Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 30

Morgunblaðið - 14.08.2021, Page 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarhelgistund kl. 11. Félagar úr Kór Árbæjarkirkju leiða sönginn. Und- irleikari er Birkir Bjarnason. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffispjall eftir stundina. ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Séra Sig- urður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Jóhönnu Maríu Eyjolfsdóttur djákna. Fé- lagar úr Kór Áskirkju syngja. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Ástjarnarkirkja | Sumarmessur í Garðakirkju, alla sunnudaga klukkan 11. Ástjarnarkirkja tek- ur þátt í sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér á síðunni. BAKKAGERÐISKIRKJA | Kvöldmessa mið- vikudaginn 18. ágúst kl. 20. Prestur er Þorgeir Arason. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Bakkasystur syngja. Meðhjálpari er Kristjana Björnsdóttir. BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessur í Bústaða- kirkju eru samerustundir með breyttu og frjáls- legu messuformi. Kantor Jónas Þórir leiðir tón- listina með félögum úr Kammerkór kirkjunnar. Sr. Pálmi og messuþjónar annast þjónustu. DIGRANESKIRKJA | Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Prestur er sr. Gunnar Sigurjónsson. Tón- list Matthías V. Baldursson. Súpa að guðþjón- ustu lokinni. Fermingarmessa í Hjallakirkju kl. 14. Prestur er Helga Kolbeinsdóttir. Tónlist ann- ast Matthías V. Baldursson. Guðþjónusta í Hjallakirkju kl. 17. Prestur er Bolli Pétur Bolla- son. Tónlist Matthías V. Baldursson. DÓMKIRKJAN | Guðþjónusta kl. 11. Prestur er Elínborg Sturludóttir, Kári Þormar er organisti og félagar úr Dómkórnum syngja. EGILSSTAÐAKIRKJA | Gönguguðsþjónusta sunnudag kl. 20. Stundin hefst í kirkjunni með stuttri hugvekju og söng. Síðan verður gengin þægileg kvöldganga um bæinn og staðnæmst nokkrum sinnum til bæna og ritningarlestra. Á hverjum áningarstað mun Sigurjón Bjarnason flytja fróðleiksmola tengda Egilsstaðabæ og sögu hans. Kaffisopi í kirkjunni í göngulok. Ver- um velkomin! Sr. Þorgeir Arason sóknarprestur. FELLA- og Hólakirkja | Helgistund kl. 20. Sr. Guðmundur Karl Ágústson þjónar. Forsöngvari er Kristín R. Sigurðardóttir. Organisti er Arnhild- ur Valgarðsdóttir. Kaffisopi eftir stundina. GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 15. ágúst kl. 11 verður kaffihúsamessa í Grafar- vogskirkju. Kaffihúsamessurnar eru sumar- messur og verða á sunnudögum kl. 11 út ágúst- mánuð. Forsöngvari, prestur, organisti og kirkjuvörður annast þjónustuna. Kaffi og með- læti. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar ásamt messuþjónum. Organisti er Antonía He- vesi, Kirkjukór Grensáskirkju leiðir almennan messusöng. Við minnum líka á kyrrðarstund á þriðjudaginn kemur kl. 12. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Kvöldhelg- istund sunnudag kl. 20. Prestur er sr. Leifur Ragnar Jónsson sem þjónar og predikar fyrir alt- ari. Organisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð- arkirkju syngur. Kirkjuvörður er Lovisa Guð- mundsdóttir. Kaffisopi í boði eftir messuna. HALLGRÍMSKIRKJA | Orgelsumar í Hallgríms- kirkju. Orgeltónleikar laugardag kl. 12. Jónas Þórir leikur á orgelið. Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. For- söngvarar syngja og leiða safnaðarsöng. Org- anisti er Björn Steinar Sólbergsson. HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Séra Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kordíu, kór Háteigskirkju syngja. Organisti er Guðný Einarsdóttir. HVALSNESKIRKJA | Sumarmessur á Suður- nesjum. Sjá Sandgerðiskirkju. KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Sumarmessa í Sandgerðiskirkju sunnudag kl. 20. Njarðvíkurprestakall tekur þátt í sumar- messunum. Sjá Sandgerðiskirkja hér á síðunni. KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund í safnaðar- heimili Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Sjöfn Jóhann- esdóttir leiðir stundina og Peter Máté annast tónlist. