Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 25

Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 Gluggaþvottur Hinn litríki glerhjúpur Hörpu var þrifinn í gær. Eggert Ríkisstjórnin sem nú situr er fyrsta þriggja flokka ríkisstjórnin á Íslandi sem situr heilt kjörtímabil og sú fyrsta til að klára kjörtímabil sitt frá árinu 2013. Stjórnin var mynduð þvert á hið pólitíska lit- róf með skýra sýn á uppbyggingu og um- bætur á fjölmörgum sviðum almannaþjónustunnar. Þar má nefna þessi tíu stóru mál: 1) nýtt og réttlátara skattkerfi sem tryggir aukinn jöfnuð og eykur ráð- stöfunartekjur hinna tekjulægstu, 2) vinnuvikan var stytt til að auka lífsgæði vinnandi fólks, 3) kostnaður sjúklinga var lækk- aður kerfisbundið til að tryggja að- gang allra að heilbrigðisþjónustu, 4) lengra fæðingarorlof sem eykur jafnrétti kynjanna og samveru barna og foreldra, 5) félagslega húsnæðiskerfið eflt sem tryggir fleirum þak yfir höfuðið, 6) fyrsta raunhæfa aðgerðaáætl- unin í loftslagsmálum leit dagsins ljós, 7) framlög til baráttunnar gegn loftslagsvánni voru áttfölduð, 8) mikilvægar umbætur í mann- réttindamálum gerðar með lögum um kynrænt sjálfræði og réttarstöðu trans og intersex-barna og nútíma- legri löggjöf um þungunarrof, 9) forvarnaáætlun gegn kyn- bundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni sem er risastórt skref til að útrýma þeirri meinsemd sem kynbundið og kynferð- islegt ofbeldi er í sam- félaginu, 10) átaksverkefni í uppbyggingu innviða sem sést í stórfelldum framkvæmdum í sam- göngumálum og orku- málum um land allt sem margar hverjar voru löngu tímabærar. Þessi mál eru næg ástæða fyrir stuðningsfólk stjórnar- flokkanna til að fagna líðandi kjör- tímabili en margt fleira er þó ótalið. Samstarf stjórnarflokkanna hefur gengið vel og orðið þéttara eftir því sem meira blés á móti. Þegar heims- faraldur skellur á er ekki annað í boði en að allir leggi sig fram um að finna bestu lausnirnar fyrir samfélagið allt. Það er það sem þessi ríkisstjórn hef- ur gert undanfarna 18 mánuði. Hún hefur forgangsraðað lífi og heilsu fólksins í landinu og ráðist í mark- vissar efnahagslegar og félagslegar aðgerðir til að lágmarka samfélags- leg áhrif. Það hefur borið góðan ár- angur þannig að faraldurinn hefur óvíða haft vægari áhrif á líf flestra en hér, bæði þegar litið er til árangurs af sóttvarnaráðstöfunum og þess að tekist hefur að tryggja kaupmátt launafólks og efnahagslegan stöðug- leika á þessum erfiðu tímum. Það skiptir nefnilega máli að hafa félags- lega sýn við völd þegar áföll dynja á. Í kosningunum fram undan verður þó ekki aðeins kosið um góðan árang- ur fortíðarinnar heldur einnig um Ís- land framtíðarinnar og hvernig tryggja megi samfélagslegar fram- farir, velsæld og jöfnuð fyrir fólkið í landinu, árangur í loftslagsmálum og blómlegt efnahags- og atvinnulíf. Efnahagslíf framtíðar þarf að vera undirstaða jöfnuðar. Við eigum að skapa fjölbreytt störf og græn störf. Við eigum að styðja áfram við ný- sköpun og lítil og meðalstór fyrir- tæki. Fjölbreyttur vinnumarkaður er um leið öruggur vinnumarkaður því áföll í einstökum atvinnugreinum hafa þá hlutfallslega minni áhrif. Við höfum stigið stór skref á þessu kjör- tímabili til að styðja betur við grunn- rannsóknir, nýsköpun og þekking- argeirann. Efling Rannsóknasjóðs og Tækniþróunarsjóðs, endurgreiðsla rannsókna- og þróunarkostnaðar og stofnun vísisjóða eru allt stórir áfangar á réttri braut sem gerir fleir- um kleift að þróa hugmyndir sínar og skapa úr þeim verðmæti. Við eigum að halda áfram á þeirri braut, efla sjóðina enn betur, styrkja stöðu há- skólanna í þessu umhverfi og gera tímabundin framlög vegna heimsfar- aldurs varanleg. Við eigum að tryggja matvælaöryggi, styðja betur við innlenda matvælaframleiðslu, auka framlög í matvælasjóði og setja fram tímasetta áætlun um eflingu líf- rænnar matvælaframleiðslu enda eigum við ómæld tækifæri í fram- úrskarandi íslenskum matvælum. Á þessu kjörtímabili höfum við unnið markvisst samkvæmt því leið- arljósi að hlutverk stjórnmálanna sé að auka velsæld og hamingju fólks. Í því skyni þróuðum við nýja velsæld- armælikvarða í breiðu samráði og settum í fyrsta sinn fram