Morgunblaðið - 14.08.2021, Side 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021
Í
keppni áskorendaflokks á
Skákþingi Íslands 2021 sem
nú stendur yfir er keppt um
tvö sæti í landsliðsflokki á
næsta ári. Þetta mót kemur á góðum
tíma fyrir þátttakendur sem eru 33
talsins því 26. ágúst nk. hefst hið
sameinaða Reykjavíkurskákmót og
Evrópumót einstaklinga sem var
fyrirhugað á síðasta ári en var frest-
að. Vonandi boða þessi mót eðlilegra
ástand á næstu misserum. Þegar lit-
ið er yfir þátttakendalistann blasir
við að nokkrir keppenda eiga fullt
erindi í landsliðsflokkinn en athyglin
beinist nú að Akureyringnum Sím-
oni Þórhallssyni sem eftir sigur á
Pétri Pálma Harðarsyni í sjöundu
umferð hefur unnið allar skákir sín-
ar og spurningin snýst um það hvort
hann vinni mótið með fullu húsi.
Staða efstu manna eftir skákir
fimmtudagskvöldsins var þessi: 1.
Símon Þórhallsson 7 v. (af 7) 2. Stef-
án Bergsson 5 ½ 3.- 5. Birkir Ísak
Jóhannsson, Lenka Ptacnikova og
Pétur Pálmi Harðarson 5 v.
Margar skemmtilegar skákir hafa
litið dagsins ljós en sú allra fjör-
ugasta var tefld í fimmtu umferð
þegar þeir mættust, Gauti Páll Jóns-
son og hinn 13 ára gamli Ingvar Wu
Skarphéðinsson. Slíkar glæringar
eru sjaldséðar. Vissulega lagði Gauti
Páll mikið undir en það er nú einu
sinni hans stíll, en Ingvar Wu bægði
öllum atlögum frá af öryggi og var
kominn með unnið tafl en steig þá
feilspor eitt og Gauti gat snúið taflinu
sér í vil en valdi í staðinn erfitt enda-
tafl sem honum tókst þó að halda:
Skákþing Íslands 2021, áskor-
endaflokkur:
Gauti Páll Jónsson – Ingvar Wu
Skarphéðinsson
Frönsk vörn
1.e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5
Re4!?
Sjaldséður leikur.
5. Rxe4 dxe4 6. Rh3 b6 7. Bb5+ c6
8. Bc4 Bb7 9. O-O c5 10. Bg5 Dxd4
11. De2 Rc6 12. Had1 Dxe5 13. f4
Dc7 14. f5!?
Hann gat undirbúið þetta með því
að leika 14. c3 fyrst og valda d4-
reitinn.
14. … Rd4 15. Hxd4 cxd4 16.
Bb5+ Bc6 17. fxe6 f6
18. Hxf6!
Um annað er ekki að ræða.
18. … gxf6 19. Dh5+ Kd8 20.
Bxf6+ Be7 21. Bxh8 d3!
Snjall millileikur sem opnar
ýmsar línur.
22. Be5?
Missir þráðinn. Best var 22.
cxd3 og staðan er í jafnvægi.
22. … Db7 23. Bxc6 Dxc6 24.
Dxh7 Dc5+ 25. Rf2 dxc2 26. Dg8+
Bf8 27. e7+
Spilar út síðasta trompinu en
svartur getur einfaldlerga leikið
27. … Kxe7! sem vinnur létt t.d.
28. Dg5+ Ke6 29. Df6+ Kd5
o.s.frv.
27. … Kd7 28. exf8(R)!+ Hxf8
29. Dg4+ Kd8 30. Dg5+ Kc8
Svartur átti í vandræðum með
skákirnar en gat leikið kónginum
að drottningunni, t.d. 30. … Kd8
31. Dg5+ Kd7 32. Dg4+ Ke7 33.
Dg5+ Ke6 og vinnur.
