Feykir - 16.12.2020, Qupperneq 12
12 48/2020
Brátt hækkar sól
AÐSENT | Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar
Þau lýsa fegurst,
er lækkar sól,
í blámaheiði
mín bernsku jól.
Ljóð Stefáns frá Hvítadal sem
ber einfaldlega heitið Jól hefur
alltaf verið mér hugleikið og þá
einnig einstaklega fallegt lagið
sem Jórunn Viðar samdi við
það. Það er í því einhver tærleiki
og fegurð barnæskunnar og
barnatrúarinnar.
Aðventan er venjulega líf-
legur tími hjá okkur flestum.
Vinir og fjölskyldur hittast
og gera sér glaðan dag og á
flestum vinnustöðum er hefð
fyrir einhvers konar jólagleði.
Árið í ár verður frábrugðið því
sem við eigum að venjast vegna
baráttunnar við veiruna. Þær
skorður sem veiran setur okkur
varðandi félagslíf eru vissulega
íþyngjandi en eru nauðsynlegar
til að vernda líf og heilsu fólks.
Viðbúin bjartari dögum
Það er hins vegar ekki aðeins
félagslíf okkar sem breytist því
fjölmargir, fólk og fyrirtæki,
hafa orðið fyrir alvarlegu höggi
vegna veirunnar. Ríkisstjórnin
hefur brugðist við því með
fjölmörgum aðgerðum til að
skapa viðspyrnu fyrir Ísland.
Ríkissjóður stóð vel vegna
ábyrgrar stjórnunar síðustu
ár og getur því betur tekið á
sig auknar byrðar tímabundið
með skuldsetningu. Aðgerðir
ríkisstjórnarinnar sem síðast
voru kynntar eiga að stuðla
að öflugri viðspyrnu þegar
heimurinn opnast að nýju.
Hlutabótaleiðin verður fram-
lengd til sumars, atvinnu-
leysisbætur hækkaðar, boðið
upp á fleiri félagsleg úrræði
og boðið upp á sérstaka
viðspyrnustyrki sem hafa það
að markmiði að þekkingin
hverfi ekki úr fyrirtækjunum
með uppsögn lykilstarfsfólks,
að fyrirtækin verði ekki lömuð
þegar við loks lítum bjartari daga.
Sérstökum ívilnunum verður
einnig beitt til að auka kraft og
fjárfestingu í einkageiranum
sem er nauðsynlegt til að skapa
störf og auka verðmætasköpun í
samfélaginu.
Þessar aðgerðir ríma við það
sem ég sagði í umræðum um
stefnuræðu forsætisráðherra:
Verkefni okkar í stjórnmálunum
næstu mánuði væri skýrt:
atvinna, atvinna, atvinna. Við
þurfum að vernda störf og skapa
störf. Þar erum við í Framsókn
á heimavelli því saga okkar er
samofin atvinnuuppbyggingu
landsins. Það er í kjarna
flokksins að þekkja mikilvægi
þess að hafa vinnu, að skilja
sjálfstæðið sem felst í því að hafa
trygga atvinnu, að vita hvað það
er átakanlegt að vera án vinnu
og án tekjuöryggis.
Fleiri sterkar greinar
Þótt ég sé kannski ekki mjög
aldraður maður, hef ég lifað
þá tíð að horfa upp á íslenskt
efnahagslíf rísa og hníga til
skiptis. Það mun halda áfram.
En ég er búinn að átta mig á því
að það er beinlínis óskynsamlegt
að treysta of mikið á eitthvað
eitt. Við þurfum fjölbreytt at-
vinnulíf. Við þurfum að styðja
við nýjar greinar en hlúa áfram
að rótgrónari atvinnuvegum.
Eitt á ekki að útiloka annað. Við
verðum að byggja á samvinnu,
málamiðlunum og árangri. Við
finnum leiðir.
Mér þykir það augljóst að
styðja verður dyggilega við
íslenska matvælaframleiðslu,
hvort heldur hún felst í því að
yrkja jörðina, rækta búpen-
ing eða veiða fisk. Það er
mikilvægt að standa vörð um
matvælaöryggi og þá fram-
leiðslu sem er hér á landi. Það
er ekki síður mikilvægt að við
breikkum þann grundvöll sem
verðmætasköpun á Íslandi
stendur á. Ég hef einnig nefnt
mikilvægi þess að styðja við
vöxt skapandi greina og þá
sérstaklega nefnt til sögunnar
kvikmyndagerð og tölvu-
leikjagerð. Það er eftirspurn eftir
íslenskri sköpun og í skapandi
greinum búa mikil tækifæri.
Eftir vetur kemur vor
Ég óska þér, lesandi góður,
gleðilegra jóla og vona að þú
finnir leið til að njóta aðventu og
hátíðar við þessar einkennilegu
aðstæður. Fréttirnar sem
okkur berast þessa dagana af
bóluefnum gefa okkur von um
að með vorinu sjáum við aftur
glitta í eðlilegt líf. Veturinn
verður erfiður fyrir marga en
með krafti samfélagsins, með
krafti samvinnunnar þá mun
hann verða auðveldari. Og eftir
vetur kemur vor og þá verðum
við vonandi aftur farin að faðma
fólkið okkar og getum horft
grímulaus fram á veginn.