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11, sr. Guð- björg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar ásamt Magnúsi Ragnarssyni organista. Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja við athöfnina og verða fjögur börn fermd í messunni. Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðni Már Harðarson leiðir stundina ásamt sunnudagaskólakennurum. Guðsþjón- usta kl. 20. Regína Ósk og Emil Hreiðar sjá um tónlistina. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar. NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Guðsþjónustan fer fram á Torg- inu þar sem viðgerðir standa yfir á kirkjunni. Kaffi á könnunni. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík | Sum- armessa í Sandgerðiskirkju kl. 20. Njarðvíkur- prestakall tekur þátt í sumarmessunum. Sjá Sandgerðiskirkja hér á síðunni. Sandgerðiskirkja | Sumarmessur á Suður- nesjum. Síðsumarssælustund kl. 20. Almennur söngur við gítarslátt sóknarprests, hugvekja og bæn. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólaf- ur Jóhann Borgþórsson prédikar. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Douglas A. Brotchie. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Þorgils Hlynur Þor- bergsson guðfræðingur prédikar. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngja. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Guðsþjónusta 15. ágúst kl. 11. Sr. Axel Á Njarðvík annast prests- þjónustuna. Bjarki Geirdal Guðfinnsson guð- fræðinemi predikar. Veitingarhúsið Skálholt er opið í hádeginu, sem og alla daga. STRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Prestur er Ninna Sif Svavarsdóttir, er organisti Ester Ólafsdóttir. Grímuskylda. ÚTSKÁLAKIRKJA | Sumarmessur á Suður- nesjum. Sjá Sandgerðiskirkju. VALÞJÓFSSTAÐARKIRKJA | Sunnudaginn 15. ágúst verður formlega opnað sögusvið á Val- þjófsstað með kynningarathöfn sem hefst þar við kirkjuna kl 14. Norðan við kirkjuna hefur verið komið fyrir skilt- um þar sem í máli og myndum er stiklað á sögu Valþjófsstaðar sem höfuðbóls og kirkjustaðar frá öndverðu. Allir eru velkomnir að kynningarat- höfninni en minnum á gildandi sóttvarnareglur og fjarlægðarmörk. Kaffi í lok dagskrár í boði sóknarnefndar. Undirbúningsaðilar. VÍDALÍNSKIRKJA | Sumarmessur í Garða- kirkju, alla sunnudaga kl. 11. Vídalínskirkja tekur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér í síðunni. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sumar- messur í Garðakirkju alla sunnudaga kl. 11. Víðistaðakirkja tekur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér í síðunni. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Sumarmessa í Sand- gerðiskirkju kl. 20. Njarðvíkurprestakall tekur þátt í sumarmessun- um. Sjá Sandgerðiskirkja hér á síðunni. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Skálholtskirkja Messur á morgun Við á Íslandi búum við stjórnarskrá þar sem 48. grein kveður á um að alþingismenn séu eingöngu bundnir við sannfæringu sína, en eigi við neinar regl- ur frá kjósendum sín- um. Ekkert er kveðið á um það í stjórnar- skránni að Alþingi eigi að gæta hagsmuna al- mennings og engin kvöð er á alþingismönnum að gera það. Alþingi er eins og sjálfstæður heimur inni í samfélaginu sem setur samfélaginu reglur, dóms- og stofn- anakerfi án þess að hafa skýrar lagaskyldur við almenning. Í 1. grein stjórnarskrárinnar seg- ir að Ísland sé lýðveldi með þing- bundinni stjórn, nema hvað að sama stjórnarskráin afléttir af þingmönn- um í 48. greininni þeirri skyldu að halda trúnað og gæta hagsmuna al- mennings, lýðsins í landinu. Þeir eiga bara að vinna drengskaparheit við stjórnarskrána samkvæmt 47. grein hennar, en ekki þjóðina. Íslendingar eiga sitt land og ráða sjálfir hvað þeir gera við það. Í landinu er lýðræði og þjóðin hefur ekki afsalað sér neinum rétti til Al- þingis, engu eignarhaldi eða veitt Alþingi umboð til að afsala eða ráð- stafa því sem þjóðin á eða hefur átt. Alþingi er bara stjórnunar- og lög- gjafarsamkunda en fer ekki með eignarhald á þjóðinni. Ekkert full- trúaþing getur komið saman og sett þjóðinni afarkosti gegn vilja hennar. Engin slík heimild er í stjórn- arskránni né í vitund þjóðarinnar og mun aldrei verða. Það er viðurkennt að Alþingi sé löggjafarsamkunda þjóðarinnar en það umboð nær bara til að setja samfélagsreglur en ekki lög sem kveða á um að afsala eignum þjóð- arinnar eða afsala af þjóðinni ein- hverjum rétti eða eignum. Í sjálf- stæði hennar felst að þjóðin á Ísland og allt sem Íslandi tilheyrir. Alþingi getur ekki gefið land Ís- lendinga né auðlindir eða önnur réttindi eða sameig- inleg verðmæti okkar Íslendinga. Íslenska stjórn- arskráin hefur mjög takmarkaða eða nánast enga möguleika á breytingum til batn- aðar til að bæta stöðu eða réttindi almenn- ings ef sú staða kemur upp að rangt sé gefið í samfélaginu. Um þau mál hefur verið tekist á undanfarin ár í fram- haldi af málefnum og málarekstri um nýja stjórnarskrá. Meðan þjóðin hefur ekki sett skýr- ari ákvæði í núverandi stjórnarskrá um vald þjóðþingsins til að fara með umdeilda málaflokka án þess að bera það undir þjóðaratkvæði, þá verður að telja að þjóðþingið hafi ekkert umboð til að leysa úr eða fara með umboð í slíkum umdeild- um málaflokkum. Fulltrúaþing eins og okkar þar sem þingið sjálft hefur fríað þing- mennina því að gæta trúnaðar við hagsmuni almennings og að þeir styðjist bara við samvisku sína er augljóslega komið út fyrir valdsvið sitt. Þetta eru ekki fulltrúar með ótakmarkað umboð samkvæmt 1. grein stjórnarskrár lýðveldisins Ís- lands sem segir að Ísland sé lýð- veldi með þingbundinni stjórn. Það er bara svindl að binda ekki fulltrúa þjóðþingsins í stjórnarskrá til að halda trúnað við þjóðina og hags- muni hennar. Hver slík undanþága er augljóslega ekki í gildi enda svik við óskráðan þjóðarsáttmálann og getur aldrei verið í gildi. Stjórnarskráin kveður sem sagt ekki á um að þingið og þingmenn- irnir virði í hvívetna hagsmuni al- mennings í landinu. Nær gagns- laust er að láta þingmennina vinna drengskaparheit við stjórnarskrá sem tryggir ekki hagsmuni almenn- ings og þjóðarinnar. Þjóðþing með svona stjórnarskrá getur haldið stjórnarskránni óendanlega í því formi að ákvæði hennar gagnist fá- mennum hópi í landinu sem hefur hagsmuni af því að stjórnarskráin sé án strangra ákvæða um að þingið gæti jafnræðis, réttinda og trúnaðar við almenning í landinu. Núna er lögbundið í stjórnarskrá, æðstu lögum þjóðarinnar, að það sé hægt með löglegum hætti að mis- muna þjóðinni. Þetta ástand hefur sundrað þjóðinni og á eftir að valda miklum erfiðleikum við að leysa stjórnarfarsleg mál hennar með far- sælum hætti. Í Bretlandi hefur þróun stjórn- arskrárinnar staðið í um 800 ár og samanstendur af tíu merkum skjöl- um sem hafa verið samþykkt á þessum tíma sem ígildi stjórn- arskrárfyrirmæla. Ekkert eitt skjal er með stöðu stjórnarskrár heldur er þetta samsafn samþykktra skjala sem forma stjórnarskrána auk sam- félagslegra reglna: „The con- stitution of the