Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 26

Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 Asparteigur 20, 250 Garði Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Nýtt 4ra herbergja raðhús á einni hæð, með sólpalli. Tilbúið til afhendingar við kaupsamning. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 43.400.000 95,3 m2 Íbúð sem uppfyllir skilyrði um hlutdeildarlán O rðið pabbabrandari er fremur nýtt í málinu; það virðist hafa breiðst út á allra síðustu árum. Með orðinu er átt við orðaleiki í aumari kant- inum, útúrsnúninga og ýmsa aðra meinta fyndni sem áður fyrr var helst kennd við fimmeyringa. Dæmi: „Hvers vegna dóu mamm- útarnir út? Af því að það voru ekki til neinir pabbútar.“ Sígilt dæmi um tegund- ina er þessi hérna: „Hefur þú heyrt um minkabúið sem minnkaði og minnkaði þar til það var búið?“ Karl Jónsson skrifaði skemmtilegan pistil í Feyki 2019 þar sem hann út- skýrði fyrirbærið. Hann hélt því auk þess fram að enginn væri „pabbi með pöbbum nema kunna skil á því sem bókmenntafræð- ingar kalla pabba- brandara“. Hugtakið pabba- brandari virðist vera beint þýtt úr ensku þar sem talað er um dad jokes eða daddy jokes, en um sama fyrirbæri er að ræða, sbr. þennan hér á ensku: „I’m afraid for the calendar; its days are numbered“ (Ég óttast að dagar almanaksins séu taldir). Löngu áður en farið var að nota hugtakið pabbabrandari, og þess í stað talað um fimm- aurabrandara, aulabrandara eða orðaleikjabrandara, var mér sagður þessi hér: „Einu sinni voru hjón sem áttu fjóra syni. Sá elsti var nefndur Einar, en yngri bræðurnir Tvennar, Þrennar og Fernar.“ Þegar og ef lesendur ná að jafna sig eftir hlátrasköllin geta þeir haldið áfram lestri og litið nánar á orðin einir, tvennir, þrennir, fernir, sem stundum nefnast fleirfaldstölur. Þannig háttar til að í íslensku er talsvert um nafnorð sem eru sérstök að því leyti að aðeins tíðkast að nota þau í málfræðilegri eintölu í vönduðu máli, svo sem skilningurinn, hveitið, kjötið, kjarkurinn, skýjafarið og gasmengunin, og svo eru mörg önnur nafnorð sem á hinn bóginn tíðkast á sama hátt aðeins í mál- fræðilegri fleirtölu, svo sem samtökin, svalirnar, buxurnar, gleraugun, skærin og hljómleikarnir. Sumt af þessu tagi er þó merkingarlega vel hægt og oft nauðsynlegt að telja. En í stað þess að telja með einn, tveir, þrír, fjórir er hefð fyrir því að grípa til fleirfaldstalnanna fyrrnefndu með þessum svonefndu tölubundnu nafnorðum: í tvennum skilningi; einir hljómleikar, í þrennum samtökum, fernar hjólbörur. Til að tjá fleirtölumerkingu eru fleirfaldstölurnar þó ekki ávallt notaðar á þennan hátt heldur eru stundum notuð sambönd með t.d. konar, sbr. tvenns konar skýjafar, þrenns konar mengun. Fleirfaldstölur eru líka hafðar til að telja pör, sbr. einir sokkar, tvennir skór. Stundum koma fleirfaldstölur fyrir án nafnorðs: tvennt fórst í flugslysinu; ég vil nefna þrennt; diskurinn brotnaði í fernt. Loks má minna á að sum („venjuleg“) nafnorð hafa svolítið aðra merkingu eða blæ í fleirtölu en í eintölu og það kallar stundum á að notaðar séu fleirfald- stölur, sbr. að hafa lifað tímana tvenna; tvennum sögum fer af því sem gerðist. Tvennum sögum fer af pabbabröndurum Tungutak Ari Páll Kristinsson ari.pall.kristinsson@arnastofnun.is Skæri Mörg nafnorð eins og t.d. skæri tíðkast aðeins að nota í mál- fræðilegri fleirtölu. E ftir blaðamannafund Sameinuðu þjóðanna sl. mánudag er ljóst að ráðstefna SÞ um loftslagsmál í Glasgow í nóvember mun snúast um þær upplýsingar sem þar komu fram. Og jafnljóst er að þingkosningarnar hér munu snúast að verulegu leyti