sérstakar velsældaráherslur í fjármálaáætlun. Ástæðan er einföld. Velsæld fæst ekki eingöngu með efnahagslegum árangri. Hún snýst líka um gott sam- félag og heilnæmt umhverfi. Meðal annars þess vegna lagði núverandi ríkisstjórn áherslu á að stytta vinnu- viku, lengja fæðingarorlof, tryggja sjálfsákvörðunarrétt kvenna með nýrri þungunarrofslöggjöf, efla geð- heilbrigðisþjónustu, vinna gegn kyn- bundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni, draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda, friðlýsa náttúruperlur og að tryggja afkomu almennings – allt snýst þetta um raunveruleg lífs- gæði og hamingju fólks. Velsældarhugmyndafræðin bygg- ist á rótgrónum hugmyndum um jöfnuð og sjálfbærni og á næsta kjör- tímabili eigum við mikil tækifæri til að gera enn betur og auka þannig raunveruleg lífsgæði fólksins í land- inu. Stór verkefni eru fram undan, einkum þegar kemur að tryggu hús- næði fyrir okkur öll og mikilvægur þáttur í því verður að stíga fleiri skref til að efla félagslega húsnæðis- kerfið. Þannig tryggjum við líka stöð- ugleika á hinum almenna húsnæðis- markaði. Gera þarf breytingar á framfærslu öryrkja til að tryggja betur stöðu hinna tekjulægstu í þeim hópi. Halda þarf áfram að styrkja barnabótakerfið en þar höfum við á kjörtímabilinu hækkað verulega barnabætur tekjulægri hópa. Jöfn- uður og jafnrétti eru lykillinn að vel- sæld og að tryggja öllum jöfn tæki- færi. Loftslagsváin verður stærsta við- fangsefnið fram undan en ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna sýnir að núver- andi markmið þjóða heims í loftslags- málum duga ekki til að ná mark- miðum Parísarsáttmálans. Núverandi ríkisstjórn hefur sett þessi mál á dagskrá með afgerandi hætti en við Íslendingar þurfum að gera enn betur í okkar áætlunum, bæði í markmiðum og aðgerðum. Við eigum sóknarfæri í orkuskiptum í þungaflutningum, sjávarútvegi og aðgerðum í landbúnaði og landnýt- ingu sem við þurfum að fullnýta. Við þurfum að flýta öllum okkar aðgerð- um, hvort sem þær varða samdrátt í losun eða kolefnisbindingu. Við þurf- um líka að tala hátt og skýrt á al- þjóðavettvangi um loftslagsvána því stórlosendur, hvort sem um er að ræða stórþjóðir eða stórfyrirtæki, þurfa að gera miklu betur. Við þurf- um að vera reiðubúin að taka á móti fleira fólki sem flýr afleiðingar lofts- lagsbreytinga. Og við þurfum að tryggja að græna umbreytingin verði réttlát og að markmið okkar um sam- drátt í losun fari saman við aukna velsæld fólksins í landinu. Ísland er sannarlega land tækifær- anna. Við höfum öll sem eitt staðið okkur frábærlega og komist saman í gegnum eitt mesta áfall lýðveldissög- unnar, heimsfaraldur og afleiðingar hans. Það skiptir máli hvernig við byggjum upp til framtíðar og um það er kosið í haust. Eftir Katrínu Jakobsdóttur » Í kosningunum fram undan verður þó ekki aðeins kosið um góðan árangur fortíð- arinnar heldur einnig um Ísland framtíð- arinnar Katrín Jakobsdóttir Höfundur er forsætisráðherra. Saman til framtíðar Baráttan vegna kom- andi kosninga er rétt að hefjast og ekki fyllilega komið fram hvaða mál- efni það verða, sem mesta athygli munu fá af hálfu flokkanna. Sumt er þó farið að skýrast, meðal annars það að allnokkrir flokk- ar og frambjóðendur á vinstri vængnum virðast telja það vænlegt til árangurs að stað- setja sig sem lengst til vinstri og kenna sig jafnvel við ómengaðan sósíalisma. Málflutningur frá miðri síðustu öld Að hluta til birtist þessi vinstri sveifla í stefnumálum viðkomandi flokka, en þó enn frekar í upphróp- unum og orðavali, sem oft á tíðum ber meiri keim af stjórnmálaumræðu frá miðri síðustu öld heldur en þeim áherslum sem ríkjandi hafa verið í stjórnmálaumræðu á Vesturlöndum síðustu 30 árin eða svo. Málflutning- urinn snýst um stéttabaráttu, öreiga og auðkýfinga, ofurríka fámenna yf- irstétt sem mergsýgur snauða alþýð- una, andúð á atvinnurekstri í einka- eigu og ofurtrú á ríkislausnum og opinberum rekstri. Birtingarmynd- irnar eru mismunandi en undirtónn- inn sá sami; til að bjarga almenningi úr heljargreipum kapítalismans þarf að umbreyta samfélaginu í anda sósíalískrar hugmyndafræði. Virðist þá litlu skipta, að allar tilraunir til að byggja