Morgunblaðið - 14.08.2021, Síða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Undirbúa rýmingu sendiráða
- Talibanar 50 kílómetrum frá Kabúl - Bandaríkin og Bretland senda herlið til höfuðborgarinnar til að
aðstoða við brottflutning - Vestræn ríki loka sendiráðum sínum eða fækka mjög í starfsliði þeirra
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Leiftursókn talibana í Afganistan
hélt áfram í gær og hertóku þeir
meðal annars borgina Pul-e-Alam,
höfuðborg Logar-héraðs, en hún
er einungis í um 50 kílómetra fjar-
lægð frá höfuðborginni Kabúl.
Bandaríkjamenn og Bretar ákváðu
í fyrrakvöld að senda herlið til
borgarinnar til þess að aðstoða
óbreytta ríkisborgara og sendi-
ráðsstarfsmenn sína við að flýja
hana, og hafa fleiri vestræn ríki
ákveðið að fækka í sendiráðum
sínum eða loka þeim tímabundið.
Lashkar Gah, höfuðborg Helm-
and-héraðs, féll í gær, en talibanar
höfðu setið um borgina frá því í
maí. Með falli Lashkar Gah og
Kandahar, sem féll í fyrrakvöld,
má segja að nánast allur suður-
hluti Afganistan sé á valdi talib-
ana, en uppreisn þeirra hefur notið
mests stuðnings þar.
Stjórnvöld í Kabúl ráða nú í
raun einungis yfir þremur borg-
um, Kabúl, Jalalabad og Mazar-i-
Sharif, og er sú síðasttalda nú um-
kringd. Þá var stríðsherrann
Ismaíl Khan, sem kallaður var
„ljónið frá Herat“ fyrir baráttu
sína gegn þeim á 10. áratugnum,
tekinn höndum, en sleppt gegn því
að liðsmenn hans gengu til liðs við
talibana.
Hin mikla velgengni talibana í
átta daga leiftursókn sinni hefur
komið stjórnvöldum á Vesturlönd-
um mjög á óvart. Ríki Atlantshafs-
bandalagsins funduðu í gær um
ástandið og sagði Jens Stolten-
berg, framkvæmdastjóri banda-
lagsins, að markmið þess væru að
styðja við ríkisstjórn landsins og
öryggissveitir þess að svo miklu
leyti sem mögulegt væri. Því hygð-
ist bandalagið halda borgaralegu
starfsliði sínu í Kabúl áfram.
Þá sagði í sameiginlegri yfirlýs-
ingu fundarins að bandalagið
styddi pólitíska lausn á átökunum,
og að yfirráð talibana yfir Afgan-
istan yrðu ekki viðurkennd ef þau
væru tekin með valdi. Höfðu
Bandaríkin, Evrópusambandið,
Pakistan og Kína áður sent frá sér
sameiginlega yfirlýsingu um slíkt
hið sama.
Sendiráðin rifa seglin
Nokkur vestræn ríki tilkynntu
hins vegar í fyrrakvöld og í gær að
þau hygðust annaðhvort loka eða
fækka í starfsliði sendiráða sinna.
Bandaríkjamenn greindu frá því í
fyrrakvöld að þeir myndu senda
um 6.000 hermenn til Kabúl til að
flytja á brott bandaríska ríkis-
borgara, sem og Afgani sem veitt
hafa hernámsliðinu aðstoð.
Þá munu Bretar senda 300 fall-
hlífarliðsmenn sína til þess að
færa breska þegna heim, og
fundaði neyðarstjórn bresku ríkis-
stjórnarinnar, COPRA, um
ástandið í gær. Hvorki bresku né
bandarísku hermönnunum er hins
vegar ætlað að berjast við talib-
ana.
Danir og Norðmenn tilkynntu í
gær að þeir hygðust loka sendi-
ráðum sínum í Kabúl tímabundið
og Þjóðverjar og Finnar sögðu að
þeir hygðust fækka mjög í starfs-
liði sendiráða sinna. Þá hyggjast
Finnar bjóða um 130 Afgönum
sem starfað hafa fyrir sendiráðið
hæli í Finnlandi.
AFP
Afganistan Vígamenn talibana sjást hér á götum Kandahar.