United Kingdom ex- ists in hearts and minds and habits as much as it does in law,“ – eins og spekingarnir orða þetta. Nauðsyn- legar viðbætur eru samþykktar eft- ir því sem þjóðin þarfnast til að tryggja réttlæti og frið með þjóð- inni en hjá okkur er þjóðþingið nán- ast í stríði við fólkið með vægast sagt vafasamt umboð í vasanum. Núverandi þjóðþing Íslendinga með þingmenn sem ekki hafa svarið eið að því að sýna þjóðinni hollustu hefur ítrekað samþykkt lög og regl- ur gegn hagsmunum fólksins. Má þar til dæmis nefna 72. grein stjórn- arskrárinnar þar sem stendur að engan megi skylda til að láta af hendi eign sína nema almennings- þörf krefji. Þetta ákvæði stjórn- arskrárinnar var endalaust brotið í framhaldi af bankahruninu, sem var einn stærsti skandall þjóðarinnar og var meira og minna orsakað vegna laga frá Alþingi. Alþingi einkavæddi bankana sem í fram- haldinu stóðu fyrir einu stærsta bankahruni í heiminum. Eftir Sigurð Sigurðsson » Íslendingar eiga sitt land og ráða sjálfir hvað þeir gera við það. Sigurður Sigurðsson Höfundur er BSc MPhil byggingaverkfræðingur. Stjórnarskrár Nú líður að næstu alþingiskosningum og ljóst virðist vera að enn muni metmargir flokkar komast á þing. Þó er þetta allt á vissan hátt eins- leitur hamagangur, af því þótt ekki vanti framtíðarsýnina, þá skortir samt fortíð- arsýn. Unnið gegn forgengileikanum Við erum ekki þjóð sem lifir bara í núinu; við viljum láta nútímann enduróma í bakgrunnsbjörgum okkar litla eyríkis til að stæra okk- ur eftir mætti. Þó er nú svo komið að flestir flokkar koma og fara og svo gott sem allir stjórnmálaleið- togar okkar hverfa í gleymskunnar dá á nokkrum áratugum. Það sem eftir situr þegar við horfum til baka til síðustu aldar er því einkum tækniframfarirnar, her- námið og skáldin; einkum ljóð- skáldin er fjær dregur. Jafnvel sjálfstæðistökuferlið er tekið að fölna. Við höfum þó reynt að gæða for- tíðina langvinnum persónutöfrum með því að minnast skáldanna, einkum ljóðskáldanna. Ljóðskáld sem flokks-lukkudýr Nú væri því ráð ef allir stjórn- málaflokkarnir okkar í framboðinu myndu tilnefna hver sitt ljóðskáld sem sitt lukkudýr til frambúðar. Til þess að slíkt dygði yrði að vera um að ræða annaðhvort þekkt ljóðskáld úr fjarlægri fortíð eða eitt af aug- ljóslega listrænustu, fegurstu og flóknustu ljóðskáldum okkar tíma. Gætu flokkarnir tilnefnt það skáld sitt sérstaklega á flokksþingi sínu sem sitt fasta ljóðskáld og nefnt það síðan jafnan í lok framboðsræðna. Þann- ig væru þeir komnir með sína samspyrðingu við þjóðlegu eilífðar- málin. Sú var tíðin að Sjálf- stæðisflokkurinn að- hylltist ljóðskáld í sín- um sérritum (og í Lesbók Morgunblaðs- ins?) og vinstriflokk- arnir gátu fundið styrk frá ljóðskáldum TMM sem bakhjarls, auk ljóðabókahöfunda vinstripress- unnar. Og stjórnmálamenn hafa og lengi haft fyrir sið að vitna í ljóð- skáld til að krydda boðskap sinn. Ég legg nú til að minn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, þiggi slíkt tilboð frá mér. En í ljóði mínu sem heitir Sjálfstæðisflokkurinn lauk ég máli mínu á þessa leið: En þið skuluð hins vegar vara ykkur á því að þetta allt getur verið frá ykkur tekið ef þið vanmetið okkur frjálshyggju- púkana, því fátæki heimurinn vill gleypa okkur í sig og þá verðum við aftur komin á nítjándu öldina eða jafnvel aftur í Söguöldina! Eftir Tryggva V. Líndal Tryggvi V. Líndal » Það sem eftir situr þegar við horfum til baka til síðustu aldar er því einkum tækni- framfarirnar, hernámið og skáldin; einkum ljóð- skáldin er fjær dregur. Höfundur er skáld og menningar- mannfræðingur. Ljóðvæðing stjórnmálaflokk- anna?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.