31. Dg4+ Kb7 32. Dxe4+ Ka6
33. Da4+ Kb7 34. De4+ Dc6 35.
Dxc6+ Kxc6 36. Rd3 Kd5
37. Rb4+?
Hann þurfti að finna h6-reitinn
til þess að snúa taflinu við, 37. Bg7!
og síðan – Bh6 þaðan sem bisk-
upinn valdar c1-reitinn.
37. … Kxe5 38. Rxc2 Hd8 39.
Re1!
Slóttugur varnarleikur en hvíta
staðan er samt töpuð eftir 39. …
Ke4! o.s.frv.
39. … Hd1? 40. Kf2 Hd2+ 41.
Ke3
Þar sem ekki gengur að leika 41.
… Hxb2 vegna 42. Rd3+ og hrók-
urinn fellur hefur hvítur unnið tvö
tempó og á nú góða jafnteflis-
möguleika.
41. … Hd7 42. g4 Kf6 43. Rf3
He7+ 44. Kf4 He2 45. h4 Hxb2 46.
h5 Hxa2 47. g5+ Kg7 48. Rd4 Ha4
49. Ke5 Ha5+ 50. Kf4 Ha4 51. Ke5
Ha5+ 52. Kf4 Ha4
- og hér var jafntefli samið.
Barist um tvö sæti
í landsliðsflokki
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Helgi Ólafsson
Fullt hús Símon Þórhallsson við upphaf sjöundu umferðar.
Á þessum óvissutím-
um hefur álag á heil-
brigðiskerfið stórauk-
ist. Frá því í mars 2019
hafa sjúkraliðar og ann-
að heilbrigðisstarfsfólk
borið hitann og þung-
ann af því að sinna fólki
sem sýkst hefur af Co-
vid-19, sinnt forvörnum
og unnið markvisst að
því að halda heilbrigð-
iskerfinu gangandi.
Lífsógnandi aðstæður
Á Landspítala og innan heilbrigð-
isþjónustunnar sinna sjúkraliðar
nærhjúkrun, og aðstoða fólk við að
sinna frumþörfum sínum. Sjúkraliðar
eru í störfum sínum í mjög nánum
samskiptum við skjólstæðinga sína.
Sjúkraliðar sem og annað heilbrigð-
isstarfsfólk starfa í lífsógnandi að-
stæðum þegar Covid-19-smituðum
einstaklingum er sinnt. Heilbrigðis-
starfsfólk hefur því meðvitað lagt
heilsu sína í hættu og þurft að sæta
ýmsum takmörkunum umfram aðra í
samfélaginu vegna náinna samskipta
við viðkvæma hópa í störfum sínum.
Vonbrigði og vaxandi ólga
Sjúkraliðar hafa lagt mikið á sig til
að sinna skjólstæðingum sínum.
Langvarandi álag hefur verið á stétt-
inni og hafa ítrekaðar ábendingar
borist til Sjúkraliðafélagsins um að
starfið gangi nærri heilsu starfsfólks.
Þá hefur undirmönnun á ýmsum
deildum Landspítala verið tilfinnan-
leg þar sem ítrekað er óskað eftir
auknu vinnuframlagi sjúkraliða sem
eru nú þegar við störf eða biðlað til
þeirra um að snúa til vinnu úr sum-
arleyfum sínum. Þá er nokkuð mikið
um langtímaveikindi meðal hjúkr-
unarfræðinga og sjúkraliða sem gerir
slæma stöðu enn verri. Afleiðingar
langvarandi álags hjá fólki, sem miss-
erum saman hefur borið mikla
ábyrgð og staðið í löngum stormi, er
vel þekkt. Það getur örmagnast and-
lega. Það birtist í síþreytu og sleni,
depurð, langvarandi veikindum og að
lokum kulnun í starfi.