þjóðskipulag á þeim grunni hafa endað með skelfingu. Flokkurinn, sem fremstur fer í þessum málflutningi, kennir sig feimn- islaust við sósíalisma en fleiri leita á sömu mið. Sérstaklega hefur hraðferð Samfylkingarinnar til vinstri vakið at- hygli en augljóst er að sá flokkur lítur á Sósíalistaflokkinn sem harðvítugan samkeppnisaðila. Vinstri græn vilja svo auðvitað minna á sig í þessu sam- bandi og mun það sjálfsagt færast í aukana eftir því sem nær dregur kosningum. Bilið milli Pírata og ann- arra flokka á vinstri vængnum hefur að mörgu leyti verið að styttast jafnt og þétt á undanförnum árum en forvitnilegt verður að sjá hvort þeir blanda sér nú af fullum krafti í keppnina um það hver sé mesti sósíalistinn. Að sumu leyti er allt í lagi fyrir okkur, sem nálgumst stjórn- málin úr annarri átt, að íslenskir vinstri menn gefi sig alla í þessa Ís- landsmeistarakeppni í sósíalisma. Það er gott fyrir alla að skerpa á hug- myndafræðinni og rifja upp að stjórn- mál snúast um mismunandi hugsjónir og val milli ólíkra sjónarmiða og raun- verulegra valkosta en ekki bara um tæknilegar útfærslur eða vinsælda- keppni einstaklinga. Það að uppvakn- ingar sósíalismans eru komnir á stjá gefur okkur, sem teljum okkur hægra megin á hinu pólitíska litrófi, tilefni til að skerpa á okkar eigin málflutningi og rifja upp á hvaða hugmynda- fræðilega grundvelli við stöndum. Aukin skautun – allt eða ekkert Gallinn við vinstri sveiflu vinstri flokkanna er hins vegar einkum aukin harka í umræðunni og það sem stjórn- málafræðingar tala um sem skautun í stjórnmálum, sem felur í sér að bilið milli flokka eykst og getur haft þær af- leiðingar að sífellt erfiðara verði að ná sæmilegri samstöðu um málamiðlanir, sem alltaf eru nauðsynlegar í stjórn- málum, ekki síst í fjölflokkakerfi eins og við búum við. Stjórnmálaumræða, sem byggir á ófrávíkjanlegum skil- yrðum, úrslitakostum, kröfum um allt eða ekkert og útilokun málamiðlana er ekki gæfuleg þegar kemur að úrlausn raunverulegra viðfangsefna við stjórn landsins eða lagasetningu á Alþingi. Það er nefnilega eitt að hafa skýr stefnumál og hugsjónir og annað að vera svo ósveigjanlegur að engar málamiðlanir komi til greina. Menn mega ekki gleyma því að stjórnmál eru list hins mögulega og til þess að ná árangri getur verið nauðsynlegt að setja ágreining til hliðar, slá af ýtrustu kröfum og finna frekar það sem sam- einar heldur en það sem sundrar. Skökk mynd En það eru fleiri gallar, sem fylgja stóryrðakapphlaupi vinstri manna um þessar mundir. Þannig er það áhyggjuefni, að sú mynd sem dregin er upp af þjóðfélagi okkar er á margan hátt skökk og í litlum tengslum við raunveruleikann. Málflutningur sumra þeirra háværustu úr röðum vinstri manna er stundum á þá leið, að hér hafi á undanförnum árum verið við lýði óheft nýfrjálshyggja, hreinn kapí- talismi, grimmur niðurskurður í opin- berri þjónustu, vaxandi ójöfnuður og versnandi lífskjör alls almennings. Ekkert af þessu stenst skoðun. Hvort sem litið er til þróunar hér innanlands eða samanburðar við nágrannalöndin kemur skýrt í ljós að ekkert gefur til- efni til fullyrðinga af þessu tagi. Heild- arumsvif hins opinbera, ríkis og sveit- arfélaga, hafa fremur vaxið en minnkað á undanförnum árum. Ætti sú þróun reyndar að vera meira um- hugsunarefni fyrir okkur sem stönd- um hægra megin en þá sem tala fyrir sósíalisma. Þá er til þess að líta, að jöfnuður er meiri hér á landi en víðast hvar í helstu samanburðarlöndum, hvort sem litið er til tekna eða eigna. Lífs- kjör alls almennings hafa líka farið batnandi og kaupmáttur aukist jafnt og þétt. Tímabundnir erfiðleikar vegna Covid-19 virðast ekki breyta þessari heildarmynd. Samfélag okkar er svo sannarlega ekki fullkomið og margt má bæta, en sú mynd af stöðu mála, sem talsmenn sósíalisma úr ýmsum flokkum hafa haldið á lofti, er víðs fjarri raunveru- leikanum. Eftir Birgir Ármannsson » Samfélag okkar er ekki fullkomið en sú mynd, sem talsmenn sósíalisma úr ýmsum flokkum hafa haldið á lofti, er víðs fjarri raun- veruleikanum. Birgir Ármannsson Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Íslandsmeistara- mótið í sósíalisma?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.