarhöfundar,
leikstýrði.
4) Foreldrar Þorsteins, hjónin Þorsteinn Hjálmarsson
(1913-1981), símstöðvarstjóri í Hofsós, og Pála Páls-
dóttir (1912-1993), kennari í Hofsós.
5) Jón Stefánsson (1894-1964). Bjó í Hvammkoti á
Höfðaströnd og síðar í Háaskála í Hofsós.
6) Jóna Sigurbjörg Þórðardóttir, f. 1947, dótturdóttir Jóns.
Bjó lengi á Sauðárkróki með manni sínum Kristjáni
Arasyni múrarameistara, nú í Reykjavík.
7) Kristján Ingólfsson, (1943-1990). Átti heima í Bræðra-
borg í Hofsós.
8) Geirmundur Valtýsson. Gunnlaugur, Gulli, á Geir-
mundarstöðum mun hafa verið fyrri til af þeim
bræðrum til að stofna hljómsveit og gáfu gárungarnir
á Króknum henni nafnið Ferguson þegar til sveita-
drengjanna sást þriggja saman á dráttarvél. Geiri kom
inn síðar og mynduðu þá bræðurnir, ásamt Jóni á
Fosshóli, tríóið. Gulli á harmónikku, Geiri á gítar og Jón
á trommur. Þetta varð fyrsta hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar sem fékk nafnið Rómó og Geiri og er eldri
Skagfirðingum í fersku minni.
9) Kjartan Már Ívarsson, f. 1943. Ólst upp í Hofsós, nú í
Vestmannaeyjum.
10) Syðsta íbúðarhúsið í Hofsós. Verksmiðjan Stuðlaberg
stendur við hlið þess.
11) Nótabáturinn Stalín lá lengi í fjörunni neðan við gamla
pakkhúsið í Hofsós, en var að lokum hlutaður sundur
og dreginn í hlutum á bálköstinn á gamlárskvöld.
12) Gunnar Baldvinsson (1925-2007). Vörubílstjóri með
meiru í Hofsós.
13) Hermann Ragnarsson (1927-1990), sjómaður í Hofsós,
kenndur við móður sína, Elínu Hermannsdóttur.
14) Margrét Þorgrímsdóttir f. 1932. Eiginkona Gunnars
Baldvinssonar. Býr nú í Vestmannaeyjum.
15) Steinunn Hjálmarsdóttir f. 1951. Frá Hólkoti í Unadal.
Býr nú í Reykjavík.
16) Hjálmar Sigmarsson (1919-2019) og Guðrún Hjálm-
arsdóttir (1928-2018). Bændur í Hólkoti í Unadal.
17) Óttar Skjóldal f. 1932 og Hugljúf Ragna Pálsdóttir f.
1934, bændur í Enni á Höfðaströnd.
18) Björn Jóhannsson, f. 1943, verkamaður í Hofsós og
víðar. Býr í Hofsós.
19) Tómas Þorgrímsson, f. 1939. Býr á Akureyri.
20) Sigurður Björnsson, f. 1940. Var lengi bílstjóri hjá
Siglufjarðarleið, síðar sölustjóri hjá Steinullarverk-
smiðjunni og útibússtjóri ÁTVR á Sauðárkróki. Býr á
Sauðárkróki.
21) Snorri Jónsson (1926-2012). Bjó í Ártúnum, var
mjólkurbílstjóri og síðar skólabílstjóri. Bjó síðar á
Akranesi.
22) Flóabáturinn Drangur sá um flutninga á eyfirskar og
skagfirskar hafnir um árabil.
23) Sölvi Jónsson (1906-1996). Verkamaður, bjó síðast í
Skjaldbreið í Hofsós.
24) Skúli Jóhannsson f. 1939. Flutti til Sauðárkróks
þar sem hann býr. Tók drjúgan þátt í starfi
verkalýðshreyfingarinnar á Króknum.
25) Gísli Sigurðsson á Sleitustöðum (1911-1966), Stofnaði
Siglufjarðarleið og gerði það að stórfyrirtæki.
26) Gunnar Salómonsson (1907-1960). Kunnur aflrauna-
maður. Kallaði sig Úrsus Íslands.
27) Geirmundur Jónsson (1912-1999). Kaupfélagsstjóri í
Hofsós og síðar bankastjóri við Samvinnubankann á
Sauðárkróki.
28) Guðmundur Steinsson (1921-1923). Múrari og smiður.
Bjó í Birkihlíð í Hofsós.
29) Guðrún Brunborg (1896-1973). Ferðaðist mörg sumur
um Ísland og sýndi norskar kvikmyndir til fjáröflunar
fyrir umræddan sjóð.
30) Salomon Brunborg (1887-1976), norskur eiginmaður
Guðrúnar.
31) Olav var sonur Guðrúnar og Salomons og barðist í
andspyrnuhreyfingu Norðmanna gegn Þjóðverjum.
32) Sigurður Þórðarson (1879-1978), bóndi á Egg í
Hegranesi, fór til Sauðárkróks 1970.
33) Svavar Guðmundsson (1905-1980), síðast skrifstofu-
maður hjá Sauðárkróksbæ. Svavar var söngmaður
góður og hefur Sverrir Bergmann væntanlega sína
miklu og fallegu rödd frá langafa sínum.
34) Daniel Glad (1927-2015). Sænskumælandi finnskur
trúboði Hvítasunnukirkjunnar sem ferðaðist víða um
land og spilaði þá gjarnan og söng. Bjó um tíma á
Sauðárkróki.
Molduxar
senda körfuboltamönnum sem og
öðrum landsmönnum hlýjar jólakveðjur
og ósk um farsælt komandi ár