Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 12

Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 Eftir Líney Sigurðardóttur Þórshöfn Á býlinu Holti í Þistil- firði er Grásteinn guest- house en þar búa hjónin Hildur Stefánsdóttir og Sigurður Þór Guðmundsson ásamt börnum sínum. Þau hafa síðustu árin byggt þar markvisst upp ferðaþjónustu, jafnframt því að vera með stórt sauðfjárbú. „Sum- arið hefur verið einstaklega gott að öllu leyti, nóg að gera í ferða- þjónustunni og ekki spillir veðrið, sem hefur leikið við okkur í sum- ar,“ sagði húsfrúin Hildur. Meirihluti ferðafólksins sem komið hefur í sumar í Holti eru Íslendingar. Hildur og Sigurður eru nú með gistirými fyrir sautján manns en auk þess er eldhús og veislusalur fyrir allt að 30 manns. „Við höfum verið að byggja upp hjá okkur smám saman og bæta við gistirýmum. Hlaða, súr- heysturn og fjós hafa nú fengið nýtt hlutverk eftir miklar breyt- ingar. Við reynum að skapa okkar eigin stíl með því að blanda gömlu og nýju. Í hverju herbergi höfum við gamla hluti eða húsgögn frá búskapartíð forfeðranna,“ sagði Hildur hress í bragði. „Rúmin eru þó ný og fín enda erum við að selja svefn, frið og ró.“ Flest er heimaunnið Herbergin bera nöfn sem tengjast fyrri tíma, svo sem Hlað- an, Loftið, Fjósið og Skemman og barinn er í súrheysturninum. Á Grásteini eru einnig tvö smáhýsi, Hornahóll og Litla-Brekka sem eru vel útbúin með eldhúsi, stofu- horni og baðherbergi en rými er fyrir þrjá í hvoru húsi. „Við hjónin vinnum út frá þeirri hugmyndafræði að hafa sem flest heimagert og heimaunnið og reynum það eins og tími vinnst til,“ sagði Hildur. Morgunverð- urinn ber þessa vitni, heimagerðar sultur og brauð en grænmeti og ber ræktar Hildur í gróðurhúsinu við bæinn. „Ég næ þó ekki að rækta nóg fyrir þetta allt en það er gaman að geta boðið upp á nýtínd hindber og kirsuber með morgunmatnum, við veljum líka ávallt íslenskar vörur frekar en innfluttar, svo sem sápur í baðherbergin, rúmföt og fleira.“ Sér baðherbergi fylgir öllum gistirýmum á Grásteini og bera herbergin vitni um frumleika og handlagni hjónanna Hildar og Sig- urðar, en hann er menntaður smiður, auk búfræðinámsins. „Við reynum að gera sem flest sjálf og nýta það efni sem er næst okkur, Siggi hefur t.d. smíð- að rennihurðir fyrir baðherbergin og flest sem mér dettur í hug að láta búa til, hann getur nefnilega allt,“ sagði Hildur sposk. Fá alltaf nýjar hugmyndir Hún tók þá ákvörðun í vetur að helga sig búinu heima ásamt ferðaþjónustunni og hætta annarri vinnu. Hildur er menntaður lands- lagsarkitekt og kennari og hefur síðustu ár kennt við Grunnskólann á Þórshöfn. „Ferðaþjónustan hér hefur gengið vel og við erum alsæl með frábærar umsagnir á bók- unarsíðum. Fólkið hér heima í byggðarlaginu hefur líka tekið okkur vel og sótt þá viðburði sem við höfum boðið upp á hér, til dæmis morgunverðarhlaðborð, jólahlaðborð og svo veislusalurinn okkar sem hefur verið nýttur í ýmis einkasamkvæmi.“ Hildur segir enn fremur að þau hjónin séu með ýmsar hug- myndir í kollinum en næsta sumar hyggjast þau bjóða upp á göngu- ferðir inn í heiði. Í sumar var slík ganga einmitt prufukeyrð með góðum hópi, þar sem gist var tvær nætur í heiðadýrðinni í blíðskapar- veðri. Hildur og Sigurður sjá í sam- einingu um allt sem snýr að búinu og ferðaþjónustunni. „Hann er lið- tækur við að skipta um rúmföt og baka brauð meðan ég sé um bók- anir og reikningshald eða bregð mér í sjósundið,“ segir Hildur hlæjandi. Fallegt er við ströndina í landareign hjónanna og gaman að fara þar í sjósund, í svonefndri Dalsfjöru en þar fór til dæmis kvennahópur í Jónsmessusund sumarsins. Þessi samhentu hjón, Hildur og Sigurður, hafa á jörðinni sinni byggt upp fallega og notalega ferðaþjónustu í hjarta Þistilfjarðar og er almenn ánægja gesta með dvölina og þá hlýju sem fylgir gestgjöfunum á Grásteini. Bjóða væran svefn á skemmuloftinu Sveitasæla. Súrheysturni var breytt í bar. Fjós og hlaða eru nú hlýleg her- bergi ferðafólks. Listfengi og ljúft líf á Grásteini í Holti í Þistilfirði. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Velkomin Gestgjafinn á Grásteini, Hildur Stefánsdóttir, stendur vaktina. Rúmgott Veislusalurinn á neðri hæð er bjartur og hlýlegur. Nýtni Gamli smíðabekkurinn sómir sér vel í anddyrinu. Gisting Á lofti skemmunnar er nú herbergi með lokrekkjum. Þistilfjörður Íslendingar hafa verið mikið á ferðinni í sumar á norðaustur- horni landsins og býðst þá góð aðstaða, og í raun og veru sæludvöl, á Holti. ÚRVAL ÚTILJÓSA www.rafkaup.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.