Morgunblaðið - 14.08.2021, Qupperneq 11
11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
ÚTSALA
VERÐ-
HRUN
60-80%
afsláttur
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
FISLÉTTIR
DÚNJAKKAR
ÚTSÖLU
VÖRUR
VERÐHRUN
60%-70%
afsláttur
Opið
laugard.
11-15
Fasteignir
Ekkert lát virðist vera á eldgosinu
sem hófst í Geldingadölum 19. mars
síðastliðinn. Gosóróinn er sá sami og
hefur verið undanfarna daga en virðist
detta niður í nokkra klukkutíma yfir
daginn áður en hann tekur sig svo upp
að nýju að kvöldi til, samkvæmt upp-
lýsingum Lovísu Mjallar Guðmunds-
dóttur, náttúruvársérfræðings hjá
Veðurstofu Íslands.
„Gosið tekur sér lúr á daginn og er
virkt á nóttunni. Óróinn fór upp um
sex leytið í gærmorgun og þá sást
krauma í gígnum, í fyrradag var það í
kringum þrjú um nóttina og þar á und-
an í kringum níu að kvöldi til. Svo er
gosóróinn að detta niður aftur í kring-
um hádegi. Þetta eru nokkrir klukku-
tímar á milli,“ segir Lovísa í samtali
við Morgunblaðið. „Þetta eru bara
þessar reglulegu sveiflur sem við höf-
um verið að sjá.“
Nær ómögulegt er að spá fyrir um
þróun eldgossins segir Páll Einarsson
jarðeðlisfræðingur inntur eftir því.
„Ef einhver reynir að segja eitthvað
um það þá er það hrein ágiskun í bland
við eitthvert bull.“
Þó lítið sé vitað um þróun eldgoss-
ins í framtíðinni segir Páll hægt að
draga mikinn lærdóm af því, sér-
staklega fyrir jarðvísindamenn.
„Þetta er mjög merkilegt gos að því
leytinu til að það er mjög ólíkt öðrum
gosum sem við höfum séð á fleka-
skilum eins og til dæmis Kröflugosin,
gosin í Grímsvötnum og jafnvel Heklu.
Þau hafa yfirleitt byrjað með miklum
látum og dáið svo út hægt og rólega,“
segir hann. „Gosið í Geldingadölum
byrjaði hins vegar svo hljóðlega að það
tók varla neinn eftir því. Svo hefur það
verið með stöðuga hraunframleiðslu
allan tímann sem er óvenjuleg hegðun
fyrir gos á Íslandi.“ Eitt er þó víst um
eldgosið í Geldingadölum og það er að
það mun halda áfram að laða að fólk,
hvaðanæva að úr heiminum, sem vill
berja það augum á meðan það lætur
enn á sér kræla. unnurfreyja@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hraunflæði Hraun flæðir nú niður í Meradali.
Myndataka Eldgosið er eflaust eitt mest myndaða gos hér á landi.
Gosið fær sér
lúr á daginn
- Margt hægt að læra af eldgosinu
Eldgos Ekkert lát virðist vera á
eldgosinu í Geldingadölum sem
hófst 19. mars síðastliðinn.