um þau. Flokkar og fram- bjóðendur verða að hafa svör á reiðum höndum um sína afstöðu. Í því sambandi er athyglisvert að Sjálf- stæðisflokkurinn hefur skipað sérstakt loftslagsráð sem er til fyrirmyndar og mun auðvelda frambjóð- endum flokksins það sem fram undan er. Það er æskilegt að það loftslagsráð efni til opinna og al- mennra funda i Valhöll um þessi stóru mál. En auðvitað var rétt, sem fram kom hjá Auði Önnu Magnúsardóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, í fréttum RÚV sl. þriðjudag að stjórnmálamennirnir bera ábyrgð á því hversu hægt hefur gengið hér að grípa til mótaðgerða. Það er ekki lítið í húfi fyrir okkur. Athyglin hér hefur beinzt að skógareldum og stórflóðum úti í heimi. En hvað ef rétt reynist að breytingar á haf- straumum vegna loftslagsbreytinga svo og hitun sjávar hafi í för með sér breytingar á göngum fiskistofna og að þeir færi sig stöðugt norðar, jafnvel út úr lögsögu okkar? Ef slíkt gerðist væru forsendur að bresta fyrir lífi okkar í þessu landi. Það getur allt gerzt. Suður-Evrópa stendur í ljósum logum. Slíkir eru skógareldarnir í Grikklandi, Ítalíu og Katalóníu. Hvenær kemur að því að fólkið fer að flytja sig norðar, undan eldunum, jafnvel til Íslands. Hvað getum við tekið við mörgum? Þetta er alvörumál. Það þýðir ekki lengur að halda því fram að þetta sé plat. Við, eins og aðrar þjóðir, verðum að grípa til raunhæfra aðgerða strax, ekki einhvern tímann í framtíðinni. Og hvað er það sem við þurfum að gera? Í meg- indráttum þurfum við að draga úr neyzlu, hverju nafni sem nefnist. Hvort sem það snýst um að keyra út um allt land á benzíni eða dísilolíu eða fljúga oft á ári til útlanda. Og svo mætti lengi telja. Er skyn- samlegt að kaupa hlutabréf í flugfélögum eða olíufé- lögum? Gamla fólkið er orðið svo gamalt og á ekki mörg ár eftir en það er unga fólkið sem finnur fyrir breyting- unum. Sá sem er áttræður í dag mun ekki lifa þær að ráði en unga fólkið mun gera það. Þess vegna er líklegt að ungir kjósendur muni taka sérstaklega eft- ir þessum umræðum fyrir kosningarnar. Orkuskiptin í bílum eru komin vel af stað en þau þurfa líka að fara fram í skipum og flugvélum og þar eru þau styttra á veg komin. En þessar umræður geta vel haft þau áhrif að fólk dragi úr ferðalögum á milli landa og að minna verði úr hinni nýju atvinnu- grein okkar, ferðaþjónustu, en við höldum. Og það er ekki bara fólk sem ferðast heldur eru vörur fluttar á milli landa. Kannski á það eftir að gerast að framleiðsla flytjist inn í landið í stórum stíl, þótt hún verði dýrari. Það á við um matvörur ekki síður en annað. Aðgerðir vegna loftslagsbreyt- inga geta því haft mikil áhrif á uppbyggingu at- vinnulífsins. Það verða ekki bara breytingar á starfsemi olíufélaga og flugfélaga. Landbúnaður í margvíslegri mynd mun blómstra á ný. Það skiptir máli að við verðum sjálfum okkur nóg í ríkum mæli. Það þýðir að við leggjum áherzlu á kjötfram- leiðslu hér heima fyrir í stað innflutnings þess. Að við leggjum áherzlu á ræktun grænmetis og ávaxta hér heima í stað innflutnings. Breytingar af þessu tagi verða út um allan heim. Alþjóðleg stórfyrirtæki sem hafa blómstrað und- anfarna áratugi láta undan síga. Og þótt tækifærum fækki til þess að þau geti hagnýtt sér lág laun annars staðar næst sparnaðurinn fram með öðrum hætti. Hinn harði veruleiki er sá, að til þess að draga úr hlýnun jarð- ar verða þjóðir heims að draga úr neyzlu sinni og þá sérstaklega þær, sem stunda óhóflega neyzlu, og við erum í þeim hópi. Munu stjórnmálamenn okkar flytja þjóðinni þann boðskap fyrir kosningar? Það kemur í ljós en kæmi mörgum á