Ég sé þær sólir,
mín sál er klökk
af helgri hrifning
og hjartans þökk.
Lýstu þeim héðan
er lokast brá,
heilaga Guðsmóðir,
himnum frá.
.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
formaður Framsóknar
og samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra.
Þessa dagana er liðið ár frá því mikið óveður gekk yfir norðanvert landið. Síðan hefur
verið unnið þrekvirki í öryggi fjarskipta með varaaflsstöðvum. Á myndinni sit ég,
ásamt forsætisráðherra og félags- og barnamálaráðherra, á eftirminnilegum fundi
með almannavörnum Skagafjarðar. AÐSEND MYND
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
Jólamót Molduxa 2020
Mótið sem fer ekki fram
Molduxar munu að venju
standa fyrir Jólamóti Molduxa
í körfubolta nú um jólin
og það í 27. skipti. Mótið
verður þó með breyttu
sniði því það mun ekki fara
fram, í það minnsta ekki í
raunveruleikanum. Ágóðinn
af mótunum hefur runnið
til Körfuknattleiksdeildar
Tindastóls sem margir vilja
styrkja með ráðum og dáð og
Molduxar deyja ekki ráða-
lausir frekar en fyrri daginn.
Í fréttatilkynningu segir: „27.
Jólamót Molduxa í körfubolta
verður ekki haldið annan í
jólum að þessu sinni út af
dálitlu. Það verður því ekki
heldur sett með veitingu Sam-
félagsviðurkenningar Molduxa
eins og undanfarin ár. Því verð-
ur ekki keppt í neinum flokki,
og engin lið raðast saman eftir
styrkleika strax að lokinni
fyrstu umferð.
En ....þar sem allur ágóði af
Jólamótum Molduxa hingað til
hefur runnið til körfuknatt-
leiksdeildar Tindastóls og er
stór liður í fjáröflun deildar-
innar, hafa Molduxar ákveðið
að bjóða liðum að skrá sig í
smá leik og njóta um leið
forgangs á þátttöku í Jólamóti
Molduxa 2021.
Mun nafn liðsins fara í pott
(á Fésbókarsíðu klúbbsins) og
kl. 18 á annan í jólum verður
eitt lið dregið úr pottinum og
hlýtur flatbökuveislu fyrir tíu
manns frá Hard Wok Cafe, og
gullmedalíur að launum sem
væntanlega verða safngripir
framtíðarinnar. Fyrir hverja
skráningu munu Molduxar
jafna hverja greiðslu úr eigin
sjóði allt upp í 300.000 kr. Gjald
á hvert lið er 20.000 kr.
Einstaklingum er einnig
velkomið að skrá sig og fara
þeir í annan pott sem dregið er
úr og fær viðkomandi kvöld-
verð fyrir tvo eftir kenjum
kokksins á Gránu Bistro og
gullmedalíu um hálsinn.
Skráning á hvern einstakling er
2000 kr. og jafna Molduxar
upphæðina með sömu skil-
yrðum og að ofan greinir. ...
Nánari upplýsingar má
finna á Fésbókarsíðu Molduxa.“
Þetta er auðvitað frábær
hugmynd hjá Molduxum og nú
geta jafnvel þeir tekið þátt sem
ekki vilja taka þátt. /ÓAB
Umf. Tindastóll
Badmintondeild stofnuð
Nú nýverið bættist í íþrótta-
flóruna á Sauðárkróki
þegar Helgi Jóhannesson
landsliðsþjálfari í badminton
stofnaði badmintondeild
innan raða Ungmenna-
félagsins Tindastóls.
Í frétt á vef Badminton-
sambands Íslands segir að
aðdragandann megi rekja til
þess að Helgi, sem er aðal-
þjálfari Tindastóls og lands-
liðsþjálfari auk þess að hafa
leikið yfir 50 landsleiki, flutt-
ist norður með fjölskyldu sína
en dætur hans höfðu þá æft
badminton í nokkur ár.
Áhuginn var mikill og
dapurleg tilhugsun að þurfa
að leggja spaðann á hilluna
svo leitað var samstarfs við
Sveitarfélagið Skagafjörð sem
úthlutaði Helga dýrmætum
tíma í þéttsetnu íþróttahúsinu.
Áhuginn var mikill hjá ungum
Skagfirðingum enda bad-
minton skemmtileg íþrótt, og
nú æfa um 14 krakkar bad-
minton tvisvar í viku.
„Það er frábært að geta
stuðlað með beinum hætti að
útbreiðslu badmintoníþrótt-
arinnar með því að stofna
deild hér á Sauðárkróki.“ segir
Helgi.
Sjá nánar á Feykir.is. /ÓAB
Helgi Jóhannesson, þjkálfari.
MYND AF NETINU