Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 18

Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum „Það var ánægjulegt að sjá hve margir í Golfklúbbnum Teigi á Spáni og gestir tóku þátt í mótinu sem við slógum upp hér í Eyjum,“ segir Eyjamaðurinn Bergur Sigmunds- son, fyrrum formaður Golfklúbbs Vestmannaeyja og núverandi for- maður Teigs á Costa Blanca á Spáni. „Fyrir mig var gaman að kynna þennan frábæra völl hér í Eyjum. Ekki síst vegna þess að ég á minn þátt í með öflugum hópi að stækka völlinn úr 9 holum í 18. Útkoman er einstakur golfvöllur og voru þátttak- endur ánægðir. Alls um 70 manns sem áttu frábæran dag í Eyjum.“ Torfæra Atlantshafsins Bergur segir golfvöllinn í Eyjum krefjandi en ekki ósanngjarnan. Hann sé með stærstu hliðarvatns- torfæru í heimi, sjálft Atlantshafið. „Í miðjum eldgíg með öllum sínum sérkennum sem gera völlinn skemmtilegan sem fólkið kunni að meta. Allt kostaði þetta undirbúning en áhuginn var strax mikill enda eyða margir Teigsfélagar sumrinu á Íslandi. Völlurinn bókaður og hótel- gisting tryggð. Og hingað mætti all- ur þessi glæsilegi hópur og naut dagsins sem byrjaði á móti og lauk með veislu og verðlaunaafhendingu í skála GV,“ segir Bergur. Verðlaun á mótinu voru myndar- leg en öflun þeirra var með öðrum hætti en Bergur segist eiga að venj- ast. „Hringt var í mig og fleiri innan stjórnar og sagt: Mig langar að gefa og styðja ykkur. Eiga þeir og aðrir sem veittu styrki heiður og mikið þakklæti skilið fyrir rausnarlegar gjafir,“ sagði Bergur og þakkaði GV fyrir frábært samstarf og öllum sem komu að framkvæmd mótsins. Formaður í Eyjum og á Spáni Bergur tók við formennsku Teigs fyrir þremur árum og eru félagar í dag 100 og 90 á biðlista. Hann segir starfið um margt ólíkt því að stýra GV því golfvellir á Spáni eru ekki í eigu klúbbanna. „Ég er að fjölga leikdögum í þrjá úr tveimur. Klúbburinn gæti þá al- veg ráðið við 150 félaga því aldrei eru allir saman komnir á sama tíma. Einn dagur í hverri viku er keppn- isdagur með verðlaunum og útreikn- ingum á skori,“ segir hann. Framkvæmdir og peningamál voru stærstu málin í tíð Bergs sem formanns GV en á Spáni er aðalvinna formanns að semja við stóru vellina um rástímafjölda og verð með að minnsta kosti árs fyrirvara. Ásamt því að greiða úr vandamálum sem upp koma. „Til að komast inn í bankakerfið og hafa aðgang að ESB stofnaði klúbburinn fyrirtækið Teig- ur Amigos sem hefur á dagskrá sinni íþróttaferðir, matarferðir, skipulag íþróttaviðburða og hvers kyns ferða- lög. Getum við hugsanlega sótt um styrki til ESB síðar.“ Bergur segir kosta tíma og orku að stýra golfklúbbum, það eigi bæði við Ísland og Spán. „Að taka á móti um 70 spilurum eins og var jafnan á okkar árlega Sumarmóti til Eyja var einstök til- finning. Að geta boðið upp á falleg- asta völl landsins og alla þá mat- armenningu sem hér er ásamt heimsfrægri þjónustulund og gest- risni Eyjanna hlýjaði Eyjahjartanu.“ Landsmótið 1996 ber hæst í minningunni Landsmótið 1996 á nýjum 18 holu velli í Vestmannaeyjum segir Bergur að beri hæst í starfi hans hjá GV. „Keppnin sjálf og öll umgjörðin, mat- arveisla um borð í Herjólfi við Surts- ey og verðlaunaafhendingin á bíla- dekkinu. Síðast en ekki síst verðlaunagripirnir, uppstoppaðir lundar á hraungrjóti með áföstum golfbolta sem eru í dag safngripir. Forseti GSÍ sagði í ræðu sinni eftir mótið að Vestmannaeyingar væru búnir að eyðileggja landsmótið því þetta væri ekki hægt að toppa,“ sagði Bergur að endingu. Golfklúbburinn Teigur er stofn- aður í byrjun febrúar 2011 af Íslend- ingum sem dvöldu á Costa Blanca ströndinni. Fjöldi annarra Íslend- inga dvelur hluta vetrar á Spáni og finnst fátt ánægjulegra en að spila golf á glæsilegum völlum í veðurblíð- unni. Golf á falleg- asta velllinum - Teigsfélagar frá Spáni heimsóttu Eyjar - Íslendingar dveljast ytra Golfarar Myndarlegur hópur Teigsfélaga á heimavelli klúbbsins ytra sem heitir því virðulega nafni, Vista Bella. Gleði Símon Aðalsteinsson, einn stofnenda Teigs, umvafinn kátum konum. Ljósmyndir/Jónína Jónsdóttir Verðlaunahafar Sigursælir keppendur ásamt Bergi formanni að loknu sumarmótinu, á fallegum degi úti í Eyjum. PORSCHE NOTAÐIR BÍLAR Skoðaðu úrvalið á benni.is Krókhálsi 9 Sími: 590 2000 Virka daga 9 -18 Laugardaga 12 - 16 Upplifðu sanna ökugleði... TMD69 Porsche Panamera 4 E-Hybrid DAA16 Porsche 911 Carrera OGR18 Porsche Cayenne S E-Hybrid THP39 Porsche Cayenne S E-Hybrid Hér er dásamleg bifreið á ferð, allt í senn sportlegur ogelegant! heil-leðraður, næs! Sportpústkerfimeð svörtum stútum,hiti í fram- og aftursætum sem og stýri, panorama glerþak,14 stillinga þæginda- sportsæti svo eitthvað sé nefnt. Geðveikur bíll Verð: 12.990.000 kr. Nýskráður 20.09.2017 | Ekinn 25.000 km. Einstakt tækifæri. Helsti útbúnaður: 19" Carrera S felgur, Sport Chrono pakki, sóllúga, BOSE hljómkerfi, Bi-Xenon aðalljós og að sjálfsögðu, beinskiptur. Glæsilegur og vel hirtur bíll. Verð: 8.490.000 kr. Nýskráður 01.01.2004 | Ekinn 85.000 km. Ljómandi fallegur Cayenne E-Hybrid. Helsti útbúnaður: stillanleg loftpúðafjöðrun, rafdrifinn dráttarkrókur, hiti í framsætum og stýri, litað gler og hugguleg viðarinnrétting til að toppa þetta. Verð: 7490.000 kr. Nýskráður 20.07.2016 | Ekinn 79.000 km. Lítið ekinn og flottur Cayenne E-Hybrid. Helsti útbúnaður: stillanleg loftpúðafjöðrun, dráttarkrókur rafmagns, hiti í framsætum, lyklalaust aðgengi, skyggðar rúður, fjarlægðarskynjarar og BOSE hljómkerfi svo eitthvað sé nefnt. Verð: 7.490.000 kr. Nýskráður 12.07.2016 | Ekinn 57.000 km.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.