Grikkir telja sig
hafa náð yfir-
höndinni í barátt-
unni við gróður-
eldana miklu, sem
skekið hafa landið
síðustu daga.
Kaldara hitastig
og rigning hafa að-
stoðað slökkviliðs-
menn og sjálfboðaliða við að halda
eldunum í skefjum, en þeir hafa nú
þegar eyðilagt meira en 100.000
hektara gróðurlendis.
Engu að síður vöruðu stjórnvöld
við því að fagnað yrði of snemma,
þar sem veðurspá helgarinnar gerir
ráð fyrir miklum vindum, sem gætu
hjálpað eldunum að breiða úr sér.
Annars staðar við Miðjarðarhaf
glímdu slökkviliðsmenn áfram við
hina miklu elda, sem hitabylgjan þar
hefur framkallað. Slökkviliðsmenn á
Sikiley og Kalabríuhéraði á Ítalíu
sinntu þannig nokkur hundruð út-
köllum í gær, og bjarga þurfti um 30
manns frá þjóðgarði eftir að eldur
kviknaði þar um nóttina.
Hafa náð
tökum á
eldunum
Miklir eldar hafa
verið á Grikklandi.
- „Erfiðir dagar“
sagðir fram undan
Pandahúnarnir Fleur de Coton og Petite
Neige, sem á íslensku gætu heitið Bómullar-
hnoðri og Snævar litli, sjást hér í hitakassa í
Beauval-dýragarðinum í Saint-Aignan-sur-Cher
í Frakklandi í gær. Þeir fæddust 2. ágúst síð-
astliðinn og heilsast vel, en móðir þeirra er
risapandan Huan Huan, sem dýragarðurinn er
með í láni frá Kína.
Húnarnir eru þriðja got Huan Huan og karl-
pöndunnar Yuan Zi, og þykir það gott í ljósi
þess hve erfitt er að fá pöndur í dýragörðum
til þess að fjölga sér.
Pandahúnarnir sofa værum svefni
AFP
Breska lögreglan sagði í gær að hún
væri að rannsaka orsakir skotárásar
í Plymouth í fyrrakvöld, þar sem
fimm manns voru skotnir til bana.
Árásarmaðurinn, hinn 22 ára gamli
Jake Davison, framdi sjálfsvíg að
ódæði sínu loknu.
Meðal fórnarlambanna var
þriggja ára stúlka og faðir hennar,
en þetta er fyrsta fjöldaskotárásin í
Bretlandi í 11 ár. Samkvæmt lög-
reglunni var enn ekki vitað um
ástæðu þess að Davison ákvað að
láta til skarar skríða, en sagt var að
ekki væri um hryðjuverk að ræða.
Davison var með skotvopnaleyfi í
fullu gildi og á samfélagsmiðlasíðum
hans mátti lesa skilaboð um hatur
hans á kvenfólki.
Fyrsta fórnarlamb Davison var
móðir hans, Maxine, sem var 51 árs
gömul, en hann skaut hana til bana á
heimili hennar, áður en hann hélt út
á götu og skaut fjórar manneskjur til
viðbótar. Þar á meðal var hin þriggja
ára gamla Sophie Martyn og Lee,
faðir hennar. Tveir særðust í árás-
inni, en ekki lífshættulega.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, sendi aðstandendum
samúðarkveðjur og lýsti yfir hryll-
ingi vegna árásarinnar, sem og
þeirri kynjahyggju sem Davison
hefði sýnt á samfélagsmiðlum. Sagði
Johnson ljóst að rannsaka þyrfti það
vandlega.
Priti Patel innanríkisráðherra
sagði að rannsakað yrði hvers vegna
Davison var metinn hæfur til að eiga
skotvopn, auk þess sem til stæði að
leggja fram frumvarp til að taka á
öfgum á netinu.
Skotárásir eru mjög sjaldgæfar í
Bretlandi, en landið er með eina
ströngustu vopnalöggjöf á Vestur-
löndum. Nær allar skammbyssur
voru bannaðar eftir skotárásina í
Dunblane árið 1996, en þá létust 16
nemendur og einn kennari.
Barn á meðal hinna látnu
- Breska þjóðin slegin óhug vegna fjöldamorðs í Plymouth
AFP
Sorg Syrgjendur lögðu blóm við
götuna þar sem árásin átti sér stað.