Sjúkraliðar eru vonsviknir yfir-
völdum að hafa ekki brugðist hraðar
við til að tryggja betri mönnun. Til
viðbótar við að biðla til starfsfólks um
að halda sig inni í sinni „búblu“, snúa
til vinnu úr sumarfríum sínum, hefur
bakvarðasveitin verið endurvakin og
leitað hefur verið til heilbrigðisstarfs-
fólks sem nýlega hefur hafið töku líf-
eyris.
Viðurkenning á framlagi
Margsinnis hefur það komið fram
að sjúkraliðar og annað heilbrigðis-
starfsfólk hefur lagt miklu meira á sig
en krafist er í samningum og starfs-
lýsingum vegna þeirra aðstæðna sem
nú eru uppi af völdum Covid-19.
Þetta þarf að hafa hugfast gagnvart
okkar einstaka heilbrigðisstarfsfólki.
Viðurkenning stjórnvalda á mikil-
vægi vinnuframlags þeirra sem eru í
eins nánum samskiptum við fólk og
raun ber vitni, er nauðsynleg. Sjúkra-
liðar sem og aðrir sem sinna heil-
brigðisþjónustu þurfa að finna fyrir
hvatningu og stuðningi frá stjórn-
völdum, bæði í orði og verki.
Það dugar skammt að kalla eftir
liðsauka til að takast á við þessar
krefjandi aðstæður þegar skortur er
á sanngjörnu endurgjaldi. Álags- eða
viðbótargreiðslur þurfa að koma til
svo unnt sé að auka hvata fólks til að
sinna auknum verkefnum í þessu
starfsumhverfi. Stjórnvöld þurfa því
að viðurkenna vinnuframlag heil-
brigðisstarfsfólks hratt og örugglega
með því að tryggja hærri launa-
greiðslur til þeirra.
Eftir Söndru B.
Franks » Það dugar
skammt að
kalla eftir liðs-
auka til að tak-
ast á við þessar
krefjandi að-
stæður þegar
skortur er á
sanngjörnu
endurgjaldiSandra B. Franks
Höfundur er formaður Sjúkraliða-
félags Íslands.
Sanngjarnt
endurgjald, takk!
Haraldur Pétursson fæddist
að Arnarstöðum í Hraungerðis-
hreppi 15. ágúst 1985, sonur
Péturs Guðmundssonar skóla-
stjóra á Eyrarbakka og Ólafar
Jónsdóttur. Hann ólst upp hjá
föður sínum og stjúpu á Eyrar-
bakka til 10 ára aldurs en var þá
sendur í vist að Bræðratungu í
Biskupstungum. Hann kvæntist
Margréti Þormóðsdóttur árið
1924 og þau eignuðust fjögur
börn og komust þrjú þeirra til
manns.
Haraldur var mikill fræði-
maður þrátt fyrir skamma
skólagöngu og hann var safn-
húsvörður í Safnahúsinu í
Reykjavík í þrjá áratugi. Hann
var vel metinn í samfélaginu og
var kjörinn yfirskoðunarmaður
ríkisreikninga frá 1965 til 1978
og sat í niðurjöfnunarnefnd
Rvk. 1947-1962. Hann gegndi
fjölmörgum öðrum trúnaðar-
störfum, m.a. var hann formað-
ur Vinnumiðlunarskrifstofunn-
ar, sat í lýðveldiskosninganefnd
1944 auk þess að starfa fyrir
verkalýðshreyfinguna og tók
þátt í byggingu Alþýðuhússins
við Hverfisgötu. Ótalin eru þá
ritstörfin aðallega á sviði ætt-
fræði. Eftir hann liggja m.a.
Kjósarmenn, æviskrár sem kom
út 1961 og Ljósmæðratal 1762-
1953. Haraldur var kjörinn
heiðursfélagi Ljósmæðrafélags
Íslands árið 1979.
Haraldur Pétursson lést 1.
janúar 1982.
Merkir Íslendingar
Haraldur
Pétursson