óvart. Það er líklega ekki boðskapur sem höfðar til margra. En hann er eftir sem áður nauðsynlegur. Loftslagsmálin eru ekkert grín. Það reynir á stjórnmálamenn okkar en það reynir líka á kjósendur. Kannski meira en nokkru sinni fyrr. Þeir verða að sýna ábyrgð ekki síður en stjórn- málamennirnir. Skógareldar og stórflóð víða um heim hafa orðið til þess að fólk hefur hrokkið við og gerir sér betur grein fyrir alvöru málsins. Það samfélag, sem er fram undan, mun líkjast meira því sem var um miðja 20. öld en því sem við höfum kynnzt síðustu áratugi. Eftirsóknin eftir að komast til Miðjarð- arhafslandanna verður minni þegar búast má við óþolandi hitum þar, að ekki sé talað um elda. Og kannski verður það svo, að þorri fólks fagni einfaldara lífi, sem loftslagsvandinn knýr okkur til. Það er margt, sem er að breyta lífi okkar á stutt- um tíma, sem við ráðum ekki við. Fyrir utan lofts- lagsmálin er það heimsfaraldurinn, sem er erfiðari viðureignar en við kannski héldum. Og hann gerir kröfu til þess að við söfnumst ekki eins mikið sam- an og við höfum gert. Við sem teljumst til eldri kynslóða berum mikla ábyrgð á því hvernig komið er. Það er afkomenda okkar að leysa úr því. Loftslagsmál í brennidepli Jörðin ræður ekki við eldana og vatnið Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Carl Baudenbacher, forseti EFTA-dómstólsins 2003-2017, gerir harða hríð að eftirmanni sín- um, Páli Hreinssyni, í Morgun- blaðinu 31. júlí 2021. Nefnir hann nokkur dæmi, þar sem hann telur dómstólinn undir forystu Páls draga taum norska ríkisins, en Páll hafi auk þess tekið að sér launaða ráð- gjöf fyrir forsætisráðuneytið ís- lenska og skert með því sjálfstæði sitt. Ég þekki ekki hin norsku mál, en kann eitt íslenskt dæmi. Í árslok 2008 var Páll skipaður formaður rannsóknarnefndar Al- þingis á bankahruninu. Með honum í nefndinni skyldu sitja Tryggvi Gunnarsson lögfræðingur og Sigríð- ur Benediktsdóttir hagfræðingur. Hinn 31. mars 2009 birtist í banda- rísku stúdentablaði viðtal við Sig- ríði, þar sem hún sagði um banka- hrunið: „Mér finnst sem þetta sé niðurstaðan af öfgakenndri græðgi margra sem hlut eiga að máli og tómlátu andvaraleysi þeirra stofn- ana sem hafa áttu eftirlit með fjár- málakerfinu og sjá áttu um fjár- málalegan stöðugleika í landinu.“ Með „tómlátu andvaraleysi“ gat Sigríður ekki átt við nema tvær stofnanir, Fjármálaeftirlitið, sem átti að hafa eftirlit með fjár- málakerfinu, og Seðlabankann, sem átti að sjá um fjármálastöðugleika. Hún hafði þannig fellt dóm fyrir- fram. Eftir þessu var strax tekið. Ás- mundur Helgason, aðallögfræðingur Alþingis, taldi Sigríði hafa gert sig vanhæfa með þessum ummælum. Þeir Páll og Tryggvi voru sömu skoðunar, en Páll er sérfræðingur í hæfisreglum stjórnsýslu, sem hann hafði skrifað um heila doktors- ritgerð. Í símtali 22. apríl 2009 báðu Páll og Tryggvi Sigríði um að víkja úr nefndinni. Hún neitaði, og hófst vel skipulögð fjölmiðlaherferð henni til stuðnings. Við svo búið skiptu þeir Páll og Tryggvi um skoðun og kváðu nú ummæli Sigríðar hafa ver- ið almenns eðlis, enda hefði hún ekki nafngreint neinar stofnanir. Hún gæti því setið áfram í nefnd- inni. Þessi rökstuðningur var frá- leitur. Lögum samkvæmt hefur ein stofnun eftirlit með fjármálakerfinu, Fjármálaeftirlitið, og önnur stofnun sér um fjármálastöðugleika, Seðla- bankinn. Auðvitað var Sigríður að tala um þessar stofnanir og engar aðrar. Doktorsritgerð Páls var þegj- andi og hljóðalaust sett upp í hillu. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Sjálfstæði dómarans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.